Bandarísk stjórnmál

Trump undirbýr þriðja forsetaframboðið

Demókratar halda velli í öldungadeildinni

Stefnir í sigur Repúblikana
Eftir harða baráttu í aðdraganda miðkjörtímabils-kosninganna síðastliðna mánuði er gengið til kosninga í Bandaríkjunum í dag. Kosið er um öll sætin á fulltrúaþinginu og þriðjung sæta í öldungadeildinni og stefnir í að Repúblikanar sæki fylgi á kostnað Demókrata.

Trump ætlaði ekki að yfirgefa Hvíta húsið

Bandaríkin orðin land fjöldamorða á börnum
Íslensk móðir fjögurra barna segist ekki geta hugsað sér að búa í Bandaríkjunum. Hrina fjöldamorða sé í gangi. Viðbrögð samfélagsins við skotárásum séu úti á túni.

Biden kallaði blaðamann tíkarson

6. janúar merki um djúpa gjá í Bandaríkjunum
Fyrir ári síðan réðst æstur múgur á bandaríska þinghúsið, hvattur áfram af þáverandi forseta, Donald Trump. Prófessor í stjórnmálafræði segir atburðinn varpa skýru ljósi á djúpstæðan ágreining í bandarísku samfélagi.

Elizabeth Warren með Covid

Trump sagði Netanyahu að „fokka sér“

Bob Dole er látinn

Skælbrosandi með skotvopn á jólamyndinni

Stefnumál Bidens í hættu einungis ári eftir forsetakjör hans
Fjórða nóvember í fyrra sigraði Joe Biden forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Forsetinn hefur frá embættistöku glímt við erfið mál, innanlands og utan, og vinsældir hans minnkað. Deilur Demókrata stefna stærstu málum hans í hættu.

Lokun alríkisstofnana afstýrt í bili

Biden hrósar Cuomo fyrir vel unnin störf

Trump stjórnin varð sér úti um símtöl blaðamanna

Líkir Repúblikanaflokknum við Titanic

Biden lofar stórum aðgerðum eftir hundrað daga í embætti
Á hundraðasta degi sínum í embætti sagðist Joe Biden stefna að miklum breytingum á velferðar- og hagkerfi Bandaríkjanna, meðal annars með því að skattleggja þá ríku. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir Biden hafa lært af reynslunni að hlutirnir þurfi að gerast hratt. Nýi forsetinn erfi versta bú nokkru sinni.

Gaetz sagður hafa beðið um náðun frá Trump

Haaland fyrsti frumbygginn til að gegna embætti ráðherra

Stefna á að koma saman þrátt fyrir mögulega ógn

Þrjár konur saka Cuomo um kynferðislega áreitni

Trump: „Þetta er langt frá því að vera búið“

Fleiri ásakanir í garð Cuomo líta dagsins ljós

Múgurinn hafi verið „undirbúinn fyrir stríð“

Rush Limbaugh látinn

Trump slítur tengslin við Giuliani

Segir Demókrata spila McConnell „eins og fiðlu“

Meghan Markle sögð íhuga framboð í Bandaríkjunum

Trump sýknaður

Vitni ekki kölluð til í málinu gegn Trump

Vitni verða kölluð til í málinu gegn Trump

Vikið tímabundið úr starfi fyrir að hóta blaðamanni

Skjótur málflutningur hjá lögmannateymi Trumps

„Ef þeir hefðu fundið Pelosi, hefðu þeir drepið hana“

Maðurinn sem settist í sæti Pelosi var vopnaður

Munu sýna áður óbirt myndefni frá óeirðunum

Trump sagður ósáttur við málflutning lögmanna sinna

Réttað yfir Trump í annað sinn

Cheney segir mörgum spurningum ósvarað

Utanríkisráðherra Reagans látinn

Greene vikið úr nefndum þingsins

Repúblikanar beita sér ekki gegn Greene og Cheney

Óljóst hvað verður um Greene

Demókratar setja Repúblikönum úrslitakosti

Repúblikanar sagðir flýja „sértrúarflokk Trumps“

„Pendúllinn mun ekki sveiflast alla leiðina til baka“

Flestir þingmenn Repúblikana stóðu með Trump

„Við gerðum ekki nóg“

Ákærurnar sendar til öldungadeildarinnar í dag

Sanders vill verða ríkisstjóri Arkansas

Bernie-vettlingar prjónaðir yfir raðmorðingja á Reyðarfirði
Esther Ösp Gunnarsdóttir uppfyllti Bernie Sanders-vettlingaósk eiginmannsins Jóns Knúts Ásmundssonar með því að prjóna tvo vettlinga samtímis á einu kvöldi á meðan hún fylgdist með Night Stalker á Netflix.

Minnkandi líkur á að Trump verði sakfelldur

Konan sem er sögð hafa stolið tölvu Pelosi laus úr haldi

Leggur til að réttarhöldum Trumps verði frestað

Maður Kamölu stoltur að vera fyrsti karlkyns makinn

Endurkjör Bidens rætt strax á fyrsta degi

Líkamsræktarhjól Biden veldur titringi

Sanders með íslenska lopapeysu á höndunum

Grímutískan á innsetningarathöfn Biden

Joe Biden orðinn forseti Bandaríkjanna

Annasamur dagur framundan hjá Trump og Biden

Telja mögulegt að önnur árás komi innan frá

Vilja náðun Trumps

Bandaríkin kveðja einn umdeildasta forseta sögunnar

Trump hvetur stuðningsmenn sína til að sýna stillingu
Donald Trump fráfarandi forseti Bandaríkjanna talaði til stuðningsmanna sinna á twitter reikningi Hvíta hússins í gærkvöldi.

