Alls hafa 8.879 fólksbifreiðar verið nýskráðar á þessu ári sem er um 22,2% samdráttur miðað við stöðuna á sama tíma og í fyrra.
Hlutdeild rafmagnsbíla það sem af er þessu ári er 24%, bensínbíla 23,7%, dísil 19,7%, tengiltvinnbíla 19% og hybrid 12,8%.
Þetta kemur fram í samantekt Félags íslenskra bifreiðaeigenda sem unnin er upp úr gögnum frá Bílgreinasambandinu. Þegar rýnt er nánar í tölurnar kemur í ljós að flestar nýskráningar á þessu ári voru í júlí, alls 1.480 en fæstar í apríl eða alls 372.
Toyota trónir í efsta sætinu hvað nýskráningar varðar með 1.357 fólksbifreiðar. Kia er með 891 nýskráningar og Tesla kemur í þriðja sætinu með 860.
Í næstu sætum þar á eftir koma Hyundai með 655, Volkswagen með 577, Mitsubishi 486, Suzuki 449, Nissan 390 og Volvo 379.
76% heildarskráninga er vegna almennrar notkunar og 22,6% vegna bílaleiga.