Frá og með 15. maí næstkomandi mun borgin Detroit bætast við sem áfangastaður Delta Air Lines frá Íslandi. Flogið verður fjórum sinnum í viku með Boeing 757 þotum fram í miðjan október.

Hin auknu umsvif Delta virðast endurspegla vinsældir Íslands sem áfangastaður í Bandaríkjunum, en samkvæmt Ferðamálastofu þá hafa bandarískir ferðamenn samsvarað þriðjungi allra erlendra ferðamanna á þessu ári.

Alls verða 6.248 sæti í boði í 36 ferðum í hverri viku hjá Delta í ferðum milli Íslands og Bandaríkjanna næsta sumar.

Delta flaug fyrst til Íslands sumarið 2011 frá New York og bætti síðan við flugum frá Minneapolis/St Paul. Detroit verður þar með þriðji áfangastaður Delta frá Íslandi.