Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðssérfræðingur hjá Krónunni, byrjar alla morgna á að kveikja á Spotify og dansa. Hún býr á Álftanesi og oftar en einu sinni hefur óboðinn hestur komið í heimsókn í garðinn.
Hvað felst í starfi þínu hjá Krónunni?
Hjá Krónunni vinn ég með frábæru markaðsteymi og sinni skemmtilegum verkefnum sem snúa bæði að innri og ytri markaðssetningu í fyrirtækinu. Vinnustaðurinn er líflegur og ómetanlegt að því sé oftast tekið fagnandi þegar öðruvísi hugmyndir skjóta upp kollinum. Í Krónunni leggjum við okkur fram við að miðla skemmtilegum og óvenjulegum markaðsskilaboðum til viðskiptavina. Markaðsdeild Krónunnar vinnur eins og lítil auglýsingastofa með risastórt hjarta.
Á þeim tveimur árum sem ég hef unnið hjá Krónunni hefur starfið mitt þróast og breyst töluvert. Ég hef fengið tækifæri til að vaxa og setja á mig ýmsa mismunandi hatta. Ég vinn við efnissköpun fyrir alla miðla, stefnumótun og framkvæmd markaðsherferða, stýri samfélagsmiðlum og birtingum, hef tekið virkan þátt í þróun Snjallverslunar sem við komum í gagnið á síðasta ári, langt á undan áætlun, til að mæta gífurlegri þörf á heimsendingu í heimsfaraldrinum. Einnig sé ég um viðburðastjórnun og samningagerð ásamt fjölmörgum öðrum stórskemmtilegum verkefnum. Með alla þessa bolta á lofti og í lifandi starfsumhverfi tel ég mikilvægt að læra að verða „kamelljón“, er fljót að skipta um lit, taka vel í breytingar og aðlagast þeim auðveldlega. Núna leysi ég til dæmis líka af í þeim verkefnum sem snúa að umhverfismálum en Krónuhjartað brennur fyrir þeim.
Ég ætla aldrei að hætta að leika mér.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Ég er nýsmituð af utanvegahlaupa-bakteríunni. Það er líka ákveðin hugleiðsla og núllstilling að reima á sig skóna og fara út að hlaupa með besta vininum. Ég ætla aldrei að hætta að leika mér. Ég tek mig ekki of alvarlega og finnst fátt skemmtilegra en að leika við strákana mína tvo. Hvort sem það er að rúlla á hjólabretti, moka úti í sandkassa eða að húlla með þeim. Ég er að spá að gefa sjálfri mér nýja hjólaskauta í sumargjöf. Af hverju ekki?
Ég er mikill extróvert og finnst fátt skemmtilegra en að hitta vini og fjölskyldu sem hefur verið erfitt síðastliðið ár. Mér þykir líka gaman að elda og að það að vinna í Krónunni hefur bara ýtt undir þann áhuga. Ég elda þó sjaldan eftir uppskriftum, því ég á það til að missa þolinmæði að lesa mig í gegnum þær, ég lít því á matargerð eins og listaverk, dass af þessu, dass af hinu og útkoman getur orðið stórfengleg... nú eða ekki. Megið spyrja manninn minn.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig?
Það er erfitt að nefna eina bók, því ég les og hlusta mjög mikið á hljóðbækur. Litla ég hefði sagt Harry Potter en „stóra“ ég (159 cm) verð eiginlega að segja Untamed eftir Glennon Doyle sem ég las á síðasta ári. Hún vakti eitthvað innra með mér. Mér fannst hún eitthvað svo hressandi hrá, hugrökk, sönn og einlæg.
Ég tel að það kveiki á sköpunargleðinni að dansa inn í daginn.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Ég byrja alla daga á því að kveikja á Spotify og dansa. Ég tel að það kveiki á sköpunargleðinni að dansa inn í daginn. Auk þess er það frábær leið við að vekja strákana mína tvo sem eru á leikskólaaldri. Síðan viðra ég hundinn áður en ég fæ mér rjúkandi kaffibolla, klæði strákana á ljóshraða og bruna í vinnuna.
Hvar sérðu þig eftir 10 ár?
Alandi upp tvo unglingsstráka en vonandi ennþá að leika mér. Mögulega komin á svifbretti? Hver veit?
Hvers hlakkar þú mest til þessa dagana?
Þar sem fáir viðburðir hafa verið í boði síðasta árið þá hlakka ég mikið til brúðkaups systur minnar, sem er í byrjun júní. Það er fátt skemmtilegra en að koma saman og fagna ástinni.
Helstu drættir
Nám: Ég er í miðju meistaranámi í markaðsfræði við Bifröst samhliða vinnu. Lauk stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2014. Fór í skiptinám í alþjóðasamskiptum við University of Sussex í Brighton, Englandi.
Starf: Ég starfa sem sérfræðingur í markaðsdeild Krónunnar en finnst „markaðs-ninja” mun skemmtilegri starfstitill. Ég hef unnið hjá Krónunni í tvö ár en sá tími hefur verið lærdómsríkur enda enginn dagur eins. Minn fókus er að ná að fanga athygli viðskiptavina, enda teljum við hjá Krónunni mikilvægt að leggja áherslu á virka hlustun við viðskiptavini og að láta verða af óskum þeirra.
Fjölskylduhagir: Ég bý á Álftanesi með manninum mínum; rafíþróttanördinu Arnari Hólm, strákunum okkar tveimur, Eldi og Stormi, og hundinum Bósa. Það eru forréttindi að búa í „sveitinni“ sem Álftanesið er. Þar er ákveðin ró en það er líka fyndið að hafa lent í því að fá óboðinn hest (já hest) í heimsókn í garðinn oftar en einu sinni, nú eða að vakna við hanagal.