Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu segir Birki Bjarnason enn hafa mikið fram að færa í íslenska landsliðinu, hann sé þó í erfiðri stöðu hjá félagsliði sínu í Tyrklandi og því er hann ekki hluti af landsliðinu í komandi verkefni þess.

Arnar ræddi við Birki, sem er ekki í landsliðshópi Íslands fyrir fyrstu leiki liðsins í undankeppni EM í næstu viku og sammældust þeir um að þetta yrði staðan í þetta skiptið.

„Við Birkir ræddum auðvitað saman. Hann er í svolítið erfiðri stöðu hjá sínu félagsliði í Tyrklandi, er að spila lítið, miklu minna en hann vonaðist eftir, og er að reyna að losna frá félaginu en það hefur tekið tíma.

Vegna þeirrar stöðu sem hann er í þá vorum við sammála um að hann yrði ekki með að þessu sinni. Birkir er leikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi og hefur enn mikið fram að færa, mikla og ómetanlega reynslu sem nýtist liðinu bæði innan og utan vallar, og hann er þannig leikmaður og karakter að hann setur hagsmuni landsliðsins fram yfir sína eigin.“