Grettir starfaði áður sem samskiptaráðgjafi hjá Aton.JL og sem almannatengill hjá Hér og Nú. Hann hefur einnig starfað sem staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia og sem verkefnastjóri hjá Kjarnanum. Grettir lauk BA gráðu í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands auk þess sem hann lærði almannatengsl og samskipti á mastersstigi í Universidade Fernando Pessoa í Portúgal.
Grétar Theodórsson, framkvæmdastjóri Spor:
„Grettir hefur víðtæka þekkingu á samskiptaráðgjöf, fjölmiðlun og greiningum og ráðning hans er liður í að styrkja enn frekar þá þjónustu sem við bjóðum upp á. Þá hefur Grettir einnig mikla reynslu af greiningum og skýrslugerð, og með komu hans setjum við aukið púður í slíka vinnu fyrir viðskiptavini okkar.“
Spor er stefnumiðað samskiptafyrirtæki sem vinnur með fyrirtækjum og stofnunum að skipulögðum samskiptum og almannatengslum. Meðal verkefna Spor má nefna stefnumiðaðar samskiptastefnur, krísustjórnun, stjórnendaráðgjöf, greiningar, fjölmiðlasamskipti auk annarrar ráðgjafar á sviði samskipta og miðlunar.