Heildarvirði Kletts samkvæmt kaupsamningi er 2,3 milljarðar og eru kaupin fjarmögnuð með 600-700 milljón hækkun á hlutafé Skeljungs ehf. Kaupin eru að öðru leyti fjármögnuð með nýjum lánum og yfrtöku eldri lána. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka var ráðgjafi seljanda í viðskiptunum. LEX lögmannsstofa var ráðgjafi SKEL og Skeljungs.
Klettur – sala og þjónusta ehf.
Klettur er öflugt sölu- og þjónustufyrirtæki á sviði vinnuvéla, vörubíla, hópbifreiða, tækja, skipavéla, varaaflsstöðva og hjólbarða. Klettur er umboðsaðili Scania og Caterpillar á Íslandi auk ýmissa annarra sterkra framleiðenda. Klettur rekur farsæl þjónustuverkstæði í Reykjavík og á Akureyri. Þar að auki starfrækir félagið hjólbarðaverkstæði undir nafni Kletts ásamt því að eiga vörumerkið Sólningu.
Knútur Grétar Hauksson, núverandi forstjóri og stærsti eigandi Kletts, hefur samþykkt að verða stjórnarformaður félagsins. Þá hefur náðst samkomulag við lykilstarfsmenn um kaup á 4 prósenta hlut í eignarhaldsfélaginu. Kristján Már Atlason mun taka við sem forstjóri Kletts.
Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skeljungs:
„Með kaupunum á Kletti styrkjum við til muna vöru- og þjónustuframboð samstæðunnar. Klettur verður rekið sem sjálfstætt félag. Kaupin falla vel að þeirri stefnu að byggja upp enn öflugra þjónustufyrirtæki við íslenskt atvinnulíf. Við trúum því að með kaupunum geti samstæðan sótt á nýja markaði og tekið virkan þátt í beinni uppbyggingu innviða hérlendis næstu árin. Verði af viðskiptunum er reiknað með því að velta Skeljungs árið 2023, að Kletti meðtöldum, verði 70 milljarðar og áætlanir beggja félaga gefa fyrirheit um EBITDA í kringum 1300-1500 milljónir.“
Knútur G. Hauksson, forstjóri Kletts:
„Á undanförum árum höfum við ásamt okkar frábæra starfsfólki og traustu birgjum byggt upp öflugt sölu- og þjónustufyrirtæki. Við teljum að sú framtíðarsýn og frekari uppbyggingaráform sem tilvonandi kaupendur hafa kynnt fyrir okkur falli vel að núverandi stefnu félagsins og muni skapa því enn sterkari stöðu á þeim spennandi tímum sem framundan eru. Við höfum því fulla trú á að þetta sé frábært skref inn í framtíðina fyrir starfsmenn okkar og birgja, en ekki síður okkar tryggu viðskiptavini sem áfram geta treyst á gott vöruframboð og yfirburða þjónustu þeim til hagsbóta.“