Hefja umræður um að kæra Donald fyrir embættisglöp

Þingmenn Repúblikana fjarlægjast Trump á elleftu stundu
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings mun í dag kjósa um hvort ákæra eigi Trump fyrir embættisglöp í starfi. Öldungadeildin myndi þá fara með hlutverk dómstóls en fjölmiðlar vestanahafs segja að um 20 Repúblikanar í öldungadeildinni séu opnir yfir því að sakfella Trump.

Stórfyrirtæki slíta tengslum við Trump

Mike Pence hafnar áskorun Pelosi formlega

Tilraunir Demókrata „fáránlegar“

Pence fær sólarhring til að koma Trump frá

Hefja formlegt ferli til að fjarlægja Trump

Vill bólusetja fleiri frekar en spara seinni skammta

Trump verður ekki viðstaddur innsetningarathöfnina

Sendiherrann í Washington: Borgin stendur enn og lýðræðið lifir áfram
Sendiherra Íslands í Washington D.C. talar um stöðuna og andrúmsloftið eftir árásina á þinghúsið. Þrátt fyrir ólgu í borginni er hún spennt fyrir nýjum tímum enda verður nóg að gera að kynnast nýju starfsliði Joe Biden.

Trump fordæmdi árásina á þinghúsið

Lögreglumaður látinn eftir árásina á þinghúsið

Trump enn til alls vís
Prófessor segir mögulegt að Trump verði óbeint ýtt til hliðar í allri ákvarðanatöku næstu daga en á síður von á því að Repúblikanaflokkurinn rifni í tvennt.

Þingið staðfestir kjör Bidens

Atkvæði kjörmanna frá Arizona standa

Snúa aftur í þinghúsið

Allt það helsta frá óeirðunum í Washington

Löng nótt fram undan á bandaríska þinginu

Búa sig undir fjölmenn mótmæli í dag

Demókratar hársbreidd frá sigri í Georgíu

Síðasta vígi Trumps fellur með staðfestingu á tapi í Georgíu
Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, heldur uppi ásökunum um svindl í forsetakosningunum í Georgíu. Trump hringdi í samflokksmann sinn í fylkinu og bað hann að finna nógu mörg atkvæði til að snúa taflinu sér í vil. Í raun síðasta vígi Trumps, segir íslenskur sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum.

Lokatilraunin til að koma í veg fyrir sigur Bidens

Trump samþykkir efnahagsaðgerðir þingsins

Donald Trump náðaði fjóra stríðsglæpamenn

Trump neitar að samþykkja efnahagsaðgerðir þingsins

Biden: „Lýðræðið sigraði“

Trump mun áfram reyna allt til að grafa undan lýðræðinu
Kosning kjörmanna er enn einn áfanginn í kjöri Joes Biden sem Bandaríkjaforseta. Donald Trump hefur þó ekki enn viðurkennt ósigur. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, segir líklegt að Trump haldi áfram að véfengja kosningaúrslitin þó dómstólar hafi hafnað öllu frá herbúðum forsetans.

Barr lætur af störfum sem dómsmálaráðherra

Kjörmennirnir koma saman til að kjósa næsta forseta Bandaríkjanna
Kjörmenn ríkjanna koma saman í hverju ríki fyrir sig í dag en atkvæðin verða formlega talin þann 6. janúar 2021. Út frá niðurstöðum forsetakosninganna er gert ráð fyrir að Joe Biden verði kjörinn með 306 kjörmenn.

Aftökuhrina á lokadögum Trumps

Hæstiréttur færði Trump enn einn ósigurinn
Kjörmenn koma saman víðs vegar um Bandaríkin þann 14. desember næstkomandi til að velja næsta forseta landsins. Trump hefur orðið lítið ágengt í tilraunum sínum til að koma í veg fyrir að sá maður verði Joe Biden, frambjóðandi Demókrata.

Giuliani lagður inn á spítala
Giuliani hefur verið mikið á ferðinni síðastliðna mánuði en í síðustu viku ferðaðist hann til þriggja ríkja til að funda með þingmönnum Repúblikana vegna niðurstöðu forsetakosninganna. Athygli vekur að hann notaði aldrei grímu á þeim fundum.

Bað Bandaríkjamenn um að nota grímu í 100 daga
Joe Biden og Kamala Harris eiga erfitt verk fyrir höndum þegar þau taka við embætti forseta og varaforseta í janúar. Biden sagðist tilbúinn til að takast á við faraldurinn og hét því að viðbrögð hans við faraldrinum yrðu betri en Trumps.

Engar vísbendingar um víðtækt kosningasvindl
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali við AP að ráðuneytið hefur ekki fundið neinar vísbendingar um víðtækt kosningasvindl. Fjölmiðlar vestanhafs telja að ummæli ráðherrans muni hafa áhrif á samband hans við Trump.

Óvissa um næstu skref Trumps
Teymi Trumps gengur erfiðlega að fá niðurstöðum forsetakosninganna snúið en Trump heldur því enn fram að kosningasvindl hafi átt sér stað. Hann sagðist í dag ekki ætla að hætta að berjast en vildi lítið gefa upp næstu skref fyrir dómstólum. Sífellt fleiri ríki staðfesta nú úrslit kosninganna.

