Rebekah Vardy tapaði meiðyrðamáli sem hún höfðaði gegn Coleen Rooney, eiginkonu ensku knattspyrnugoðsagnarinnar Wayne Rooney. Coleen hafði áður sakað Vardy um að hafa lekið upplýsingum um einkalíf Rooney fjölskyldunnar til slúðurblaðsins The Sun. Dómari í málinu kvað upp úrskurð sinn fyrr í dag.
Að mati dómara í málinu verður það að teljast líklegt að Caroline Watt, umboðsmaður Rebekuh Vardy hafi tekið við upplýsingum um einkalíf Rooney fjölskyldunnar og komið þeim áfram/selt þær til The Sun.
,,Sönnunargögnin benda hins vegar skýrmerkilega til þess að Vardy hafi vitað af þessum gjörðum umboðsmannsins. Það sýna meðal annars skilaboð þeirra á milli á samfélagsmiðlinum Instagram," sagði dómarinn sem kvað upp úrskurð sinn í málinu.
Deilur kvennanna tveggja hafa staðið yfir í langan tíma en Rebekah ákvað að fara með málið fyrir dómstóla eftir að Coleen ásakaði hana um að leka upplýsingum um einkalíf hennar til breska slúðurmiðilsins The Sun. Málið hefur teygt anga sína inn í umhverfi enska boltans en Rebekah er eiginkona Jamie Vardy, framherja enska úrvalsdeildarfélagsins Leicester City.
Coleen greindi opinberlega frá ásökunum sínum í Twitterfærslu í október árið 2019 þar sem hún sagðist hafa haft grun um að Rebekah hafi verið að leka upplýsingum um einkalíf sitt til The Sun.
Rooney fylgdist náið með Instagram reikningi sínum og setti inn efni sem aðeins vinir og vandamenn fengu aðgang að, þar með talið Rebekah Vardy. Hún segist smám saman hafa fækkað í þeim hópi sem sá efnið sem hún setti inn þar til að Rebekah Vardy stóð ein eftir.