Aztiq og Innobic Asia (Innobic), undir nafninu Aztiq II HoldCo, hafa skrifað undir samning um kaup á 100 prósent hlut í Alvogen Emerging Markets Holding Limited (AEMH) af Alvogen Lux Holding Sarl (Alvogen) en AEMH á leiðandi hlut í Lotus Pharmaceutical og á Adalvo að fullu. Helstu hluthafar Alvogen eru CVC Capital Partners, Temasek Holdings í Singapore auk Aztiq. Kaupverðið er um 475 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 62 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Með kaupunum verður Aztiq II HoldCo leiðandi hluthafi í Lotus Pharmaceutical og eignast Adalvo að fullu. Aztiq, með Róbert Wessman í broddi fylkingar, annast rekstur Aztiq II HoldCo næstu þrjú árin. Þá verður Róbert Wessman áfram stjórnarformaður Lotus.
Með samstarfinu er stefnt að áframhaldandi þróun og vexti Lotus og Adalvo um allan heim. Innobic og Aztiq búa sameiginlega yfir yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu af rekstri og uppbyggingu á lyfjafyrirtækjum sem á eftir að nýtast Lotus og Adalvo.
„Ég er sannfærður um að samkeppnisforskot Lotus og Adalvo mun eflast til muna með þeirri sérfræðiþekkingu, yfirgripsmikla viðskiptaneti og trausta aðgengi að mörkuðum í Asíu sem verður til með þessum samningi,“ segir Róbert Wessman stjórnarformaður og forstjóri Alvogen og stofnandi Aztiq.

Árið 2012 hóf Alvogen starfsemi sína í Asíu og tveimur árum síðar fjárfesti Alvogen í Lotus. Ávöxtun Alvogen síðan 2012 er að meðaltali 30 prósent á ári til dagsins í dag. Samheitalyfjafyritækið Lotus hefur á sama tíma haslað sér völl á alþjóðavettvangi og lagt ríka áherslu á þróun, framleiðslu og dreifingu á hágæða krabbameinslyfjum og sértækum taugalyfjum. Fyrirtækið er með eigin sölustarfsemi í 10 löndum en hefur jafnframt samið við leiðandi lyfjafyrirtæki um heim allan sem annast sölu á lyfjum fyrirtækisins í um 130 löndum. Adalvo hefur annast alla samningagerð fyrir hönd Lotus í þeim löndum þar sem fyrirtækið er ekki með eigin sölustarfsemi.
Adalvo er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem annast sölu og markaðsmál fyrir fyrirtæki sem ekki eru með eigin sölustarfsemi. Adalvo selur ekki undir eigin vörumerkjum heldur semur við leiðandi lyfjafyrirtæki um heim allan um að annast sölu og markaðsmál á viðkomandi lyfjum. Adalvo sérhæfir sig því í sölu á lyfjahugviti til annarra lyfjafyrirtækja.
Fyrirtækið var stofnað árið 2018 og hefur síðan þá vaxið hratt. Viðskiptasamningar Adalvo frá stofnun þess eru um 500 talsins og á vörulista fyrirtækisins eru um 60 lyf. Adalvo er meðal þeirra lyfjafyrirtækja sem hafa vaxið hvað mest á sínu sviði á heimsvísu og er með viðskiptavini í yfir 100 löndum.
Markmið Lotus og Adalvo er að auka aðgengi sjúklinga að hágæða lyfjum á sanngjörnum verði. Með aðkomu PTT verður lagt enn frekara kapp á að efla þróunarstarfsemi og vöruúrval Lotus og Adalvo og þannig halda áfram að greiða götuna og auka aðgengi fólks um allan heim að hágæða meðferð og lyfjum.
Sala Lotus hefur vaxið um 25 prósent á ári síðustu 7 ár og EBITDA um 40 prósent á sama tímabili. Á sama tíma hefur Adalvo á skömmum tíma skilað gríðarlegum árangri og hefur fyrirtækið meðal annars annast alla sölu fyrir Alvotech.
Dr.Buranin Rattanasombat, varaforseti nýsköpunar og nýsköpunar, PTT og stjórnarformaður Innobic (Asíu), segir að Lotus reki alhliða lyfjafyrirtæki sem spannar allt frá þróun yfir í framleiðslu og dreifingu. „Sérstaða Lotus er einnig fólgin í því að Lotus einbeitir sér að samheitalyfjum, sérstaklega á sviði krabbameinslækninga og taugasjúkdóma. Fjárfesting Innobic er því í fullu samræmi við þá stefnu PTT að sameinast fyrirtækjum sem einbeitir sér að því að bæta heilsu fólks. Samstarf tveggja öflugra fjárfestahópa þar sem verið er að sameina krafta, þekkingu og reynslu, er mikil lyftistöng og styður við markaðssetningu á Innobic á líftæknivísindum sem mun styðja við uppbyggingu á sviði lýðheilsu- og lyfjaiðnaði í Taílandi og nærliggjandi löndum.“