Veikar tilraunir Trumps til að koma í veg fyrir vilja kjósenda
Bandaríska alríkisstofnunin sem sér um innsetningu Bandaríkjaforseta hefur tilkynnt Joe Biden að formleg valdaskipti geti hafist. Donald Trump neitar þó að viðurkenna niðurstöðu kosninganna og hefur eytt síðustu vikum í að láta reyna á réttmæti atkvæðatalningar fyrir dómstólum í fjölmörgum ríkjum. Á sama tíma hefur hvert ríkið á fætur öðru viðurkennt sigur Biden.

Trump gefur eftir og valdaskiptin hefjast
Yfirmaður stoðþjónustu Bandaríkjanna hefur tilkynnt Joe Biden að valdaskiptaferlið geti hafist. Donald Trump hefur falið sínu starfsliði að taka þátt í því ferli. Hann segist þó hvergi af baki dottinn í baráttu sinni.

Nefnir 21 þingmann Repúblikana sem eru sagðir fyrirlíta Trump
Blaðamaðurinn frægi Carl Bernstein greinir frá nöfnum öldungadeildarþingmanna Repúblikanaflokksins sem hafa ítrekað talað gegn forsetanum í einkasamræðum. Bernstein hefur mikið gagnrýnt Trump í gegnum tíðina en hann líkir honum nú við „óðan konung á síðustu dögum valdatíðar sinnar.“

Fleiri samflokksmenn Trumps snúast gegn honum
Fleiri samflokksmenn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hafa opinberlega lýst því yfir að þeir séu mótfallnir tilraunum hans til að fá úrslitum forsetakosninganna snúið.

Beitir sér gegn vottun úrslita
Þar sem dómstólaleiðin hefur reynst ókleifur múr fyrir fráfarandi Bandaríkjaforseta, beinir hann kröftum sínum í að fá embættismenn Repúblikana í fylkjum til að neita að votta úrslitin og senda eigin kjörmenn.

Alin upp sem stolt svört kona
Kamala Harris verður í janúar fyrst kvenna sett í embætti varaforseta Bandaríkjanna. Með valinu er svo sannarlega brotið blað í sögu Bandaríkjanna því Kamala er ekki bara kona, hún er svört kona, asísk-svört kona.

Kínverjar óska Biden til hamingju með kjörið
Kínverjar hafa sent Joe Biden, nýkjörnum forseta Bandaríkjanna, seinbúnar hamingjuóskir. Rússar hafa enn ekki tjáð sig um sigur Biden en talið er að Putin muni ekki óska Biden til hamingju á meðan Donald Trump Bandaríkjaforseti véfengir úrslit kosninganna.

Forsetinn fráfarandi gefur sér lítinn tíma til embættisverka
Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, kom fram í fyrsta sinn í sex daga í gær en hélt ekki tölu. Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, hefur hins vegar margsinnis komið fram opinberlega síðustu daga og ræðir við erlenda þjóðhöfðingja. Búast má við að Biden tilkynni um fyrstu ráðherra sína á næstunni.

Hrósa sigri vegna endurtalningar í Georgíu
Samskiptafulltrúi framboðs Donalds Trump segir að tilkynning um að öll atkvæði verði handtalin í Georgíu vera mikilvægt fyrsta skref en talningunni verður að ljúka fyrir 20. nóvember. Atkvæðin til öldungadeildarinnar verða þó ekki talin á ný.

Biden til Trumps: „Ég hlakka til að ræða við þig“
Biden ávarpaði þjóðina fyrr í dag til að ræða dómsmál Hæstaréttar Bandaríkjanna um almannatryggingakerfið, ACA, en málflutningur um hvort fella eigi úrræðið niður hófst í dag. Þá var Biden spurður út í Trump en hann sagði það vandræðalegt að Trump vilji ekki játa sig sigraðan.

Kjósendur af rómönskum uppruna styðji Repúblikana í auknum mæli
Will Jennings, prófessor og stjórnmálaskýrandi Sky, segir að vaxandi klofnings gæti á milli þjóðfélagshópa í Bandaríkjunum. Kjósendur af rómönskum uppruna sem búa í þéttbýli virðast nú hallast meira að Republikönum en áður.

Trump lætur varnamálaráðherra Bandaríkjanna fjúka
Trump greindi frá því á Twitter að Mark T. Esper hafi verið rekinn frá og með deginum í dag en mikil togstreita hefur verið á milli þeirra upp á síðkastið.

Melania sögð hafa ráðlagt Trump að játa sig sigraðan
Melania Trump og Jared Kushner eru sögð hafa ráðlagt Donald Trump að játa sig sigraðan. Synirnir Donald Jr. og Eric Trump eru aftur á móti sagðir hafa hvatt hann til að halda baráttunni áfram.

Bush og Romney óska Biden til hamingju og efast um ásakanir Trumps
Háttsettir Repúblikanar eru farnir að óska Biden til hamingju og draga fullyrðingar Trumps um svindl í efa. George W. Bush hringdi í Biden í dag. Mitt Romney segir ásakanir Trumps um svindl skaðlegar fyrir lýðræðið.

Hópsýking í Hvíta húsinu
Sex hafa greinst með kórónuveiruna í Hvíta húsinu um helgina. Talið er að starfsmannastjórinn Mark Meadows hafi smitað flesta.

Joe Biden ávarpar bandarísku þjóðina
Joe Biden beindi orðum sínum bæði að eigin kjósendum og kjósendum Trump í sigurræðu sinni á laugardagskvöld. Kamala Harris, verðandi varaforseti kynnti hann á svið. Ræða hennar hefur þegar vakið mikla athygli.

