Samtök iðnaðarins telja að full ástæða sé fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans að stíga annað skref í lækkun stýrivaxta nú. „Verðbólga og verðbólguvæntingar eru við verðbólgumarkmið bankans og gefur það Seðlabankanum svigrúm til að lækka vexti til þess að hjálpa fyrirtækjum og heimilum að takast á við niðursveifluna,“ segir í tilkynningu á vef samtakanna.
Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í upphafi næstu viku til að ákvarða stýrivexti bankans og verður tilkynnt um ákvörðun nefndarinnar miðvikudaginn 2. október. Peningastefnunefndin hefur lækkað vexti bankans um 1,0 prósentur síðan í maí á þessu ári og eru meginvextir bankans nú 3,5 prósent.
Telja samtökin að dýpt niðursveiflunnar sem nú er hafin í efnahagslífinu velti meðal annars á því hversu hratt verði brugðist við í hagstjórn. Skiptir þar miklu máli hvort peningastefnunefnd Seðlabankans lækki stýrivexti bankans nægjanlega hratt og mikið.

Verðbólgan mælist nú 3,0, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands og hefur hún hjaðnað nokkuð undanfarið en hún var 3,6 prósent í maí.
„Líklegt er að verðbólgan haldi áfram að hjaðna á næstunni. Ýmislegt styður þá þróun.
Í fyrsta lagi hefur þensla snúist yfir í slaka í íslensku hagkerfi sem dregið hefur úr verðbólguþrýstingi.
Í öðru lagi hefur gengi krónunnar haldist tiltölulega stöðugt síðustu mánuði eftir nokkra lækkun á seinni helmingi síðastliðins árs.
Í þriðja lagi hefur verðbólga hjaðnað í helstu viðskiptalöndunum undanfarið samhliða því að hægt hefur á hagvexti í mörgum þessara landa.
Í fjórða lagi hjálpa kjarasamningar á almennum vinnumarkaði sem náðust á fyrri hluta árs til við að halda verðbólgu lágri.
Í fimmta lagi hafa verðbólguvæntingar verið að lækka og eru nú í eða rétt við 2,5% verðbólgumarkmiði bankans sem gefa peningastefnunni góða kjölfestu og svigrúm nú til að milda niðursveifluna í efnahagslífinu með frekari lækkun stýrivaxta,“ segja samtökin.