„Eftir námið í KADK í Danmörku tók ég mér ár þar sem ég dútlaði mér í smærri verkefnum. Ég var úrvinda eftir námið og Covid-faraldurinn og í ástarsorg í ofanálag, þannig að ég þurfti tíma til að sleikja sárin. Núna er ég orðinn fullur af eldmóði og kominn á skrið sem sjálfstætt starfandi hönnuður,“ segir Andri Unnarson, en að sögn er margt spennandi í bígerð á næstunni hjá honum.
Óttablandin virðing fyrir jörð
Andri er búsettur í Kaupmannahöfn og er með vinnustofu við Nørrebro þar sem hann vinnur almennt að hönnun sinni, nema þegar hann tekur að sér verkefni á erlendri grundu. Hönnun Andra hefur vakið athygli vegna einstakrar efnisnotkunar og virðingar fyrir náttúrunni og umhverfinu.
„Af hönnuninni stafar óttablandin virðing fyrir móður jörð og því hvernig við komum fram við bæði hana og við hvert annað. Fyrst og fremst skoða ég hvernig ég get nýtt það sem er til nú þegar, hvernig megi endurvinna efnivið líkt og notaðar flíkur, fullnýta restar úr annarri framleiðslu og láta ferlið haldast í hendur við það,“ segir Andri.

Listrænt egó eða hlýnun jarðar
Undanfarin ár segist hann hafa reynt að aflæra það hvernig hann nálgast textíl og hráefni til að skapa. „Ég er að skoða hvaða ákvarðanir ég get tekið við að skapa textíl eða flík sem gengur sem minnst á auðlindir jarðar. Mitt listræna egó má aldrei verða mikilvægara en hlýnun jarðar,“ segir hann og heldur áfram:

Ef splunkunýtt par af gallabuxum kostar um tíu þúsund lítra af vatni, myndu flestir kjósa vatnssopann í heimi sem versnandi fer.

„Sjálfbærni er oft ákveðið dónaorð innan þessa geira því það þykir ekki nógu spennandi. En hún verður að vera möguleg. Það er tilgangslaust að hanna tísku ef við getum ekki notið hennar. Á meðan heimurinn býr til rúmlega hundrað milljarða af flíkum á ári hverju mun neysluhyggjan á endanum lúta í lægra haldi fyrir áþreifanlegum vandamálum. Ef splunkunýtt par af gallabuxum kostar um tíu þúsund lítra af vatni, myndu flestir kjósa vatnssopann í heimi sem versnandi fer.

En þá er gott að hafa spjátrunga eins og mig á kantinum til að rannsaka hvernig maður getur notað öll þessi föt sem efnivið í staðinn og eina auðlindin sem þarf er bara einn Tuborg Grøn í lok vinnuvikunnar,“ segir Andri kankvís.
„Hráefni í sköpun mína fæ ég úr öllum áttum. Stundum kaupi ég notað í gegnum nytjamarkaði, stundum fæ ég gefins. Gaman er þegar ég finn auðlind sem eru afgangar úr annarri framleiðslu. Til að mynda er mikið af leðrinu sem ég nota úrklippur úr danskri húsgagnaframleiðslu,“ segir hann.

Brotnar líkamsmyndir
Innblásturinn segir Andri koma víða að: „Þegar kemur að hugmyndavinnu skoða ég mikið alls konar sjálfsmyndir, einkum í sambandi við „kynusla“, þá sérstaklega í kringum karlmennsku. Hlutirnir sem ég nota sem hráefni skilgreina oft líka heilar kynslóðir fólks sem klæðist þeim, líkt og gallabuxur eða hvítar skyrtur. Hvít skyrta sem efniviður getur dregið upp margs konar samfélagshópa sem innblástur, allt frá skrifstofufólki til sjomla.
Ég fylgist líka með því sem er að gerast í tískuheiminum og finnst geggjað að sjá að tískuheimurinn virðist loks vera að læra að horfast í augu við sjálfan sig. Umræðan í kringum pallana er orðin önnur en hvað allt sé alltaf frábært. Það er svo margt rotið við þennan iðnað og nýju kynslóðirnar eru sérstaklega farnar að gefa því gaum og hætta taka þátt í eitrinu. Léleg eða engin laun, langir vinnutímar, falskar væntingar og brotnar líkamsmyndir. Þetta er allt orðið svo þreytt og mikið þrot.

Marine Serre er ein af þeim hönnuðum sem eru heldur betur að sýna heiminum hvernig það er hægt vinna sjálfbært með gasalegum tilþrifum. Annars er líka alltaf gaman að sjá hvað þessi stóru ljóðrænu hús eru að gera eins og Rick Owens, Thom Browne, Schiaparelli og Prada. Á Íslandi finnst mér æðislegt að fylgjast með hvert Kormákur & Skjöldur eru að fara með íslenska tvídið. Svo er alltaf gaman að kíkja í litríkt og lúxus hjá Apótek Atelier,“ segir Andri.
„Enn sem komið er er ekki hægt að nálgast mína hönnun á Íslandi en vonandi breytist það í lok þessa árs eða í byrjun þess næsta,“ segir Andri en áhugasömum skrautfjöðrum býður Andri að fylgjast með sér á Instagram: @andriunnarson.



