Á síðasta ári opnaði listasmiðjan Noztra í Vesturhöfn við Grandagarð og má með sanni segja að listsköpun hafi blómstrað þar síðan. Í þættinum Matur og heimili á Hringbraut í kvöld heimsækir Sjöfn Þórðar þáttastjórnandi Noztru og hitt þar einn eigenda, Unni Knudsen og fær innsýn í starfsemi Noztru.

Hægt er að koma með börnin í stúdíóið.
Mynd/Hringbraut

„Það er í rúmt ár síðan við opnuðum Noztru og það hefur gengið mjög vel. Við lögðum upp með það konsept að hafa hér skapandi smiðju sem allir gætu notið sín og þannig er það. Það þarf ekkert að vera fæddur listamaður eða neitt slíkt til þess. Við bjóðum hér upp á for­-brenndan leir og hingað kemur fólk, velur sér hlut og málar hann. Síðan er hann skilinn eftir og við sjáum um að glerja hann og brenna. Nokkrum dögum síðar sækir fólk síðan hlutinn sinn og sér lokaútkomuna,“ segir Unnur og bætir við að það sé ávallt dásamleg upplifun fyrir hvern og einn.

Mynd/Hringbraut
Mynd/Hringbraut

Meira um tilurðina og markmiðinu um þetta skemmtilega konsept í þættinum Matur og Heimili á Hringbraut klukkan 19.00 og aftur klukkan 21.00 alla þriðjudaga.

Þátt vikunnar er hægt að horfa á hér að neðan.