Eigendur Rammagerðarinnar hafa keypt allt hlutafé ullarvöruframleiðandans Glófa af Páli Kr. Pálssyni og Helgu Lísu Þórðardóttur. Í tilkynningu kemur fram að Páll muni áfram gegna stöðu framkvæmdastjóra Glófa.
Glófi var stofnað á Akureyri árið 1982 og framleiðir ullarvörur á Íslandi undir merkjum VARMA. Um 20 manns starfa hjá fyrirtækinu.
Rammagerðin er í eigu hjónanna Helga Rúnars Óskarssonar og Bjarneyjar Harðardóttur, en þau eru einnig meirihlutaeigendur í Sjóklæðagerðinni sem framleiðir fatnað undir merkjum 66°NORÐUR.
Bjarney Harðardóttir, eigandi Rammagerðarinnar, segist hafa mikla trú á Glófa og vörumerkinu Varma. Fyrirtækið hafi skapað verðmæti úr íslenskri ull um áratugaskeið.
„Glófi er mjög vel rekið fyrirtæki með spennandi framtíðarmöguleika. Fyrirtækið passar vel við áherslur Rammagerðarinnar sem hefur stutt við vöxt og nýsköpun á sviði hönnunar og handverks hér á landi, segir Bjarney.
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Glófa, segir spennandi að vinna með nýjum eigendum að frekari vöruþróun á íslensku ullinni.
„Það er dýrmætt að fá inn nýja þekkingu og reynslu til að styðja við áframhaldandi uppbyggingu. Við höfum verið að horfa til frekari vöruþróunar og útflutnings á íslenskum ullarvörum. Með aukinni umhverfisvitund þá eru neytendur um allan heim að átta sig á verðmæti íslensku ullarinnar og mikilvægi umhverfisvænnar framleiðslu. Íslenska ullin hefur reynst okkur Íslendingum vel en við höfum einnig verið að þróa vinnslu á lambsull sem er samkeppnishæf við mýkri tegund af ull en þar liggja mikil tækifæri," segir Páll.