Lindarhvolsmálið var flutt í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Við vitnaleiðslur málsins opnaðist ormagryfja spillingar og vanhæfni á æðstu stöðum íslensks stjórnkerfis.
Í vitnisburði Steinars Þórs Guðgeirssonar, sem annaðist daglegan rekstur Lindarhvols í umboði stjórnar og sat auk þess í stjórn Klakka fyrir hönd félagsins, kom fram að sem stjórnarmaður í Klakka hafi honum einhvern veginn tekist að leiða hjá sér allar upplýsingar um fjárhagslega stöðu félagsins og ekki haft minnstu hugmynd um rekstur Lýsingar, sem var helsta eign Klakka.
Stjórn Lindarhvols virðist ekki hafa gert neinar athugasemdir við að Steinar Þór, samkvæmt hans eigin framburði, kynnti sér ekki á nokkurn hátt fjárhagslega stöðu Klakka. Var hann þó skipaður í stjórnina til að gæta hagsmuna Lindarhvols, samkvæmt yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu.
Önnur vitni lýstu því að söluferli Klakka, sem tekist er á um í Lindarhvolsmálinu, hefði verið frábrugðið öðrum söluferlum sem þau þekktu til. Söluferlið var kallað „sjoppulegt“ og gerólíkt því sem tíðkast almennt. Því var lýst hvernig viðmót Lindarhvols gagnvart tilteknum bjóðanda í opnu útboði á Klakka hefði verið á þann veg að Lindarhvoli hefði þótt nánast til trafala að aðilinn væri að bjóða í Klakka.
Steinar Þór Guðgeirsson og stjórn Lindarhvols virðast hafa reynt að hamla starfi Sigurðar Þórðarsonar, fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda um málefni Lindarhvols, með því að hindra aðgang hans að gögnum. Þurfti hann af þessum sökum að afla gagna í gegnum slitabúin.
Sigurður lýsti því að sama tregða hefði verið til staðar hjá Seðlabankanum sem hefði borið við bankaleynd og neitað honum, sem ríkisendurskoðanda, um gögn og aðeins afhent þau seint og um síðir.
Sigurður sagði að spyrja mætti hvers vegna fjármálaráðuneytið hefði stofnað eignarhaldsfélagið Lindarhvol.
Sigurður staðfesti að Klakki hefði verið seldur á miklu undirverði, en fram kom í málinu að í júní 2016 fékk stjórn Klakka verðmat frá Deloitte um að verðmæti félagsins væri um milljarður króna. Í október það ár var gengið frá sölu til félags á vegum forstjóra og fjármálastjóra Klakka upp á helming þeirrar fjárhæðar. Sigurður greindi frá því að verðmat Deloitte hefði verið í samræmi við hans eigið verðmat.
Sigurður Þórðarson gerði grein fyrir þessum atriðum og fleirum í greinargerð til Alþingis 17. febrúar 2021. Í greinargerðinni gerir hann alvarlegar athugasemdir við að umfangsmikil störf Steinars Þórs Guðgeirssonar á vegum stjórnar Lindarhvols hafi farið í bága við kröfur um aðskilnað starfa, ábyrgðar og innra eftirlits sem vera hefði átt til staðar.
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, hefur neitað að birta umrædda greinargerð. Með því sveipar Birgir leyndarhjúp um spillingu og vanhæfni í æðstu lögum íslenskrar stjórnsýslu. Mikilvægt er að rannsaka starfsemi Lindarhvols frekar, annaðhvort á vegum Alþingis eða saksóknara.