Farþegum Icelandair fjölgaði mikið á árinu 2022 og sætaframboð jókst jafnt og þétt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair en alls flutti félagið 3,7 milljónir farþega í fyrra, sem er 150 prósent fleiri en árið 2021 þegar félagið flutti 1,5 milljón farþega. Til samanburðar flutti félagið 4,1 milljón farþega árið 2018 og svipaðan fjölda árið 2019. Farþegafjöldinn nálgast því að sem hann var fyrir heimsfaraldur þegar hann hrundi.

Í tilkynningu Icelandair kemur einnig fram að á árinu hafi flugframboð aukist jafnt og þétt og hafi verið um 91 prósent af framboði ársins 2019 í desember.

„Árið 2022 var ár mikillar uppbyggingar í kjölfar Covid faraldursins. Við höfum jafnt og þétt fjölgað flugtengingum og aukið flugframboð og í desember var framboðið 91% af framboði ársins 2019. Eftir því sem áhrif faraldursins fóru dvínandi náði starfsfólk Icelandair að byggja starfsemina upp hratt og örugglega,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni.

Röskun á flugi í desember

Þá var einnig fjölgun í heildarfjölda farþega í innanlands- og millilandaflugi en þeir voru 233.500 í desember, samanborið við 168.500 í desember 2021. Farþegar í millilandaflugi voru 214 þúsund samanborið við 149 þúsund í desember 2021. Farþegar til Íslands voru 79 þúsund og frá Íslandi um 50 þúsund. Tengifarþegar voru um 85 þúsund.

Stundvísi í millilandaflugi var 62,4 prósent. Sætanýting í millilandaflugi var 73 prósent, samanborið við 71 prósent í desember 2021. Miklar raskanir vegna veðursfars og þá sérstaklega lokun Reykjanesbrautarinnar hafði umtalsverð áhrif á stundvísi, sætanýtingu og flugáætlunina í heild í mánuðinum.

„Við erum stolt af starfsfólki okkar og hvernig því tókst við mjög krefjandi aðstæður að tryggja að langflestir af þeim 24 þúsund farþegum okkar sem lentu í röskunum fyrir jólin komust á sinn áfangastað. Raskanir sem þessar hafa mikil áhrif á viðskiptavini okkar, upplifun ferðamanna af landi og þjóð og tengingar Íslands við umheiminn. Reykjanesbrautin er mjög mikilvæg lífæð fyrir Ísland og við leggjum því mikla áherslu á að stjórnvöld komi í veg fyrir að sambærilegar aðstæður skapist aftur,“ segir Bogi Nils.

Farþegar í innanlandsflugi voru um 20 þúsund, samanborið við 19 þúsund farþega í desember 2021. Stundvísi var 81 prósent, þrátt fyrir umtalsverðar raskanir vegna veðurs. Sætanýting var 73 prósent samanborið við 70 prósent nýtingu í desember 2021.

Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst um 13 prósent samanborið við desember 2021. Fraktflutningar voru jafnmiklir og í desember 2021.

„Innanlandsflugið hefur náð sér vel á strik og leiguflugsstarfsemin einnig með verkefnum um allan heim. Leiguflugstarfsemin er mikilvægur þáttur í að minnka árstíðarsveiflu í rekstrinum og nýta bæði flugvélar og áhafnir þegar umsvif í leiðakerfinu eru minni. Stór áfangi náðist nú í lok árs í flugfraktinni þegar við tókum á móti Boeing 767 breiðþotu í fraktflotann,“ segir Bogi og að nú verði sett aukin áhersla á að nýta Keflavíkurflugvöll sem tengimiðstöð fyrir flugfrakt á milli heimsálfa.

„Sambærilegt við það sem félagið hefur gert á árangursríkan hátt í farþegaflutningum um árabil. Þetta mun skapa ný og spennandi tækifæri fyrir inn- og útflutningsaðila á Íslandi.“