Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti er kominn með 9. gráðu svart belti í kóresku sjálfsvarnaríþróttinni Taekwondo. Það er hæsta beltið sem hægt er að fá í íþróttinni en Vladimír Pútín Rússlandsforseti hlaut sama heiður árið 2013.
Lee Dong-seop, formaður Kukkiwon sem er æðsta yfirvald heims í Taekwondo, afhenti Trump heiðursbeltið á heimili hans í Mar-a-lago í Palm Beach á Flórída um helgina og var forsetinn fyrrverandi klæddur í Taekwondo-galla.
„Mér hafði borist það til eyrna að Trump væri mikill áhugamaður um Taekwondo,“ sagði Lee við atburðinn en samkvæmt Daily Mail var það Suður-kóreumaður búsettur í Bandaríkjunum sem skipulagði hann.
„Það er mér sannur heiður að fá heiðursbelti og ég held að Taekwondo sé frábær bardagaíþrótt fyrir sjálfsvarnir“, sagði forsetinn fyrrverandi.
Trump lofaði því að mæta í gallanum á Bandaríkjaþing ef hann kæmist aftur í Hvíta húsið en margt þykir benda til þess að hann bjóði sig fram í prófkjöri Repúblikana fyrir forsetakosningarnar 2024.