Gunnar Nel­son mæti Banda­ríkja­manninum Bry­an Bar­berena á UFC 286 bar­daga­kvöldinu sem fram fer í O2 höllinni í Lundúnum á morgun. Sýnt verður frá bar­daga­kvöldinu á streymis­veitunni Viaplay.

Upp­hitunar­bar­dagar kvöldsins hefjast klukkan 17:00 á morgun en aðal­hluti bar­daga­kvöldsins hefst síðan klukkan 21:00.

Þar er bar­dagi Gunnars og Bar­berena sá þriðji í röðinni og gera má ráð fyrir því að hann fari fram milli klukkan 22:00 og 23:00 en það veltur samt sem áður á því hversu lengi fyrstu tveir bar­dagar aðal­hlutans standa yfir.

Hér má sjá dag­skrá bar­daga­kvölds UFC sem vef­síðan MMA fréttir hefur tekið saman:

Aðalhluti bardagakvöldsins (hefst kl. 21:00)

Veltivigt: Leon Edwards gegn Kamaru Usman
Léttvigt: Justin Gaethje gegn Rafael Fiziev
Veltivigt: Gunnar Nelson gegn Bryan Barberena
Fluguvigt kvenna: Jennifer Maia gegn Casey O’Neill
Millivigt: Marvin Vettori gegn Roman Dolidze     

ESPNews / ESPN+ upphitunarbardagar (hefjast kl. 19:00)

Fjaðurvigt: Jack Shore gegn Makwan Amirkhani
Léttvigt: Chris Duncan gegn Omar Morales
Léttvigt: Sam Patterson gegn Yanal Ashmoz
Fluguvigt: Muhammad Mokaev gegn Jafel Filho

ESPN+ / UFC Fight Pass upphitunarbardagar (hefjast kl. 17:00)

Fjaðurvigt: Lerone Murphy gegn Gabriel Santos
Millivigt: Christian Leroy Duncan gegn Duško Todorović
Fluguvigt: Malcolm Gordon gegn Jake Hadley
Fluguvigt kvenna: Joanne Wood gegn Luana Carolina
Léttvigt: Jai Herbert gegn Ľudovít Klein
Fluguvigt kvenna: Juliana Miller gegn Veronica Macedo