Melinda og Bill Gates tilkynntu á mánudaginn að hjónaband þeirra til 27 ára væri komið í þrot. Saman eiga þau gríðarleg auðæfi og fyrir liggur að hærri upphæðir hafa ekki verið til skiptanna í gervallri skilnaðarsögu hinna ofurríku en slegið er á að undir séu um 127 milljarðar dollara.

Í skilnaðarpappírunum kemur fram að hjónin gerðu ekki kaupmála og að Melinda fari ekki fram á framfærslulífeyri. Enda gerist þess vart þörf í ljósi hlutdeildar hennar í sameiginlegum auði þeirra.

Verðmæti Bill Gates er metið einhvers staðar á milli 130,5 og 146 milljarðar dollara og hjónin eru fjórðu ríkustu einstaklingar heims á eftir Jeff Bezos, Elon Musk og franska viðskiptajöfrinum Bernard Arnault.

Fjórða sætið breytir því þó ekki að verðmiðinn á skilnaðinum er mun hærri en þegar ríkasti maður heims, Jeff Bezos, og MacKenzie Bezos skildu 2019 og hlutur þeirra hjóna í Amazon.com var fleygaður.

Einhleyp skaust MacKenzie þá strax upp listann yfir þá ríkustu og í framhaldinu stimplaði hún sig inn sem mannvinur mikill og hefur látið milljónir dollara renna til ýmissa góðgerðarmála. Ekki ósvipað þeim Melindu og Bill sem lengi hafa verið öflug á þessum vettvangi.

Útkoma skilnaðarins hjá Bill Gates getur hins vegar orðið þveröfug miðað við MacKenzie þar sem hætt er við því að hann muni hrapa niður lista hinna ríkustu þegar Melinda hefur tekið sinn hlut auðæfanna.

Jeff Bezos og MacKenzie Bezos

38 milljarðar dollara

Hinn heldur illa þokkaði Jeff Bezos, stofnandi Amazon.com, og eiginkona hans til næstum 26 ára sóttu um skilnað 2019. Verðmiðinn á þeim sambúðarslitum var í hærri kantinum enda var Bezos ríkasti maður heims með slík auðæfi að hann hélt efsta sætinu á þeim lista þrátt fyrir að drjúgur hluti rynni til MacKenzie þegar hjónabandið var gert upp.

Skjálfti fór um rafræna fjármálaheiminn þegar 38 milljarða dollara skilnaður Amazon-hjónanna varð að veruleika.
Fréttablaðið/Getty

Hún fékk 4% eignarhlut í Amazon, sem metinn er á ríflega 36 milljarða dollara og hefur síðan þá einbeitt sér að mannúðarstarfi sem verður þó varla fært til bókar á karmareikning eiginmannsins fyrrverandi úr því sem komið er.

Rupert Murdoch og Anna Murdoch Mann

1,7 milljarðar dollara

Fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch og Anna Murdoch Mann skildu 1999 eftir 32 ára hjónaband og þótt Murdoch sé annálaður fyrir mikil auðæfi hljómar hlutur Önnu við skilnaðinn eins og skiptimynt í hinu stóra samhengi netverslunarog hugbúnaðarkónganna Bezos og Gates.

Þótt upphæðin sé dágóð hjá Rupert og Önnu þá bliknar hún í samanburði við þær tölur sem eru undir við skilnað Melindu og Bill Gates.
Fréttablaðið/Getty

Samkvæmt skilnaðarsamningi fékk Anna 1,7 milljarða af auði Murdochs í sinn hlut og þar af voru litlar 110 milljónir dollara í reiðufé.

Tiger Woods og Elin Nordegren

710 milljónir dollara

Þótt Tiger hafi verið ríkastur í sinni deild þegar hann klúðraði hjónabandi sínu og Elin með dramatískum hætti er forgjöfin sem stórlaxarnir í internetbransanum hafa á hann umtalsverð.

Hjónaband Tiger Woods og Elin Nordegren, sænskrar eiginkonu hans, hrundi til grunna 2010 í kjölfar eldfims kynlífshneykslis og sögum um raðframhjáhald golfgoðsagnarinnar. Þótt hann hafi þá verið ríkasti íþróttamaður heims, metinn á rúman milljarð dollara sýnir skilnaðaruppgjörið svart á hvítu að hann var ekki að keppa á sama velli, ekki einu sinni í sömu deild, og internetauðkýfingarnir.

Þótt Tiger hafi verið ríkastur í sinni deild þegar hann klúðraði hjónabandi sínu og Elin með dramatískum hætti er forgjöfin sem stórlaxarnir í internetbransanum hafa á hann umtalsverð.
Fréttablaðið/Getty

Elin fékk 710 milljónir dollara en skilnaðarorsökin og hneykslið kostuðu Tiger einnig drjúgan skilding enda um þungt högg á feril hans að ræða og hann missti 35 milljónir þegar verðmætum styrktar- og kostunarsamningum var rift.

Kim Kardashian og Kanye West

??? milljónir dollara

Lokatölur úr yfirstandandi skilnaði Kim Kardashian og Kanye West liggja ekki fyrir en fyrir liggur að þrátt fyrir mikinn auð komast þau hvergi í námunda við Gateshjónin.

Hvorugt þeirra mun þó enda á flæðiskeri eftir skilnaðinn þar sem þó nokkru er til að dreifa og þau samanlagt metin á ríflega 2 milljarða dollara. Forbes hefur metið Kanye á um það bil 1,8 milljarða og í fyrra var slegið á að í það heila væru auður og eignir Kim í kringum 780 milljónir dollara.

Kim og Kanye á meðan allt lék í lyndi en lítil hætta er á því að þau þurfi að hanga á horriminni eftir skilnaðinn þar sem það er nóg til.
Fréttablaðið/Getty

Sögur um kaupmála hafa verið nokkuð á reiki en þó er talið víst að þau hafi gert einn slíkan tveimur mánuðum fyrir brúðkaupið 2014 og að þar sé gert ráð fyrir að Kim fái eina milljón dollara frá Kanye fyrir hvert ár sem þau hafa verið gift.

Einnig er hermt að Kim fái að halda öllum gjöfum sem hún fékk á meðan samband þeirra stóð en verðmæti þeirra mun vera í kringum 12 milljónir dollara. Þá verður Kim áfram eini rétthafi 20 milljóna dollara líftryggingar Kanye.

Ýmis smáatriði eru síðan ófrágengin eins og hvort þeirra muni halda 60 milljóna dollara stórhýsi þeirra í Calabasas í Kaliforníu og 6,3 milljóna heimili þeirra í Palm Springs svo eitthvað sé nefnt auk giftingarhrings Kim sem metinn er á 1,3 milljónir dollara.

Kim og Kanye á meðan allt lék í lyndi en lítil hætta er á því að þau þurfi að hanga á horriminni eftir skilnaðinn þar sem það er nóg til.