Testcovid.is hefur gert samning við Sjúkratryggingar um gjaldfrjáls hraðpróf vegna Covid-19. Þeir sem eru á leið á fjölmenna viðburði þar sem krafist er nýlegrar niðurstöðu í hraðprófi geta þannig leitað á fleiri staði til gjaldfrjálsrar skimunar en áður. Öryggismiðstöðin starfrækir þrjár skimunarstöðvar undir nafni testcovid.is í samstarfi við Sameind rannsóknarstofu, en þær eru við Kringluna, á BSÍ og við Aðaltorg í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Það eru stór tíðindi að hraðprófin séu ókeypis fyrir alla. Þau kostuðu áður 6.900 krónur en eru sem sagt ókeypis núna sem skiptir auðvitað miklu máli fyrir fólk. Sérstaða okkar er að fólk getur bókað tíma hjá okkur á netinu og það er engin biðröð þegar fólk mæti í skimun. Það er mikil eftirspurn eftir hraðprófum og við heyrum að fjölmargir aðilar eru að fara af stað með stærri viðburði, til dæmis busaböll í menntaskólum, árshátíðir, íþróttaleiki, tónleika og aðra menningarviðburði. Við getum þjónustað stóra hópa í einu og allir eiga sína tímabókun,“ segir Ómar Brynjólfsson, framkvæmdastjóri AVIÖR, sem er svið innan Öryggismiðstöðvarinnar, og sér um rekstur skimunarstöðvanna.

Ómar Brynjólfsson, framkvæmdastjóri AVIÖR, sem er svið innan Öryggismiðstöðvarinnar, og sér um rekstur skimunarstöðvanna.
Mynd/Aðsend

Hraðprófin sem um ræðir eru afar nákvæm Antigen próf frá Siemens sem skila niðurstöðu á 15-20 mínútum. Prófið er framkvæmt með stroku í nefkok og niðurstaða er send með QR kóða í tölvupósti til viðkomandi um leið og hún liggur fyrir.