Arsenal festi í gær kaup á miðju­manninum Jorgin­ho sem var á mála Chelsea. Jorgin­ho er reynslu­mikill leik­maður sem reyndi snemma fyrir sér hjá fé­lags­liðinu Hellas Verona í öðru landi en hann var alinn upp í. Í Verona hitti hann fyrir Emil Hall­freðs­son, at­vinnumann í knattspyrnu og fyrrum lands­liðs­mann sem tók hann undir sinn verndar­væng.

Það er við hæfi að rifja upp sögu Emils af kynnum sínum við Jorgin­ho hjá Hellas Verona en Emil sagði þá sögu í hlað­varps­þætti Snorra Björns­sonar árið 2018.

Þrátt fyrir að Jorgin­ho hafi á sínum ferli spilað fyrir ítalska lands­liðið er hann alinn upp í Brasilíu en fór þaðan 15 ára gamall og hélt til Verona á Ítalíu. Þar skrifaði hann undir samning við Hellas Verona en Emil var leik­maður fé­lagsins á þeim tíma.

„Ég tók hann að mér í byrjun,“ segir Emil um kynni sín af Jorgin­ho. „Hann kemur til Verona 15 ára gamall og er bara með ein­hverjar 20 evrur á viku í laun hjá fé­laginu og býr inn á ein­hverri fjöl­skyldu. Þetta var ekkert djók, 15 ára gamall kemur hann til fé­lagsins og mér fannst erfitt að fara í at­vinnu­mennsku 20 ára gamall.“

Jorginho á sínum yngri árum hjá Hellas Verona
Fréttablaðið/GettyImages

Tuttugu evrur jafn­gilda um 3 þúsund ís­lenskum krónum á nú­virði og því ljóst að hinn ungi Jorgin­ho hafði ekki úr miklu að moða á sínum tíma.

„Jorgin­ho fer 15 ára gamall frá Brasilíu til Ítalíu. Ég kynnist honum þegar að hann var 18 ára. Þá hafði hann farið á láni til fé­lags í neðri deildunum og ég man hvað mér fannst hann góður. Þetta var góður gaur og ég sá hvað hann hafði mikinn metnað.

Ég byrjaði smátt og smátt að hjálpa honum, taka hann að mér og man þegar að ég bauð honum í fyrsta skipti að koma heim. Það var vegna þess að hann átti ekki pening fyrir Inter­neti. Ég gaf honum net­punginn minn svo hann gæti hið minnsta farið á Inter­netið og talað við fjöl­skylduna sína í Brasilíu og svona. Pældu í því.“

Emil segir að Jorgin­ho hafi ekki alltaf fengið sénsinn hjá Hellas Verona.

„En ég átti í góðu sam­bandi við þjálfarann okkar hjá fé­laginu, hann bjó meðal annars fyrir ofan mig. Hann kallaði stundum á mig upp og vildi fá álit mitt á því hvernig hann ætti að stilla upp liðinu. Ég man að ég sagði við hann í eitt skipti að hann yrði að láta þennan Jorgin­ho spila. Ég man bara að ég sagði við hann ´hann verður að spila, hann er hrika­lega góður´ og á endanum gaf hann honum sénsinn.“

Emil segir að baulað hefði verið a Jorgin­ho í fyrstu tveimur leikjum hans.

„Í kjöl­far þess vitum við hvað gerðist, the rest is history.“

Jorginho átti eftir að ná langt
Fréttablaðið/GettyImages

Glæsi­legur knatt­spyrnu­ferill

Úr varð að að Jorgin­ho átti eftir að vekja tölu­verða at­hygli fyrir spila­mennsku sína hjá Hellas Verona. Það varð til þess að ítalska stór­liðið Napoli kaupir hann í janúar árið 2014.

Hjá Napoli varð Jorgin­ho að fram­úr­skarandi leik­manni og varð meðal annars ítalskur bikar­meistari með liðinu tíma­bilið 2013/2014. Hann spilaði 160 leiki fyrir fé­lagið, skoraði 6 mörk og gaf 14 stoð­sendingar.

Fram­ganga hans hjá Napoli átti eftir að veita Jorgin­ho annað skref upp á við á hans knatt­spyrnu­ferli því árið 2018 kom kallið frá enska úr­vals­deildar­fé­laginu Chelsea.

Hjá Chelsea vann Jorgin­ho Evrópu­deildina árið 2019, Meistara­deild Evrópu 2021 og Heims­meistara­keppni fé­lags­liða í fyrra. Jorgin­ho spilaði 213 leiki fyrir Chelsea, skoraði 29 mörk og gaf 9 stoð­sendingar.

Þá á Jorgin­ho að baki 46 A-lands­leiki fyrir Ítalíu en há­punktur hans á lands­liðs­ferlinum til þessa kom árið 2021 þegar Ítalía varð Evrópu­meistari. Jorgin­ho var valinn besti miðju­maður mótsins.

Evrópumeistari með Ítalíu árið 2021
Fréttablaðið/GettyImages