Ég er með rassinn og appelsínuhúðina hennar mömmu. Hún er sú kona sem ég elska mest í heiminum. Af hverju ætti mér þá að finnast hann ljótur? Mér finnst það þvert á móti yndisleg gjöf,“ segir Margrét Erla Maack, burlesque-drottning Íslands. Hún lærði þetta heilbrigða viðhorf í burlesque-heiminum og segist hafa þurft á því að halda.
„Maður fæðist ekki með sjálfsöryggi í farteskinu heldur er það stöðug æfing. Fullt af fólki og fyrirtækjum græða á því að okkur líði illa með sjálf okkur og oftar en ekki er reynt að selja mér eitthvað vegna þess að ég er ekki nógu góð. Það fær mann til að efast um manneskjuna í speglinum, þessa einu sem fylgir manni ævina út, en maður græðir ekkert á því að þykja ekki vænt um hana, alveg sama hvernig hún kemur og er.“
Margrét er fagureygð og málar augun til að draga fram fegurð þeirra.
„En það er sitt hvað að gera eitthvað til að draga fram góða eiginleika og að laga sig og fela, eins og með því að fara í aðhaldsbuxur til að minnka á sér rassinn. Mig langar alveg að kaupa mér tískufatnað í búðum en fötin passa bara ekki á mig. Þá getur verið niðurdrepandi að fara í mátunarklefann, en í stað þess að bugast hugsa ég: „Takk fyrir og bless! Ég ætla ekki að gefa þessari búð peningana mína. Þessir verslunareigendur eru ekki nógu klárir í viðskiptum til að skilja að konur eins og ég eiga mun meira fé en þær sem yngri eru og grennri.“ Á hverjum degi þarf ég að pæla í þessu og halda mér við því ég vil miðla þessu viðhorfi til dansnemenda minna sem eru stundum uppfullir af afsökunum um sjálfa sig, að þær séu of feitar, bakveikar eða gamlar, en þá spyr ég: „Hvenær er síðasti söludagur að geta lært eitthvað nýtt, svo ég geti nú örugglega gert það á meðan tími gefst til“.“
Brjóstadúskarnir vinsælir
Margrét kennir burlesque-dans í Kramhúsinu og er stofnandi hins geysivinsæla Reykjavík Kabarett.
„Í níu af hverjum tíu gæsapartíum sem ég kenni er beðið um burlesque og flestar þrá þær að læra brjóstadúskatækni. Ég ver því laugardögunum í hópi kvenna sem allar eru á túttunum að sveifla brjóstadúskum í hláturskasti. Konur elska burlesque, að finna sinn eigin þokka og að máta sig ekki í fyrirfram gefnu formi. Þær eru farnar að gefa skít í komplexana sína, sem er dásamlegt að verða vitni að, og fyrir vikið verða þær enn þokkafyllri fyrir sjálfar sig, þótt öðrum sé velkomið að baða sig í ljóma þeirra líka.“
Viðurnefnið Burlesque-drottning Íslands festist við Margréti þegar hún var kynnt á svið sem slík á skemmtistaðnum Slipper Room í New York.
„Ég datt alveg óvart inn í þessa senu þegar ég sótti masterclass í magadansi í New York. Þegar heim kom aftur saknaði ég hennar mikið og sá gat í skemmtanasenu Reykjavíkur. Því gerði ég nokkrar fullorðinssýningar með Sirkus Íslands fyrstu árin en kúplaði mig út fyrir tveimur árum til að stofna Reykjavík Kabarett,“ útskýrir Margrét en uppselt hefur verið á allar sýningar kabarettsins hingað til. „Við verðum í Tjarnarbíói í sumar og gætum hæglega farið yfir í enn stærra rými vegna eftirspurnar en þá missum við mikilvæga nánd við áhorfendur því sjarminn felst líka í því að spila á salinn.“
Kabarettsýningar eru bannaðar börnum enda umfjöllunarefnið fullorðins.
„Burlesque-sýningar eru þokkafullar ásýndum og snúast um sjálfsöryggi því ekkert er eins þokkafullt og fólk sem er öruggt í eigin skinni, sama hvernig holdafarið er. Líkaminn er enda dásamlegt sköpunarverk og fallegur í öllum sínum myndum. Því þykir áhorfendum hressandi upplifun að horfa á kvenlíkamann fyndinn og sniðugan en ekki bara viðkvæman og sexí fyrir aðra en manneskjuna sem sýnir hann. Í burlesque er mikið um yfirlýsingar og einn af mínum uppáhalds skemmtikröftum er Hjössa, sterkur og brussulegur karakter Ragnheiðar Maísólar, í sexí hlébarðabikiníi og slær sér á magann og urrar. Það er kannski sjokkerandi fyrir marga en í senn bæði fyndið og fallegt.“

Dans hefur fylgt Margréti frá blautu barnsbeini. Hún æfði ballett frá sex ára aldri þar til hún varð átján ára, lengst af í Listdansskóla Íslands.