Heimsleiðtogar bjóða Bandaríkin velkomin aftur í alþjóðasamfélagið
Prófessor í stjórnmálafræði segir þjóðarleiðtoga bjóða Biden og Bandaríkin aftur velkomin í alþjóðasamfélagið með kveðjum sínum. Í fyrsta skipti í sögunni hefur forsetaframbjóðandi sem tapar kosningum ekki hringt í sigurvegarann og óskað honum til hamingju.

Biden og Harris brjóta blað í sögunni
Enn á eftir að greina frá endanlegum niðurstöðum forsetakosninganna í Bandaríkjunum en að öllu óbreyttu mun Joe Biden verða 46. forseti Bandaríkjanna og Kamala Harris verða 49. varaforseti Bandaríkjanna. Um er að ræða stærstu kosningarnar í sögu Bandaríkjanna.

Trump neitar að játa sig sigraðan
Donald Trump, sitjandi Bandaríkjaforseti, segir að kosningunum sé langt í frá lokið. Hans kosningateymi mun hefja málaferli vegna talningaferlisins næsta mánudag.

Fjölmiðlar vestanhafs lýsa Biden sigurvegara
Biden er nú með 273 kjörmenn eftir að NBC News, AP News, NEw York Times, CNN og fleiri miðlar lýstu því yfir að hann myndi vinna Pennsylvaníu. Mögulega verður farið fram á endurtalningu í ríkinu en ekki er talið að það muni breyta niðurstöðunum.

„Tölurnar segja okkur skýra og sannfærandi sögu“
Enn eru atkvæði að berast frá nokkrum lykilríkjum eftir kosningarnar í Bandaríkjunum en Biden er verulega nálægt því að tryggja sér 270 kjörmenn. Hann ávarpaði Bandaríkjamenn í gær og ýjaði að því að niðurstöður gætu legið fyrir í dag.

Leiðin greið fyrir Biden
Joe Biden er kominn fram úr Trump í nær öllum lykilríkjum. Tölfræðifyrirtækið Decision Desk HQ segir 87,6 prósent líkur á að Joe Biden verði forseti Bandaríkjanna og greinendur benda á að Donald Trump þurfi kraftaverk til þess að snúa dæminu við.

Flókin staða í Georgíu vegna öldungadeildarsætanna
Demókratar munu líklegast ekki ná meirihluta innan öldungadeildarinnar líkt og kannanir bentu til fyrir kosningarnar en baráttunni er hvergi nærri lokið. Tvær úrslitaviðureignir gætu þurft að fara fram í janúar í Georgíu.

Mótmæli brjótast út víða í Bandaríkjunum
Enn er óljóst hver næsti forseti Bandaríkjanna verður en stuðningsmenn Bidens krefjast þess að öll atkvæði verði talin í öllum ríkjum. Stuðningsmenn Trumps aftur á móti krefjast þess að talning verði stöðvuð í sumum ríkjum en haldið áfram í öðrum.

Varnarsigur repúblikana segir prófessor
Úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum velta á örfáum atkvæðum í lykilríkjum. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor búast ekki við stefnubreytingu gagnvart Íslandi verði forsetaskipti vestanhafs.

Dó úr COVID-19 í október en kosinn á ríkisþingið í gær
David Andahl hlaut tæplega 36 prósent atkvæða í ríkisþingkosningunum í Norður-Dakota í gær. Hann lést þó fyrir tæpum mánuði síðan eftir að hafa smitast af COVID-19.

Bandaríkin draga sig formlega út úr Parísarsamkomulaginu
Bandaríkin eru nú fyrsta þjóðin í heiminum til að draga sig formlega út úr Parísarsamkomulaginu. Samkomulagið var undirritað árið 2015.

Fyrsti trans öldungadeildarþingmaðurinn
McBride er fyrsta manneskjan sem opinberlega er trans sem er kjörin á ríkisþing Delaware.

Þingkosningar mikil vonbrigði fyrir Demókrata
Spár um gott gengi Demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings hafa ekki gengið eftir. Repúblikanar munu líklega halda meirihluta sínum. Repúblikanar vinna einnig á í fulltrúadeildinni.

Segist hafa sigrað og vill að talningin verði stöðvuð
Donald Trump bandaríkjaforseti er ósáttur að enginn af helstu fjölmiðlum landsins, hafi nú þegar lýst hann sigurvegara. Hann sagði að verið væri að reyna að stela af honum kosningunum án þess að færa nokkur rök fyrir máli sínu.

Gríðarleg óvissa eftir nóttina og langir dagar framundan
Biden átti erfiða nótt í mörgum ríkjum þar sem hann tapaði í nokkrum ríkjum sem hann hefði þurft til að vinna. Erfiðir dagar verða framundan í Bandaríkjunum og óljóst er hver næsti forseti Bandaríkjanna verður.

Íslendingar strax farnir á taugum
Fáir íslendingar eru farnir í háttinn enda einhver mest spennandi nótt síðari tíma runnin upp og heimsbyggðin fylgist með.

Allt það helsta fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum
Bandaríkjamenn ganga nú til kosninga en fyrstu kjörstaðir loka klukkan 23:00. Ýmislegt þarf að hafa í huga fyrir nóttina en Fréttablaðið hefur tekið saman það helsta fyrir kosningarnar í ár.

Úrslitastundin runnin upp
Kjördagur í Bandaríkjunum er í dag þar sem kosið er um næsta forseta Bandaríkjanna, sem og Bandaríkjaþing. Óljóst er hvenær endanlegar niðurstöður koma til með að liggja fyrir en mögulega verður hægt að draga ályktanir út frá niðurstöðum í ákveðnum ríkjum í nótt. Fjöldi póstatkvæða flækir málin nokkuð.

