Íslenska handboltagoðsögnin Guðjón Valur Sigurðsson er að selja íbúð sína í Garðabænum, nánar til tekið í Urriðaholti.
Íbúðin sem um ræðir er björt og rúmgóð, 128 fm og með fjórum herbergjum. Hún kostar 86,9 milljónir.
Hún er staðsett á 2. hæð í þriggja hæða lyftuhúsi og þar er gott útsýni.
Guðjón Valur lagði skóna á hilluna árið 2020. Hann lék síðast með Paris Saint-Germain í Frakklandi. Kappinn gerði þá garðinn frægan með liðum á borð við Barcelona, Kiel og Rhein-Neckar Löwen.
Í dag er Guðjón Valur þjálfari Gummersbach.

Fasteignaljósmyndun

Fasteignaljósmyndun

Fasteignaljósmyndun

Fasteignaljósmyndun

Fasteignaljósmyndun

Fasteignaljósmyndun

Fasteignaljósmyndun

Fasteignaljósmyndun

Fasteignaljósmyndun
Fleiri myndir má nálgast hér.