Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Meginvextir bankans á sjö daga innlánum verða áfram 4,25 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.
Hagvöxtur var meiri á fyrsta fjórðungi ársins en í fyrra, eða 6,6 prósent. Það er töluvert meiri vöxtur en á seinni hluta síðasta árs. Fram kemur að í megindráttum sé þetta í takt við spá bankans.
Áfram eru taldar líkur á að úr hagvexti dragi á þessu ári, með hægari vexti útflutnings og innlendrar eftirspurnar. „Þróun íbúðaverðs og vísbendingar af vinnumarkaði benda í sömu átt,“ segir í yfirlýsingunni.
Verðbólgaði hjaðnaði í maí, niður í 2 prósent, en að undanförnu hefur verðbólgan mælst um tvö og hálft prósent, eða í grennd við markmið Seðlabankans.
„Áfram dregur úr árshækkun húsnæðisverðs en gagnstæð áhrif gengisbreytinga krónunnar á verðbólguna hafa dvínað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni. Gengi krónunnar hefur lækkað aðeins frá síðasta fundi peningastefnunefndar en gjaldeyrismarkaðurinn hefur áfram verið í ágætu jafnvægi. Verðbólguvæntingar virðast á heildina litið í ágætu samræmi við verðbólgumarkmið bankans.“
Peningastefnunefndin sér fram á minni spennu í þjóðarbúskapnum. Áfram sé þó þörf fyrir peningalegt aðhald í ljósi mikils vaxtar innlendrar eftirspurnar og undirliggjandi spennu á vinnumarkaði.
Vextir verða því sem hér segir:
1. Daglán: 6,00%
2. Lán gegn veði í verðbréfum: 5,00%
3. Innlán bundin í 7 daga: 4,25%
4. Viðskiptareikningar: 4,00%
5. Bindiskyldar innstæður: 4,00%
Athugasemdir