Óhætt að fara snemma í háttinn nái Biden Georgíu eða Flórída
Hafsteinn Einarsson, doktosnemi og stjórnmálafræðingur segir að mörgu þurfi að hyggja þegar fylgst er með kosningunum sem fram fara í Bandaríkjunum í kvöld.

Hugmyndin að reyna að hræða fólk af kjörstað
Íslendingur búsettur í N-Virginíu í úthverfi Washington D.C segist ekki hafa miklar áhyggjur af óeirðum í kjölfar kosninga. Hann hafi meiri áhyggjur af tilraunum til þess að grafa undan lýðræðinu í Bandaríkjunum.

Lokaspretturinn hafinn
Donald Trump Bandaríkjaforseti mætir Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í næstu viku. Ýmislegt bendir til að Trump sé í verri stöðu en Biden. Allt getur þó gerst dagana fyrir og eftir kjördag.

Tíminn alveg að renna út fyrir Trump
Kjördagur í Bandaríkjunum rennur upp eftir fimm daga en samkvæmt könnunum er staða Joes Biden, forsetaframbjóðanda Demókrata, sterkari en Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Færri leiðir að embættinu eru til staðar fyrir Trump heldur en eru fyrir Biden.

Amy Coney Barrett skipuð í Hæstarétt Bandaríkjanna
Amy Coney Barrett hefur verið skipuð í Hæstarétt Bandaríkjanna en meirihluti öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti skipunina í gær. Barrett er þriðji dómarinn sem Donald Trump Bandaríkjaforseti skipar í Hæstarétt og tilheyra nú sex dómarar af níu í Hæstarétt íhaldssamari armi réttarins.

Barist um meirihluta öldungadeildar
Bandaríkjamenn ganga til kosninga eftir tíu daga en samhliða forsetakosningunum fara þingkosningar fram. Kannanir benda til að Demókratar muni áfram vera í meirihluta í fulltrúadeildinni og er möguleiki á að þeir nái einnig meirihluta í öldungadeildinni.

Ásakanir gengu á víxl í kappræðum Trumps og Bidens
Seinustu kappræðurnar milli Trumps og Bidens fyrir forsetakosningarnar fóru fram í nótt og voru þær heldur rólegri en þær fyrstu. Biden og Trump voru þó ósammála um nánast allt og skiptust þeir á að saka hvorn annan um ýmislegt.

„Þetta er ekki raunveruleikaþáttur“
Barack Obama brá sér aftur í kosningagír í gærkvöldi þar sem hann ávarpaði kjósendur í Fíladelfíuborg. Hann fór hörðum orðum um Donald Trump, Bandaríkjaforseta.

Baráttan nú á lokametrunum
Einungis tólf dagar eru nú í að kjördagur renni upp í Bandaríkjunum. Donald Trump og Joe Biden munu í kvöld reyna að sannfæra kjósendur um að þeir séu rétti kosturinn í embætti forseta Bandaríkjanna.

Trump í vörn en Biden rólegri þegar þeir sátu fyrir svörum
Donald Trump og Joe Biden áttu að mætast í gær í öðrum forsetakappræðum vetrarins en þess í stað þurfti fólk að flakka milli tveggja sjónvarpsstöðva til að fylgjast með frambjóðendunum. Helstu umræðuefni kvöldsins hjá þeim báðum sneru að COVID-19, framkvæmd forsetakosninganna og kynþáttamisrétti, meðal annars.

Berjast við langar raðir og takmarkað aðgengi til að geta kosið
Búist er við metkjörsókn í bandarísku forsetakosningunum í ár en fólk hefur verið hvatt til að kjósa fyrr til að draga úr álagi á sjálfan kjördag. Álagið hefur þó verið gríðarlegt á kjörstöðum í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna síðustu daga vegna mikillar aðsóknar.

Stöðva manntal í Bandaríkjunum þrátt fyrir mótmæli
Ríkisstjórn Trumps segir nauðsynlegt að gert verði hlé á manntali í Bandaríkjunum til að fara yfir niðurstöður en úrskurður Hæstaréttar leiðir líklegast til þess að manntalið í heild sinni haldi ekki áfram. Fjölmargir hafa mótmælt ákvörðuninni.

Barrett neitaði að svara spurningum um þungunarrof og heilbrigðiskerfið
Barrett sat fyrir svörum í dómsmálanefnd öldungadeildarinnar í gær og mun gera það aftur í dag. Hún neitaði ítrekað að svara spurningum frá þingmönnum Demókrata, meðal annars um heilbrigðiskerfið og þungunarrof.

Flóknar kosningar í skugga COVID-19
Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum eru heldur flókið fyrirbæri og nokkuð öðruvísi en það kerfi sem Íslendingar þekkja. Nú þegar aðeins þrjár vikur eru í kosningar er vert að taka saman hvernig kjörmannakerfið virkar, hvernig póstakvæði spila þar inn í og hvaða dagsetningum er vert að fylgjast með eftir kosningar.

Ýmis hitamál í kringum tilnefningu Barrett
Umræða um tilnefningu Amy Coney Barrett í Hæstarétt Bandaríkjanna fer nú fram innan öldungadeildar Bandaríkjaþings. Dósent við lagadeild HÍ segir að átökin snúist nú um málsmeðferðina við skipunina í réttinn, um ólíka sýn hæstaréttardómara til túlkunar laga sem og um Barrett sjálfa.

