West Ham hefur sett nokkra stuðningsmenn félagsins í bann frá leikjum liðsins eftir að þeir tóku upp kókaín á leik liðsins á dögunum.

Myndband af stuðningsmönnum West Ham að setja kókaín á skallann á einum og taka það hefur nú farið í dreifingu.

Nokkur fjöldi karlmanna er þar saman og einn þeirra mætir og tekur kókaínið í nefið sitt.

Fjallað hefur verið um aukna eiturlyfjanotkun á leikjum í enska boltanum og ólæti eftir að takmarkanir vegna COVID-19 féllu úr gildi og fólk mátti mæta aftur á völlinn.

Mennirnir á myndbandinu verða að taka næstu leiki West Ham í sjónvarpinu eftir þá ákvörðun að rífa upp kókaín á London Stadium vellinum.