Alexander Kjerulf er danskur ráðgjafi og eigandi fyrirtækisins Woohoo inc. sem sérhæfir sig í að aðstoða fyrirtæki og stjórnendur í því að auka hamingju starfsfólks á vinnustað. Á meðal viðskiptavina eru Microsoft, LEGO og IKEA.

Hann hélt erindi á ráðstefnunni Bylting í stjórnun sem haldin var í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands um nútíma stjórnunaraðferðir á fimmtudag og lagði sérstaka áherslu á það hvernig stjórnendur geta eflt starfsfólk og aukið hamingju þess. „Ég vek alltaf athygli á því hvert sem ég fer að ánægja starfsmanna hefur bein áhrif á afkomu fyrirtækja. Stjórnendur eru oftast móttækilegir fyrir því að þeim er nauðsynlegt að stuðla að hamingju starfsmanna sinna. En stundum ekki. Í verstu tilfellunum ráðlegg ég fyrirtækjum að reka stjórnendur sem hafa ekki áhuga á því að bæta líðan starfsmanna sinna,“ segir Alexander.

Hvernig metur þú stöðuna á Íslandi?

„Atvinnuleysi er lítið hér á landi og því eiga fyrirtæki í samkeppni um hæfasta starfsfólkið. Stjórnendur eru því tilneyddir til þess að stuðla að hamingju starfsmanna sinna. Starfsfólk sem er ekki hamingjusamt getur hreinlega farið og fundið sér aðra vinnu. Íslendingar þurfa að auka framleiðni og ná betra samkeppnisforskoti. Ótal rannsóknir sýna skýrt að hamingjusamir starfsmenn skila betra verki. Þeir eru framleiðnari og meira skapandi. Þeir veita betri þjónustu og viðskiptavinir eru þar af leiðandi ánægðari. Það má segja það að hjá þjónustufyrirtækjum sé það sérstaklega mikilvægt að auka hamingju starfsmanna. Nú er ferðaþjónustan í miklum og örum vexti, stjórnendum fyrirtækja í þeim geira er hollt að huga að þessu. 

Hér á landi hefur orðið þörf umræða um kulnun í starfi sem færist í vöxt á Íslandi. Áhersla á hamingju á vinnustað verndar gegn streitu og kulnun í starfi. Fólk brennur síður út þegar það starfar á vinnustað þar sem það finnur fyrir því að það er metið að verðleikum, að því sé sýndur áhugi og vinsemd,“ segir Alexander.

Hann segist velta því fyrir sér hvers vegna kulnun í starfi færist í aukana. „Ég hugsa að áhrifa efnahagshrunsins hér á landi gæti enn. Fólk er í viðbragðsstöðu og leggur mikið á sig. Það er einnig spenna í atvinnulífinu, fólk vinnur mikið og langan vinnutíma. Kannski er þetta í þjóðarsálinni að vinna eigi að vera erfiði. Þessu viðhorfi til vinnu ætti fólk að breyta. Árangur verður ekki meiri með því að slíta sér út og vinna langan vinnudag. Hann verður meiri með innihaldsríkari og gleðilegri vinnudegi.“

Hver eru lykilatriðin? Hvernig geta stjórnendur gert starfsmenn sína hamingjusamari?

„Margir stjórnenda halda að þetta snúist um laun, bónusa og fríðindi. En þegar horft er til niðurstaðna rannsókna um hamingju á vinnustaðnum þá leiðir ekkert slíkt til meiri hamingju. Það gerir hins vegar árangur í vinnu og innihaldsrík sambönd á vinnustað. Þegar þú skilar góðu starfi, ert metinn að verðleikum og hefur að auki þá tilfinningu að þú hafir tilgang,“ segir Alexander.

Er öllum stjórnendum fært að auka við hamingju annarra?

„Nei. Það þarf ákveðna eiginleika og greind til þess að gera það. Góðir stjórnendur þurfa að vera góðar manneskjur. Í sumum löndum hefur menning áhrif á stjórnunarhætti. Í norrænum löndum með jákvæðum hætti. Ég ráðlegg fyrirtækjum að losa sig við stjórnendur sem sýna líðan starfsfólks síns lítinn áhuga. Sumir stjórnendur sem hafa átt í slæmum samskiptum geta vel lært nýja hætti. Og það hefur oft gengið vel. En fáeinir vilja ekki leggja þetta á sig, finnst þetta húmbúkk. Þeir hafa ekki það sem til þarf.“

Hverjir eru eiginleikar slæms stjórnanda, sem dregur úr hamingju á vinnustað?

„Þeim stendur á sama um fólk og sjá fólk sem tæki til að ná markmiðum sínum. En lítið annað. Þeir hafa ekki áhuga á því hvernig fólki líður og stuðla með slæmum samskiptum að streitu og vanlíðan á vinnustaðnum.“

Og hvað ráðleggur þú starfsfólki sem býr við slíkt atlæti?

„Ef það er útlit fyrir að ekki verði tekið á vandanum þá ráðlegg ég fólki að koma sér í burtu. Forða sér hið snarasta. Fara. Skipta um vinnustað eða láta færa sig um deild ef það er hægt. Það getur haft mjög slæmar afleiðingar fyrir heilsuna að búa við slæma stjórnunarhætti. Það getur leitt til hjartasjúkdóma og jafnvel krabbameins,“ heldur Alexander fram. 

Getur þú gefið stjórnendum nokkur góð ráð?

„Já, það eru nokkur mjög einföld en góð ráð sem má reyna. Stundum þarf að byrja alveg frá grunni og kenna stjórnendum að bjóða góðan daginn. Sumir storma beint inn, setjast við tölvuna án þess að heilsa. Það má byrja á því að bjóða starfsfólki sínu góðan daginn.

Það er mikilvægt að sýna virðingu, horfast í augu við fólk, sýna vinsemd. Það er líka mikilvægt að fagna þegar við á. Til dæmis þegar einhverju markmiði er náð. Þá er tilefni til þess að bjóða upp á veitingar og tala við starfsfólkið um hvers vegna það er fagnað og framlag þess. Sumir stjórnendur halda sífellt áfram að næsta markmiði og staldra aldrei við. Það getur stuðlað að því að fólk finnur ekki fyrir tilgangi,“ segir Alexander.