Situr fyrir svörum næstu tvo daga
Dómsmálanefnd þingsins mun líklega samþykkja tilnefningu Amy Coney Barrett í Hæstaréttar Bandaríkjanna fyrir 22. október en umræður um tilnefninguna fara nú fram.

Taka fyrir skipun Barrett í Hæstarétt Bandaríkjanna
Tilnefning Barrett í Hæstarétt Bandaríkjanna verður tekin fyrir innan öldungadeildar Bandaríkjaþings í vikunni en mikill ágreiningur hefur verið um tilnefninguna. Margir mótmæla skipuninni þar sem aðeins eru rétt rúmar þrjár vikur í forsetakosningar þar í landi.

COVID-19 í brennidepli í kappræðum Harris og Pence
Fyrstu og einu varaforsetakappræðurnar milli Mike Pence og Kamala Harris fóru fram í nótt en óhætt er að segja að varaforsetaefnin hafi verið töluvert málefnalegri en forsetaframbjóðendurnir. Hart var tekist á um viðbrögð við kórónaveirufaraldrinum, meðal annars.

Óvissa í ljósi veikinda Trump-hjóna

Trump mun vera nokkra daga hið minnsta á sjúkrahúsi
Samkvæmt aðstoðarfjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins mun forsetinn ekki stíga tímabundið til hliðar vegna veikinda.

Donald Trump forseti Bandaríkjanna færður á spítala
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, verður færður á Walter Reed sjúkrahúsið í Washington D.C. Hann er sagður hafa verið með vægan hita og hósta í allan dag.

Donald og Melania Trump með COVID-19
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna og Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hafa greinst með COVID-19.

Átta prósent Íslendinga styðja Donald Trump
Fleiri karlar en konur á Íslandi styðja Donald Trump. Stuðningur við hann er mestur meðal kjósenda Miðflokks og Sjálfstæðisflokks. Enginn stuðningur við Trump mælist í Framsókn og Samfylkingu. Viðhorf íslendinga til forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum eru í takti við aðra Evrópubúa segir stjórnmálafræðingur.

Stjórnleysi og frammíköll áberandi í fyrstu kappræðum Trumps og Biden
Óhætt er að segja að stjórnleysi hafi verið ríkjandi þegar Donald Trump mætti Joe Biden í fyrstu kappræðunum fyrir kosningar en umræðustjórinn þurfti ítrekað að blanda sér inn í málin. Meðal helstu umræðuefna voru COVID-19 faraldurinn, efnahagurinn, heilbrigðis- og samfélagsmál, en erfitt reyndist að halda Trump og Biden við efnið.

Greiddi ekki tekjuskatt í ellefu ár
Donald Trump greiddi einungis 750 Bandaríkjadala í skatt árið sem hann var kjörinn forseti og hefur fengið tæpar 73 milljónir endurgreiddar frá skattinum vegna tekjutaps. New York Times greinir ítarlega frá fjármálum forsetans en fjölmiðillinn segist hafa undir höndum skattskýrslur hans frá síðustu tveimur áratugum.

Styttist í forsetakosningar
Á morgun eru fimm vikur í forsetakosningarnar en Donald Trump og Joe Biden mætast í fyrstu kappræðunum annað kvöld. Allt bendir til að vikurnar fram að kosningum, sem og vikurnar þar á eftir, verði æsispennandi.

Trump tilnefnir Amy Coney Barrett í Hæstarétt
Barrett starfar nú við áfrýjunardómstól í Chicago en Trump tilkynnti í dag að hún yrði tilnefnd til að taka við sæti Ruth Bader Ginsburg í Hæstarétti Bandaríkjanna. Mikil átök hafa verið milli íhaldssamra og frjálslyndra vegna tilnefningarinnar.

Trump mun tilnefna Barrett í Hæstarétt
Heimildarmenn fjölmiðla vestanhafs hafa staðfest að Trump komi til með að tilnefna Amy Coney Barrett til Hæstaréttar á morgun. Barrett er meðal annars yfirlýstur andstæðingur fóstureyðinga og talsmaður þess að fólk fái að bera skotvopn.

Átök hafin um hinstu ósk Ginsburg
Hinsta ósk hæstaréttardómarans Ruth Bader Ginsburg var að ekki yrði skipaður nýr dómari við réttinn í hennar stað fyrr en eftir að nýr forseti hefur verið settur í embætti. Leiðtogi Repúblikana í öldungadeild bandaríska þingsins fullyrti, ekki klukkustund eftir andlát hennar í gærkvöld að kosið yrði um nýjan kandídat Trumps í réttinn áður en nýr forseti verður settur í embætti

Lofaði að gera Bandaríkin sterkari, stoltari og betri en áður fyrr
Trump ítrekaði mikilvægi komandi kosninga þegar hann tók við tilnefningu Repúblikana til forseta á landsfundi flokksins í gær en þar varaði hann við „sósíalískri stefnu“ Demókrata og hét því að gera Bandaríkin betri en áður fyrr.

„Ég vil að þið vitið að þið eruð ekki einsömul“
Melania Trump kom fram á öðrum degi landsfundar Repúblikana í gær en ólíkt öðrum ræðimönnum nýtti forsetafrúin ávarp sitt til að hvetja til samstöðu.

„Þau eru að nota Covid til að svíkja bandarísku þjóðina“
Donald Trump var formlega útnefndur forsetaframbjóðandi Repúblikana á landsfundi flokksins í gær en hann nýtti ræðu sína til þess að ítreka mikilvægi komandi kosninga og sakaði Demókrata um kosningasvindl.

