Greg Halford, sem á að baki feril í ensku úrvalsdeildinni, birti myndband á Twitter um helgina sem hefur vakið mikla athygli. Þar hefnir hann sín á fyrrverandi kærustu sinni með því að kasta eigum hennar út um gluggann.
Halford er 38 ára gamall og á feril að baki með félögum á borð við Wolves, Reading, Portsmouth, Brighton og Sunderland, auk fjölda annara. Í dag er hann hjá Hashtag United í ensku utandeildinni.
Hann segir fyrrverandi kærustu sína hafa haldið framhjá sér og hefndi hann sín með því að kasta eigum hennar út um gluggann á heimili hans.
Athæfi hans hefur vakið mikla athygli og fengið umfjöllun víða.
Myndbandið sem um ræðir má sjá hér að neðan.
Been far far to long but finally clearing out the cheating c**t ex stuff. 🙌 pic.twitter.com/HGAzfgcCx4
— Greg Halford (@GregHalford15) January 21, 2023