„Þar var miklu oftar sagt við mig að ég yrði aldrei dansari út af holdafari mínu og trúðu mér, ég var ekki svona þá. Ég hugsa reglulega um hvað þessir kennarar segðu í dag ef þeir vissu að dansinn væri mitt aðalstarf, því nú hef ég verið starfandi danskennari til fjórtán ára, er með vinsælar kabarettsýningar og dansa í Rocky Horror í Borgarleikhúsinu. Pressan á að vera grönn var mikil í ballettskólanum en sem betur fer hefur þetta breyst og ég bý alla ævi að þeim dýrmæta skóla sem ballettinn var, að hugsa vel um kroppinn, skipulag til að dansa, kenna og halda sýningar, og kúpla sig út til þess eins að dansa.“
Aldrei þótt erfitt að bera sig
Sem burlesque-dansari fækkar Margrét fötum á sviði.
„Mér hefur aldrei þótt það erfitt og væri annars ekki að þessu. Ég brýni fyrir nemendum mínum að gera aldrei það sem þeim líður illa með og sýna aðeins það sem þeir vilja. Sjálf er ég löngu hætt að vera í korsiletti því það er ómögulegt að dansa í því en ég hef sannarlega verið mjög fáklædd á sviði þótt ég hafi séð léttklæddara fólk á Stóra sviði Þjóðleikhússins,“ segir Margrét sem í upphafi hafði áhyggjur af því að trekkja að dónakalla á kabarettsýningarnar.
„Það hafa reyndar tveir dónakallar komið en þeir bökkuðu út þegar þeir sáu fullan sal af kellingum á mínum aldri. Meirihluti áhorfenda eru konur sem vilja sjá aðrar konur njóta sín. Allir líkamar eru sýnilegir í burlesque, ekki bara mjóa, hvíta stelpan,“ útskýrir Margrét sem eftir sýningar fær oft að heyra að hún sé hugrökk vegna þess að hún þori að fækka fötum í sínum holdum.
„Auðvitað er það meint sem hrós, og ég tek allt hrós og set inn í hjartað, en þetta á til að fara öfugt ofan í mig. Er ég með svona óæskilegan líkama og mikla appelsínuhúð að ég ætti ekki að sjást? Ég svara því oftast að ég sé langt í frá hugrökk því úti sé fullt af hetjum að gera merkilegri hluti, en miklu fremur vildi ég fá hrós fyrir hversu atriðin mín voru falleg eða skemmtileg.“
Margréti liggur margt á hjarta þegar kemur að því að styrkja konur í gegnum burlesque.
„Það kom mér á óvart hversu breið flóra kvenna sótti í dansinn til mín og af mismunandi ástæðum. Sumar sögðust ekki hafa fallegan líkama og vildu læra að finna eigin þokka, aðrar sögðust ekki þekkja líkama sinn eftir barnsburð eða höfðu lent í erfiðum sambandsslitum og þurftu að klappa sér á bakið. Staðreyndin er sú að það er ekki til nein ein tegund af fegurð en það eru til margar leiðir að fegurðinni eins og sést berum augum þegar fólk býr til atriðin sín sem eru uppfull af frjósemi, hugmyndaauðgi og íslenskum húmor, sem er svo mikilvægt krydd,“ segir Margrét um unga og frjóa burlesque-senuna hér á landi.
„Íslenskt burlesque er á himinháu plani í samanburði við París og Berlín þar sem meirihlutinn snýst um hvítar, mjóar stelpur sem fara allar eins úr hönskunum. Við erum líkari New York-burlesque-i þar sem alls konar líkamar eru vegsamaðir og umfjöllunarefnin eru feminísk eins og líkamshár og blæðingar, stórar konur og fatlaðar, sem vilja auðvitað líka fá að vera sexí.“
Fann ástina á Tinder
Í kabarettsýningum heimsins er algengast að konur sjái um skemmtiatriðin og fari úr fötum á meðan karlkyns kynnir fer ekki úr neinni spjör.