Láta af störfum til að einbeita sér að fjölskyldunni
Kellyanne Conway kemur til með að yfirgefa Hvíta húsið um mánaðarmótin en skömmu áður en hún tilkynnti málið sagði eiginmaður hennar, George Conway, að hann hafði sagt sig frá Lincoln verkefninu svokallaða. Bæði segjast þau ætla að einbeita sér að fjölskyldunni.

Lofaði að binda enda á reiði og ótta Bandaríkjamanna
Landsfundi Demókrata lauk í gær með ávarpi Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrata, en Biden lofaði að leiða Bandaríkjamenn út úr myrkrinu. Meginþema fundarins var samstaða en Donald Trump fékk verulega slæma útreið á fundinum.

Segir Trump nálgast embættið eins og „enn einn raunveruleikaþáttinn“
Barack Obama og Hillary Clinton fóru ekki leynt með óánægju sína á Donald Trump Bandaríkjaforseta á landsfundi Demókrata í gær en þau sögðu Trump ekki vera starfi sínu vaxinn og ítrekuðu mikilvægi samstöðu.

Biden tók formlega við tilnefningu Demókrata
Mikil áhersla var lögð á mikilvægi góðs leiðtoga þegar annar dagur landsfundar Demókrata fór fram í gær. Meðal þeirra sem lýstu yfir stuðning við Biden voru fyrrum Bandaríkjaforsetarnir Bill Clinton og Jimmy Carter.

Donald Trump fær slæma útreið á landsfundi Demókrata
Fyrrum forsetafrúin Michelle Obama var meðal ræðumanna á landsfundi Demókrata í gær en hún sagði Donald Trump ekki vera hæfan til að gegna embætti forseta. Fjöldi annarra ræðumanna ávörpuðu áhorfendur þar sem áhersla var lögð á samfélags- og efnahagsmál.

Trump reynir að skyggja á landsfund Demókrata
Repúblikanar hafa skipulagt auglýsingaherferð til að skyggja á landsfund Demókrata sem hefst í dag en á sama tíma og dagskráin hefst mun Donald Trump mæta í viðtal hjá Fox News. Landsfundi Demókrata lýkur á fimmtudaginn.

Hafnar því að vera kvenkyns Obama
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, valdi Kamölu Harris sem meðframbjóðanda. Harris sóttist eftir að verða forsetaefni en dró framboð til baka í desember. Hún á umdeildan feril sem saksóknari en er nú annar öldungadeildarþingmaður Kaliforníufylkis.

Harris verður varaforsetaefni Bidens
Kamala Harris bauð sig fram til forseta fyrir Demókrata en laut í lægra haldi fyrir Biden.

Spáði Trump sigri árið 2016 en spáir nú að Biden vinni
Allan Lichtman hefur reynst sannspár um úrslit forsetakosninga í Bandaríkjunum frá árinu 1984 en hann byggir spár sínar á þrettán lykilþáttum sem hann segir benda til úrslit kosninga.

Trump vill fresta forsetakosningunum
Trump hefur síðastliðna viku gagnrýnt póstatkvæðagreiðslur harðlega en hann segir slíka atkvæðagreiðslu leiða til kosningasvindls. Hann leggur til að kosningunum verði frestað þar til það telst öruggt að mæta á kjörstað.

„Þessi með alþjóðasamskiptin“
Alþjóðastjórnmálafræðingurinn Silja Bára Ómarsdóttir er ein þriggja kvenna sem varð í upphafi mánaðar prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Silja hefur komið víða við á ferlinum en þótt hún hafi svo sannarlega notið þess að kenna hafi það ekki verið upphaflegt markmið hennar.

Aflýsir landsþingi Repúblikana: „Ekki rétti tíminn“
Landsþingið átti að fara fram í ágúst en Trump ákvað að aflýsa viðburðinum til þess að leggja ekki stuðningsmenn í hættu. Landsþing Demókrata fer enn fram í ágúst en flokkurinn ákvað snemma að fundurinn færi að mestu fram í gegnum fjarskiptabúnað.

Neitar að svara því hvort hann muni virða kosningaúrslit
Donald Trump Bandaríkjaforseti neitar að svara því hvort hann muni virða úrslit forsetakosninganna í nóvember ef hann tapar þeim. Hann segist einfaldlega þurfa að sjá til með það.

Hæstiréttur Bandaríkjanna neitar að binda enda á DACA-úrræðið
Meirihluti dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna sagði ríkisstjórn Trumps ekki hafa gefið fullnægjandi ástæður fyrir því að binda eigi enda á úrræðið sem um 700 þúsund innflytjendur nýta sér.

Öldungar berjast: Staða Biden sterkari en Clinton
Hinn 77 ára gamli Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, hefur á undanförnum vikum mælst með meira fylgi heldur en Donald Trump, hinn 74 ára gamli Bandaríkjaforseti. Stjórnmálafræðingarnir Silja Bára Ómarsdóttir og Hafsteinn Birgir Einarsson segja enn langt í kosningar. Staða Biden sé þó sterkari en forvera hans, Hillary Clinton, á sama tíma árið 2016.

Áframhaldandi mótmæli og óeirðir víða um Bandaríkin
Gífurlegur fjöldi fólks heldur áfram að safnast saman til að mótmæla dauða George Floyd og stigmagnast ástandið með degi hverjum. Bandaríkjaforseti var myrkur í ávarpi sínu til Bandaríkjamanna í gær. Embættismenn hafa áhyggjur af hegðun forsetans. Mikil samstaða ríkir víða um heim.

