Þau Árni Beinteinn Árnason og Þórdís Þorfinnsdóttir fara með aðalhlutverkin í uppsetning u Leik félags Akureyrar á Benedikt búálfi. Þau voru saman í bekk í Listaháskóla Íslands og eru tiltölulega nýútskifuð úr leiklistarnáminu.

„Það var alveg frábær bekkur, ótrúlegur hópur af hæfileikaríkum og skemmtilegum leikurum. Við vorum miklir vinir og unnum mjög vel saman. Þetta var dýrmætur tími,“ segir Þórdís, oftast kölluð Dísa.

„Við Dísa höfum unnið saman í atvinnuleikhúsi síðan 2005. Við eigum því bæði sextán ára leikafmæli í ár,“ segir Árni.

„Það er því óhætt að segja að Árni Beinteinn hafi verið minn nánasti samstarfsmaður til fjölda ára. Núna síðast lékum við saman hér fyrir norðan í söngleiknum Vorið vaknar (e. Spring awakening) síðasta vor sem var ótrúlega skemmtilegt ferli,“ segir Dísa.

Magnaður ævintýraheimur

Bæði segjast þau einstaklega spennt fyrir uppsetningunni á Benedikt búálfi.

„Fólk í kringum okkur er mjög áhugasamt enda er þetta án efa einn ástsælasti íslenski fjölskyldusöngleikur síðari ára. Umtalið er mikið enda þekkja f lestir verkið síðan það var sett upp fyrir tæpum tuttugu árum. Þessi magnaði ævintýraheimur og stórskemmtilega tónlistin hafa lifað góðu lífi síðan þá,“ segir Dísa.

„Verkið fjallar um Benedikt búálf sem er sendur í leiðangur til mannheima til að sækja Dídí, sjö ára fótboltastelpu. Upp er komið skelfilegt hættuástand í Álf heimum og mannabarnið Dídí er eina von álfannna. Saman fara þau í ferðalag um Álf heima til að finna út hvar Tóti tannálfur er niður kominn, en hann hefur horfið sporlaust. Með þeim í för slæst vígalegur dreki og þeim mæta ýmsar áskoranir á leiðinni. Það eru litríkar persónur og töfrandi tónlist glæða sýninguna miklu lífi svo allir ættu að geta notið,“ segir Árni.

„Við tjöldum öllu til og það er óhætt að segja að við tökum þetta skrefinu lengra en áður hefur verið gert. Listræna teymið í kringum sýninguna er gífurlega metnaðarfullt og hvergi slegið af kröfunum. Þorvaldur Bjarni hefur útfært alla tónlistina upp á nýtt og bætt við nýjum frábærum lögum sem eiga örugglega eftir að vekja mikla lukku. Karl Ágúst steig líka inn og uppfærði handritið sem gerir söguna enn skýrari og margslungnari. Svo erum við náttúrulega með söngleikjagoðsögnina Lee Proud, sem sér um dans og sviðshreyfingar. Allt sem sá maður snertir breytist í gull,“ segir Dísa.

„Við byggjum þetta auðvitað allt á þeim góða grunni sem Ólafur Gunnar Guðlaugsson, skapari sögunnar, hefur búið til. Það er alveg einstaklega fallegur heimur og boðskapurinn góður. Fyrri útgáfan heppnaðist mjög vel og stendur vissulega fyrir sínu en þessi uppfærsla verður gjörólík. Vala Fannell leikstýrir sýningunni og gerir það einstaklega vel eins og hennar er von og vísa. Þetta er í fyrsta sinn sem við vinnum með henni og hennar fyrsta verk í atvinnuleikhúsi og það er óhætt að segja að hún sé leikstjóri á hraðri uppleið. Vonandi fáum við tækifæri til að vinna með henni aftur,“ segir Árni.

Algjör búálfur

Frá því að ljóst var að Benedikt búálfur yrði settur á svið var fólk í kringum Árna byrjað að segja að hann væri tilvalinn búálfur.

„Ég veit ekki hvað það er við mig en ætli ég sé ekki bara algjör búálfur í grunninn. Ég tengi líka mikið við rauða hárið því ég hef leikið rauðhærðar persónur frá því að ég var lítill snáði, til dæmis Vinnie í „Shut your face Vinnie“-sketsunum í Stelpunum,“ segir hann.

„Ég myndi líka segja að rauða hárkollan fari þér einstaklega vel. Svo ertu líka bara svo hrikalega vinalegur, þú ert að minnsta kosti eini maðurinn sem ég myndi treysta fyrir sjö ára barni í svaðilför til Álfheima,“ segir Dísa.

„Dísa er líka eina þrítuga konan sem fólk myndi trúa að væri sjö ára á sviði. Það er ótrúlegt hvernig hún hreyfir sig,“ bæti Árni við og þau hlæja.

„Árni er minn helsti peppari eins og þú heyrir. En ég tengi líka vel við Dídí sem karakter. Ég er reyndar rosalega langt frá því að vera einhver fótboltastelpa, enda er mér meinilla við bolta eins og Dídí reyndar líka. En Dídí skortir stundum sjálfstraust og það er eitthvað sem ég á auðvelt með að tengja við því auðvitað á maður það til að missa stundum trú á sjálfum sér, sérstaklega í leikhúsbransanum þegar tækifærin eru ekki á hverju strái. En í gegnum verkið fylgjast áhorfendur með því hvernig Dídí tekst á við hræðsluna og öðlast hugrekki,“ segir Dísa.

Þau segja börn geta verið virkilega krefjandi áhorfendur og gefi oftast engan afslátt.

„Við erum bæði vön að leika fyrir allan aldur og bestu fjölskyldusýningarnar eru þær sem allir geta haft gaman af,“ segir Dísa.

„Benedikt búálfur spannar allan tilfinningaskalann. Þó að gleðin sé auðvitað mikil þá kynnumst við líka myrkum persónum. Það má alveg búast við því að yngstu áhorfendurnir muni upplifa smá hræðslu en í öruggu umhverfi leikhússins ætti það nú bara að vera eftirminnilegt og áhrifaríkt. Svo fer auðvitað allt vel að lokum,“ segir Árni.

„Rólegur að spilla endanum fyrir öllum, Árni,“ segi Þórdís og hlær.

Miða á Benedikt Búálf er hægt að nálgast á tix.is.