Íþróttafréttamaðurinn Víðir Sigurðsson ritar beittan Bakvörð í Morgunblaðinu, þar sem hann gagnrýnir stöðu mála á þjóðarhöll- og leikvangi íslenskra landsliða harðlega.
„Sú stund þegar Ísland þarf að spila sinn fyrsta heimaleik á erlendri grundu nálgast hægt og bítandi. Við vitum ekki nákvæmlega enn þá í hvaða íþróttagrein það verður,“ skrifar Víðir.
Umræðan um þjóðarhöll og þjóðarleikvang í Laugardal nær ansi langt aftur. Ljóst er að bæta þarf aðstöðu íslensks landsliðsfólks sem fyrst.
Á dögunum kynntu ríki og borg áætlanir um að reisa nýja fimmtán milljarða þjóðarhöll. Vonir standa til um að framkvæmdir hefjist á næsta ári og ljúki í árslok 2025.
„Nægja áætlanir um nýja þjóðarhöll til þess fá undanþágur fyrir heimaleikina í handbolta og körfubolta næstu tvö árin? Og verður sú ágæta höll komin af teikniborðinu og orðin að veruleika eftir þrjú ár? Verður hægt með einhverjum dýrum töfrabrögðum að spila umspilsleiki í fótbolta á Laugardalsvellinum í mars árin 2026 eða 2027?“ spyr Víðir.
Víðir bendir á frábæra aðstöðu í fremur smáum bæum í Svíþjóð og Noregi.
„Hvers vegna í ósköpunum er sambærileg aðstaða ekki komin hér á landi fyrir löngu síðan? Árið er 2023 og ekki einu sinni búið að taka skóflustungu. Staðan í þessum málum er landi og þjóð til skammar. Það er gömul tugga. En þegar að því kemur að Ísland spilar heimaleik í Þórshöfn í Færeyjum eða Kristianstad í Svíþjóð verður það einhver mesta niðurlæging Íslandssögunnar.“