Demókratar og Repúblikanar takast á um efnahagsaðgerðir
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti stóran efnahagspakka til að bregðast við áhrifum COVID-19 en öldungadeildin og Trump hafa lýst því yfir að þau muni hafna pakkanum. Búist er við að hundrað þúsund manns látist fyrir 1. júní af völdum COVID-19.

COVID-19 verri „árás“ en árásirnar á Tvíburaturnana og Pearl Harbor
Trump hefur lengi haldið því fram að Kína hefði getað stöðvað faraldurinn í fæðingu en rúmlega 1,2 milljón manns hafa smitast af COVID-19 í Bandaríkjunum og 73 þúsund látist. Yfirvöld í Kína halda því fram að með því að skella sökinni yfir á Kína sé forsetinn að draga athygli frá sínum eigin mistökum.

Joe Biden segist saklaus: „Þetta gerðist aldrei“
Fyrrverandi samstarfskona Joe Biden steig fram á dögunum og sakaði hann um kynferðisofbeldi fyrir 27 árum. Biden hefur nú gefið út yfirlýsingu þar sem hann lýsir yfir sakleysi sínu.

Bandaríkjamenn að skilja eftir sig tómarúm á alþjóðavettvangi
Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir ljóst að Bandaríkin séu að skilja eftir sig tómarúm á alþjóðavettvangi í forrystuhlutverki.

Aflétta COVID-19 bönnum í skugga þrýstings frá Bandaríkjaforseta
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hvatti í dag borgara í þremur ríkjum til borgaralegrar óhlýðni vegna COVID-19 boða og banna. Í kvöld tilkynnti hann að nokkur ríki hyggðust aflétta slíkum boðum en fullyrti að það yrði gert á öruggan hátt.

Trump stöðvar greiðslur Bandaríkjanna til WHO
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að hætta að styrkja Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, WHO, vegna slæms árangurs stofnunarinnar í viðbrögðum sínum við kórónaveirunni.

Jafnvægi nauðsynlegt á kjörseðli Demókrata
Eftir að ljóst er orðið að Bernie Sanders og Joe Biden munu tveir keppa um útnefningu Demókrata fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, er umræða um möguleg varaforsetaefni þeirra komin á flug. Konur þykja líklegar.

Joe Biden vann níu af fjórtán fylkjum í forvali Demókrata
Fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna var með ótrúlega endurkomu í baráttunni um að verða forsetaefni Demókrata en Biden vann stórsigur á stærsta kjördegi forkosninganna í nótt.

Forkosningar eftir í fjölda stórra ríkja
Þótt stærsti kjördagur forkosninga í Bandaríkjunum sé liðinn á enn eftir að kjósa í risaríkjum eins og Flórída, New York, Michigan og Pennsylvaníu. Í flestum stóru ríkjunum sem eftir eru lagði Clinton Sanders í forkosningunum 2016. Landsþingið fer fram í júlí.

Segja dómsmálaráðherra Bandaríkjanna íhuga að segja af sér
Haft er eftir heimildarmönnum tengdum Trump að Barr íhugi að segja af sér en talsmaður dómsmálaráðherrans segir svo ekki vera.

Dr. Silja Bára á framboðsfundum Demókrata: „Pólitísk veisla“
Stjórnmálafræðingurinn Dr. Silja Bára Ómarsdóttir er nú stödd í Bandaríkjunum að upplifa pólitíska veislu í forvali Demókrata.

Trump ver uppsagnir
Donald Trump hefur í kvöld varið þá ákvörðun sína að segja upp tveimur starfsmönnum sem vitnuðu gegn honum í réttarhöldunum yfir honum. Orðrómur er uppi um að hann ætli að segja fleiri starfsmönnum upp nú þegar hann hefur verið sýknaður.

Donald Trump sýknaður
Donald Trump hefur verið sýknaður af ákærum um að hafa hindrað framgang réttvísinnar og að hafa misnotað vald sitt í Úkraínuhneykslinu svonefnda.

Buttigieg efstur í Iowa
Þegar 62 prósent atkvæða hafa verið talin í forvali Demókrataflokksins í Iowa er Pete Buttigieg með tæplega tveggja prósenta forskot á Bernie Sanders.

Forkosningar Demókrata fóru brösulega af stað: Ósamræmi úrslita í Iowa
Úrslitin í forvali frambjóðenda Demókrata í Iowa liggja enn ekki fyrir þar sem ósamræmi var í úrslitum frá þremur kjördæmum.

Hvíta húsið birtir málsvörn forsetans
Donald Trump fer fram á að ákærum á hendur honum fyrir embættisglöp verði vísað frá. Ekki hafi verið sýnt fram á að hann hafi framið neina glæpi og hætta sé á að slíkar ákærur verði í framtíðinni notaðar í pólitískum tilgangi.

Segir Netanjahú rasista sem útilokar frið í Mið-Austurlöndum
Beto O'Rourke, fyrrverandi fulltrúadeildarþingmaður og nú frambjóðandi í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar 2020, segir að Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, útiloki möguleikann á friði í Mið-Austurlöndunum.

Kveðst ekki hafa hagað sér ósæmilega í kringum konur
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, segir að hann hafi aldrei hagað sér með ósæmilegum hætti í kringum konur. Ásakanir þess efnis hafa verið bornar á hann að undanförnu en hann hefur nú rofið þögnina.

Hótar að loka landamærum við Mexíkó
Forseti Bandaríkjanna hefur hætt neyðaraðstoð til þriggja ríkja í Mið-Ameríku og hótar að loka landamærum við Mexíkó ef að flóttamönnum fækkar ekki. Metfjöldi hælisleitenda kom til Bandaríkjanna í marsmánuði.