Gunnlaugur Th. Einarsson hefur verið ráðinn upplýsingatæknistjóri Origo.
Upplýsingatæknistjóri hefur snertifleti við alla starfssemi Origo, þvert á svið og stjórnskipulag. Hann starfar náið með fjölda upplýsingatæknisérfræðinga við að endurmeta viðskiptaferla, innleiða stefnu og markmið fyrirtækisins í tæknimálum og kortleggja framtíðarsýn þess, segir í tilkynningu.
Gunnlaugur, sem er með BS í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands, hóf störf hjá forvera Origo árið 2001. Nú síðast hefur hann starfað sem tæknistjóri hjá viðskiptalausnum Origo.
Origo er upplýsingatæknifyrirtæki. Hjá fyrirtækinu starfa um 450 manns.