Kvikmyndaleikarinn Gene Hackman er nær óþekkjanlegur frá því að hann kom almenningi síðast fyrir sjónir, fyrir um tveimur áratugum síðan. Hackman er orðinn 93 ára gamall og hefur að mestu haldið sig til hlés undanfarin ár.

Hackman var um tíma ein af stórleikurum Hollywood. Í tvígang hlaut hann óskarsverðlaun. Annars vegar fyrir leik í aðalhlutverki í kvikmyndinni The French Connection árið 1972 og hins vegar fyrir aukahlutverk í vestranum Unforgiven árið 1993.

Eitt af eftirminnilegustu hlutverkum Hackman var hins vegar sem Lex Luthor, erkióvinur Súpermans, í tveimur kvikmyndum á áttunda áratugnum. Einnig lék hann í myndum á borð við Bonnie and Clyde, The Poseidon Adventure, Young Frankenstein, Mississippi Burning, Crimson Tide og Get Shorty. Alls telur ferillinn yfir 100 kvikmyndir.

Hackman lék seinast í bíómynd árið 2004.
Fréttablaðið/Getty

Sú seinasta sem hann lék í var hin frekar óeftirminnilega Welcome to Mooseport árið 2004 þar sem hann lék á móti gamanleikaranum Ray Romano. Eftir hana sagði Hackman í viðtali hjá Larry King að hann væri ekki viss um að hann ferilinn hans héldi áfram. Ekkert var á döfinni.

Það reyndist rétt því að eina aðkoma hans að kvikmyndum síðan þá var að talsetja tvær heimildarmyndir.

Hackman er giftur píanistanum Betsy Arakawa, sem er rúmum 30 árum yngri en hann. Þau búa í borginni Santa Fe í Nýju Mexíkó. Lengi vel stundaði Hackman hjólreiðar af miklum móð og árið 2012, þegar hann var 81 árs gamall, varð hann fyrir bíl á hjólinu sínu en náði fullum bata.

Hackman lenti í hjólreiðaslysi árið 2012, þá 81 árs gamall