„Þessu langaði mig að breyta og fékk til liðs við mig Lalla töframann sem er sá besti og alltaf til í að fara úr fötunum. Við höfðum bæði unnið lengi í bransanum en gátum ekki alltaf gert allt sem við vildum því ég var alltaf ráðin á settlegar árshátíðir og hann í barnaafmæli. Nú getur Lalli farið úr buxunum til að sýna bestu spilin og prumpblaðra fær annan tilgang,“ segir Margrét.
Það eru ekki bara konur sem stunda burlesque - karlmenn stunda boylesque. Í sumar koma meðal annarra fram með Reykjavík Kabarett, Gógó Starr, hinn íslenski St. Edgard sem er boylesque-stjarna í Stokkhólmi, boylesque-kóngurinn Mr. Gorgeus og kærastinn hennar Margrétar, Tómas Steindórsson, sem bjó til atriði fyrir sína heittelskuðu þegar þau Gógó Starr náðu markmiðum sínum fyrir fyrirhugaðan Evróputúr.
„Atriðið er mjög fallegt en þar stúderar Tómas karlmennsku og uppvask. Það verður sýnt 22. júní en þegar hann prófaði atriðið á sýningu ætlaði allt um koll að keyra,“ segir Margrét um aðdráttarafl Tómasar sem á sviði kallar sig listamannsnafninu Kjöthöllin.
„Það er mikið kjöt á Kjöthöllinni og loks fann ég þann eina rétta. Ég hef lent í því áður að menn falli fyrir mér af því ég sé svo sniðug og skemmtileg en það hefur einmitt drepið samböndin þegar þeir þoldu ekki að ég væri sniðug og skemmtileg við aðra en þá. Tómas hefur gaman af þessu öllu og er minn helsti gagnrýnandi. Hann er oft spurður hvort honum þyki erfitt að ég dansi fáklædd á sviði en það þykir honum ekki frekar en mér þykir ekki erfitt að hann sé léttklæddur, sveittur og sexí að spila körfubolta. Ég á mig. Hann fær að vera með í því partíi.“
Þau Tómas fundu hvort annað á stefnumótaforritinu Tinder.
„Það fyrsta sem hann Tómas sagði var: „Guð minn góður! Ég trúi þessu ekki! Þú ert að „matcha“ við helsta aðdáandann þinn í Útsvari!“ Um leið var hann búinn að vinna mig og á fyrsta stefnumótinu horfðum við saman á Útsvar yfir risastóru blandi í poka og hann hefur ekki farið heim síðan,“ segir Margrét sæl.
Ævintýralegt sumar í vændum
Framundan er annasamur og skemmtilegur tími hjá Margréti og Reykjavík Kabarett.
„Við dragdrottning Íslands, Gógó Starr, erum á leið í sex vikna Evrópuferðalag í sumar og verðum aðalnúmerið á Leeds Burlesque Festival, svo fátt eitt sé nefnt. Á meðan Gógó hoppar heim á Gay Pride verð ég á Full Moon Cabaret á Edinborgar-fringe-hátíðinni og í ágúst verð ég gestur á Ósló Burlesque-hátíðinni. Í mars hefur mér verið boðið í sex vikna túr um Bandaríkin með New York-fólkinu en þar er ég orðin nokkuð þekkt,“ segir Margrét um verkefnin framundan og í allt sumar verður hægt að sjá heillandi burlesque-sýningar Reykjavík Kabarett í Tjarnarbíói.
„Stóru leikhúsin fylgja með í korsilettbylgjunni. Rocky Horror í Borgarleikhúsinu, Sirkussöngleikurinn Slá í gegn í Þjóðleikhúsinu og Kabarett hjá Leikfélagi Akureyrar næsta vetur. Kabarett hentar nútímafólki vel, með stuttum og sprellfyndnum atriðum en óvæntri og þokkafullri atburðarás. Þá hafa nemendur mínir í Dömum og herra verið dugleg að setja upp sýningar á Gauknum – sú næsta 1. júní. Það er merkilegt hvernig íslensk leikhús og rými eru liðleg í að skoða, gera og græja með íslensku listafólki. Ég er með kenningu um að það sé ástæðan fyrir sköpunarkrafti Íslendinga. Það er svo auðvelt að safna fólki saman og halda gott gigg.“
Skoðaðu dagskrá sumarsins á reykjavikkabarett.com og fylgstu með á Facebook.
Sjáðu þetta myndband um sumarið: https://www.facebook.com/reykj...


