Í hraðprófi sem tekið var í morgun greindust Elliði Snær Viðarsson og Björgvin Páll Gústavsson með jákvæð próf og er beðið eftir niðurstöðu PCR prófs. Björgvin Páll er því kominn aftur í einangrun meðan beðið er eftir frekari niðurstöðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSÍ.
PCR próf liðsins í gærkvöldi voru öll neikvæð ef frá eru taldir þeir 11 sem voru í einangrun.
Ellefu leikmenn og einn starfsmaður liðsins hafa þá greinst síðustu daga.
A landslið karla | Nýtt smit hjá Íslandi
— HSÍ (@HSI_Iceland) January 25, 2022
Í hraðprófi sem tekið var í morgun greindust Elliði Snær Viðarsson og Björgvin Páll Gústavsson með jákvæð próf og er beðið eftir niðurstöðu PCR prófs.https://t.co/66TQW5GIAn