Í tilkynningu frá Valitor segir að þessi niðurstaða sé í samræmi við væntingar stjórnenda og þetta sé í fyrsta sinn frá árinu 2017 sem Valitor skilar hagnaði á heilu ári. Unnið hafi verið markvisst að því að hagræða og einfalda rekstur félagsins á liðnum árum, samþætta grunnkerfi og auka skilvirkni.

Heildartekjur félagsins námu um 14,3 milljörðum króna og jukust um 2,5 prósent á milli ára. Heildarrekstrarkostnaður félagsins dróst saman um tæplega 1,2 milljarða á milli ára. Launakostnaður dróst saman um 350 milljónir króna og annar rekstrarkostnaður ásamt afskriftum lækkaði um 850 milljónir króna.

Valitor er skuldlaust félag og nam eigið fé þess 7,7 milljörðum króna í lok árs. Valitor mun halda áfram að leggja áherslu á skilvirkni í rekstri ásamt því að byggja upp sterk viðskiptasambönd við viðskiptavini og samstarfsaðila, segir í tilkynningunni

Arion banki, eigandi Valitor, samdi um sölu á Valitor til fjártæknifélagsins Rapyd 1. júlí 2021, en salan bíður samþykkis frá Fjármálaeftirlitinu og Samkeppniseftirlitinu.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Valitor:

„Það er ánægjulegt að sjá árangur af þeim hagræðingaraðgerðum sem við höfum þurft að ráðast í á liðnum árum og eru að skila sér í bættri afkomu Valitor. Þær aðgerðir hafa tekið á bæði stjórnendur og starfsmenn á sama tíma og félagið hefur tekist á við þau áhrif sem kórónuveiru-faraldurinn hefur haft á reksturinn. Fram undan eru áskoranir sem meðal annars fela í sér auknar varnir, uppfærslu á tæknibúnaði og frekari vöxt samhliða bættu vöruframboði. Með bættum rekstri erum við betur í stakk búin til að takast á við þær áskoranir og við horfum til ársins 2022 full tilhlökkunar með okkar öfluga starfsfólki.“