Í gær birtust fréttir af samskiptum Gísla Eyjólfssonar, leikmanns Breiðabliks, við Jónínu Guðbjörgu Guðbjartsdóttur ljósmyndara Fótbolta.net, sem starfaði á leik liðsins gegn Leikni í Breiðholti í gær. Breiðablik gaf í gærkvöldi út yfirlýsingu vegna málsins.
Leiknum lauk með 2-0 sigri Leiknismanna en í stöðunni 1-0 fór téður Gísli af velli vegna höfuðhöggs á 43. mínútu. Kappinn þurfti að fara á sjúkrahús vegna höggsins.
Á hann að hafa veist að Jónínu með fúkyrðum á leið sinni af vellinum, en Fótbolti.net sagði frá þessu í gær.
Breiðablik segir Gísla ekki hafa verið með réttu ráði eftir höfuðhöggið og fordæmir skrif Fótbolta.net af atvikinu. „Gísli man ekkert eftir atvikum á vellinum eftir höfuðhöggið, hvorki orðaskiptum eða öðru. Þegar hann var kominn upp á sjúkrahús og var sagt frá atvikum, hringdi hann í ljósmyndarann og bað hana afsökunar á sinni framkomu. Hún tók við því og samþykkti afsökunarbeiðnina.
Fulltrúar Breiðabliks reyndu að útskýra málsatvik fyrir fréttaritara eftir að skrifin birtust með afar litlum árangri.“
Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Breiðabliks
Á síðunni Fótbolti punktur net birtist fyrr í kvöld frétt þess efnis að Gísli Eyjólfsson, leikmaður Breiðabliks hefði sýnt Jónínu Guðbjörgu Guðbjartsdóttur, ljósmyndara miðilsins, dónaskap.
Vegna þessa er nauðsynlegt að fara yfir málavexti. Í leik milli Leiknis og Breiðabliks fékk Gísli þungt höfuðhögg. Þegar sjúkraþjálfarinn kom að honum inn á velli, var hann ekki með sjálfum sér, talaði hálfsamhengislaust og var óstöðugur á fæti. Á leið út af velli sýndi Gísli ljósmyndaranum óviðeigandi framkomu og biður knattspyrnudeild Breiðabliks Jónínu afsökunar á þeirri hegðun.
Gísli man ekkert eftir atvikum á vellinum eftir höfuðhöggið, hvorki orðaskiptum eða öðru. Þegar hann var kominn upp á sjúkrahús og var sagt frá atvikum, hringdi hann í ljósmyndarann og bað hana afsökunar á sinni framkomu. Hún tók við því og samþykkti afsökunarbeiðnina.
Knattspyrnudeild Breiðabliks fordæmir skrif fréttaritara Fotbolta punktur net, sem ekki var á leiknum, af atvikinu og af hversu mikilli léttúð er fjallað um alvarlegt höfuðhögg okkar leikmanns og þess að hann var sendur beint upp á spítala.
Fulltrúar Breiðabliks reyndu að útskýra málsatvik fyrir fréttaritara eftir að skrifin birtust með afar litlum árangri.
Við fögnum fréttaflutningi af fótbolta og kveinkum okkur ekki yfir gagnrýni, en svona skrif er ekki hægt að láta liggja. Gísli Eyjólfsson á það ekki skilið né nokkur annar leikmaður sem lendir í svipuðum atvikum eða meiðslum.
Að lokum ítrekum við afsökunarbeiðni okkar í knattspyrnudeild Breiðabliks til Jónínu.
Flosi Eiríksson
Formaður knattspyrnudeilar Breiðabliks