„Ég hef alltaf haft áhuga á að sauma og vinna með höndunum. Á yngri árum stundaði ég að kaupa notaðar flíkur í Kolaportinu og breyta þeim eftir hentisemi – bæta við blúndu að neðan, þrengja, stytta og jafnvel sauma tvær til þrjár flíkur saman í eina svo þær myndu klæða mig eins og ég vildi að þær klæddu mig. Í menntaskóla fór mig svo að langa í flíkur sem ég fann ekki í búðum á Íslandi og fór þá að sauma mér klæðnað fyrir hin og þessi tilefni. Eftir nokkur ár af því kviknaði áhugi hjá mér á að prófa að selja saumaskapinn minn og þá varð ekki aftur snúið.“

Þetta segir fatahönnuðurinn Bára Atla sem stendur á þrítugu og er fædd og uppalin í Breiðholtinu.

„Ég hef almennt gaman af lífinu og elska vinnuna mína. Ég er sjúklega stolt af sjálfri mér fyrir að hafa á sínum tíma þorað að hoppa út í djúpu laugina og opna mína fyrstu verslun á Laugaveginum. Valið stóð á milli þess að kaupa mér mína fyrstu íbúð eða skella íbúðarsparnaðinum í að kaupa milljón metra af efnum, fara út í eigin rekstur og opna verslun,“ segir Bára sem hélt að það væri nóg að opna búð á Laugaveginum og þá kæmu kúnnar inn í hrönnum til að kaupa það sem hún væri að selja.

„En það var heldur betur ekki þannig og ófá tárin sem runnu fyrsta árið þegar ég sat ein á Laugaveginum án þess að inn kæmi kúnni heilu dagana. Þá var annaðhvort að duga eða drepast, gjöra svo vel að læra markaðssetningu eða loka þessari búllu. Sem betur fer er ég það þrjóskasta undir sólinni, lærði að markaðssetja búðina betur og betur, og gat á endanum flutt úr 60 fermetrum á Laugavegi yfir í 600 fermetra í Mörkinni þar sem við erum með verslunina og saumastofu í dag,“ segir Bára innan um glæst efni, munstur og snið á saumastofu sinni.

Glæsilegur fjólublár síðkjóll.

Það voru ófá tárin sem runnu fyrsta árið þegar ég sat ein á Laugaveginum án þess að inn kæmi kúnni heilu dagana.

Þokkafullur kjóll með fögru mynstri.

Fallegt fyrir allan vöxt

Bára er mikil kjólakona og sést mun oftar í fallegum og þægilegum kjól og kápu, frekar en buxum og bol.

„Það er dagamunur á því hvernig ég vil klæða mig og þótt ég eigi mér enga eina uppáhalds flík á ég mér nokkur uppáhalds snið. Fötin sem ég hanna eru mjög svo kvenleg. Ég reyni alltaf að undirstrika að manni eigi að líða vel í flíkunum sem maður klæðist. Svo vöndum við valið á efnunum sem við vinnum með og reynum að nota eingöngu efni sem endast og endast, breytast ekki við þvott og hægt er að nota í ræmur án þess að sjáist á þeim,“ segir Bára sem hannar glæsilega kjóla, kápur og fleira fyrir konur í öllum stærðum.

„Það skiptir mig miklu máli að kona í hvaða stærð sem er geti labbað inn til okkar í Brá Verslun og fundið eitthvað fallegt sem klæðir hennar vöxt. Alveg sama í hvaða stærð eða hæð hún er. Stærðir eiga ekki að skipta neinu máli og því reyni ég að einbeita mér að því að hanna góð snið sem henta flestu vaxtarlagi. Kosturinn við okkar hönnun og framleiðslu felst að miklu leyti í því að saumastofan okkar er á sama stað og verslunin í Reykjavík og því getum við stytt, þrengt eða aðlagað flest snið eftir líkama hvers og eins.

Sniðin hennar Báru Atla eru einkar kvenleg og klæðileg.

Það skiptir mig máli að kona í hvaða stærð sem er geti labbað inn til okkar í Brá Verslun og fundið eitthvað fallegt sem klæðir hennar vöxt.

Hér er Bára Atla í glæstum kjól utan yfir buxur.

Útlit er hugarástand

Þegar Bára Atla hannar flíkur hugsar hún fyrst og fremst um þægindi og það að manneskjan sem klæðist þeim öðlist aukið sjálfsöryggi.

„Það er klárlega þannig að þegar manni líður vel – þá lítur maður betur út. Það er eitthvað við það að klæða sig örlítið upp – þótt það sé bara varalitur eða uppáhalds hálsmenið – því sjálfsöryggi getur gjörbreytt útliti manns þann daginn. Það þekkja líklegast allir hvað ein óþægileg flík getur skemmt fyrir manni daginn – krullaður sokkur í skónum eða snúin brók – og maður getur orðið geðvondur í heilan dag. Útlit er nefnilega ekkert annað en hugarástand og ef manni líður vel þá blómstrar maður,“ segir Bára sem sökum annríkis er hætt að taka að sér sérsaum, en hún sér um alla hönnun og markaðssetningu á merki sínu Brá, ásamt því að panta allt sem þarf til að reka saumastofu og verslanir í Reykjavík og á Akureyri, á meðan flinkt starfsfólk hennar sér alfarið um framleiðsluna heima og ytra.

Hér má sjá aðhaldssamfelluna sem selst hefur eins og heitar lummur í þúsundavís.

Spurð um vinsælustu flíkina sem hún hefur hannað, svarar Bára:

„Það er algjörlega óvænt og óvart aðhaldssamfellan góða. Mig vantaði flott „outfit“ fyrir partí árið 2017 og saumaði mér svartan mesh-kjól með blúndurúllukraga. Mig sárvantaði svo eitthvað undir þennan gegnsæja kjól og skellti saman samfellu úr þéttu spandex-efni sem ég átti afgangs og saumaði blúndu ofan á hana því ég nennti einfaldlega ekki að sauma á hana mjóa hlýra. Þessi blessaða samfella hefur æ síðan gjörsamlega tröllriðið öllu, selst upp trekk í trekk síðastliðin sex ár og tæp 6.000 eintök seld!“

Skoðið meira af hönnun Báru Atla á Brá verslun.

Myndirnar hér sýna nýjustu flíkurnar og vinsælustu sniðin.

Þessi blessaða samfella hefur æ síðan tröllriðið öllu, selst upp trekk í trekk og tæp 6.000 eintök seld!

MYNDIR/AÐSENDAR