Athafnamaðurinn Skúli Mogensen og fjölskylda munu opna ný sjóböð í Hvalfirði þann 16. júlí.
Hvammsvík og gamla náttúrulaugin þar hafa lengi verið vinsæll staður fyrir ferðamenn og aðra gesti, en með nýju sjóböðunum fjölgar laugum og eru nú alls átta laugar með mismunandi hitastigi. Tólf ára aldurstakmark er fyrir gesti í sjóböðin.
Hönnun sjóbaðanna tók mið af náttúrunni og sögunni, til að mynda er þjónustuhúsið byggt á gömlum braggagrunni frá stríðsárunum.
"Við fjölskyldan erum mjög spennt að opna sjóböðin fyrir gesti og leyfa sem flestum að njóta Hvammsvíkur með okkur. Það er fátt betra fyrir líkama og sál en að vera úti í náttúrunni og njóta. Við segjum gjarnan að það sé ekki hægt að keppa við náttúruna og það á svo sannarlega vel við í Hvammsvíkinni," segir Skúli Mogensen stofnandi Hvammsvíkur Sjóbaða.
Hann segir að það séu forréttindi að geta gengið um fjöll svo nálægt Reykjavík og endað svo í heitum sjóböðum eða í köldum sjónum.
„Við höfum verið ótrúlega heppin að vinna með frábæru fagfólki á öllum sviðum að því að gera þennan draum að veruleika og ég hlakka til að taka á móti gestum og bjóða þá velkomna í Hvammsvík Sjóböð“, segir Skúli.
Sjóböðin verða opin daglega frá klukkan 11-22. Til að tryggja sem besta upplifun fyrir gesti og varðveita náttúruna og umhverfið þá er allt svæðið girt af við þjóðveg og því verða gestir að bóka aðgang fyrirfram á heimasíðunni til að komast inn á svæðið.
