Í hraðprófi sem tekið var í morgun greindist Vignir Stefánsson með jákvætt próf og er beðið eftir niðurstöðu PCR prófs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSÍ.
PCR próf liðsins í gærkvöldi voru öll neikvæð ef frá eru taldir þeir 10 sem voru í einangrun.
Tíu leikmenn og einn starfsmaður liðsins hafa þá greinst síðustu daga en Björgvin Páll Gústavsson losnaði í dag úr einangrun.
Ísland mætir Króatíu klukkan 14:30 í dag.