Bjarni hefur verið að syngja Elvis-lög á Hótel Grímsborgum undanfarnar helgar við frábærar undirtektir jafnt Íslendinga sem erlendra ferðamanna. Allir þekkja lögin og gestir taka gjarnan undir, tryllast á fætur og bregða á dans, eins og hann orðar það. „Enda kynda lögin gjarnan undir lönguninni til að hreyfa sig,“ segir hann og bætir við: „Einhverra hluta vegna hefur Elvis fylgt mér allt frá upphafi ferilsins.“
Bjarni hefur starfað hjá Íslandshótelum frá árinu 2013 og sem hótelstjóri á Fosshótel Lind og Fosshótel Rauðará frá árinu 2016. „Þetta er sérlega skemmtilegt og lifandi starf ásamt því að vera alveg einstaklega fjölbreytt, hef aldrei áður unnið svona fjölbreytilegt starf og hef þó víða komið við. Upp koma alls konar mál sem gaman er að leysa. Maður lærir eitthvað nýtt á hverjum degi í annasömu starfi.“
Látúnsbarki Íslands
Þrátt fyrir að Bjarni hafi nóg að gera gefur hann sér tíma til að syngja enda hefur tónlistin átt hug hans og hjarta frá barnsaldri. Þar utan er hann með tónlistarþætti á útvarpsstöðinni Retró. Það muna það kannski ekki allir að Bjarni var kosinn Látúnsbarki Íslands í Látúnsbarkakeppni Stuðmanna aðeins 15 ára en hátíðin var haldin í gamla Tívolíinu í Hveragerði. Bjarni söng hið þekkta lag Slá í gegn. Með sigrinum varð Bjarni strax landsfrægur og vann hug þjóðarinnar á svipstundu, ekki síst þar sem hann gat sungið Elvis-lög eins og engill. „Þetta var árið 1987 og mér finnst svo ótrúlega stutt síðan. Þannig líður tíminn,“ segir hann. „Það er mikil blessun að fá að starfa við það sem mér finnst skemmtilegast í allan þennan tíma, að syngja fyrir fólk. Það eru forréttindi,“ segir Bjarni sem hefur tekið þátt í óteljandi viðburðum bæði hér á landi og erlendis. Margir muna eflaust eftir því þegar hann söng lagið Karen í Söngvakeppni sjónvarpsins 1992. Lagið lifir góðu lífi enn í dag þótt ekki hafi það náð að vinna keppnina.
Fundu gamla Elvis-bók
Bjarni hóf nám í tónlistarskóla þegar hann var níu ára. Lærði á trompet og var í lúðrasveit. „Sem unglingar stofnuðum við nokkrir félagarnir í lúðrasveitinni gítarhljómsveit en túbuleikarinn vildi endilega hafa hana þannig þótt við værum ekki að leika á gítar. Ég kunni ekkert á gítar og spurði hvað ég ætti að gera í bandinu. Svarið var að senda mig í Tónkvísl, kaupa rafmagnsgítar og læra á hann sjálfur. Ég fór rakleitt í það verkefni og hóf sjálfsmenntun,“ útskýrir Bjarni en á æfingasvæði lúðrasveitarinnar var geymsla þar sem æfingar fóru fram.
Bjarni segir frá því að þeir félagarnir hafi fundið stóra og mikla bók um Elvis-lög þegar þeir voru að gramsa í gömlu dóti í geymslunni. Í þessari bók voru öll helstu lög Elvis með myndum af gítargripum. „Þetta var upphafið að samstarfi okkar Elvis og ástæðan fyrir því að ég byrjaði að syngja. Þetta voru einhvers konar örlög,“ segir hann.
Bjarni og félagar byrjuðu að æfa lögin eftir bókinni og eitthvað spurðist það út því stuttu síðar var þeim boðið í unglingaþátt í sjónvarpinu sem nefndist Unglingarnir í frumskóginum. „Það er til upptaka frá þessu augnabliki frá árinu 1986. Ég söng tvö Presley-lög í þættinum. Röddin datt bara óvænt inn eins og kveikt væri á takka,“ segir hann brosandi og neitar því að þeir Elvis séu eitthvað skyldir. „Við erum báðir baritónar,“ segir hann en enginn vafi er á líkindum þeirra raddlega.
„Þetta var upphafið að samstarfi okkar Elvis og ástæðan fyrir því að ég byrjaði að syngja. Þetta voru einhvers konar örlög“
Stórmerkileg saga
Bjarni hefur að sjálfsögðu séð bíómyndina um Elvis en aðalleikari hennar, Austin Butler, er tilnefndur til Óskarsverðlauna sem verða afhent á sunnudaginn. „Ég var reyndar sendur af RÚV til að fjalla um myndina. Þetta er stórkostlegt listaverk og stórmerkileg saga af litlum strák frá Tupelo í Mississippi sem varð nánast heimsfrægur á einni nóttu. Fyrsta lagið sem hann gaf út átti að vera afmælisgjöf til móður hans en þá var hann uppgötvaður. Elvis þótti hafa rödd eins og þekktust var á meðal svartra. Austin Butler var frábær Elvis og ekki síður Tom Hanks sem aðstoðarmaður hans,“ segir okkar eini sanni íslenski Elvis.
Bjarni söng Elvis-lög öll laugardagskvöld í febrúar og verður út mars í Grímsborgum. „Dagskráin er á annan tíma og ég lagði mikla vinnu í að útfæra hana sem allra best. Það er ekki auðvelt að velja á milli Elvis-laga en maður reynir að blanda saman rólegum ballöðum í bland við þau fjörugustu, vinsælustu og önnur minna þekkt. Margir gestir í Grímsborgum eru Elvis-aðdáendur sem þekkja öll þessi lög. Eftir því sem tempóið eykst með kvöldinu endar það í brjáluðu stuði. Sumir standast ekki mátið, standa upp og dilla sér. Þetta eru lög sem vekja kroppinn til hreyfingar. Síðan á fólk góðar minningar með mörgum þessara laga. Elvis er engum líkur.“
Semur lög í frístundum
Bjarni er þó ekki einungis í Elvis-lögum. Hann gaf út eigið jólalag í desember, Allt er gott um jólin, sem var mikið spilað. Þá samdi hann einnig lag sem kom út síðasta sumar. „Ég hef verið að gera þó nokkuð í því að semja lög að undanförnu. Mér hefur fundist virkilega skemmtilegt að dunda við þetta og sum lögin verða nánast til af sjálfu sér. Kannski bara undir stýri en þá gríp ég símann og tek sjálfan mig upp að raula svo laglínan gleymist ekki,“ segir hann. „Jú, jú, það eru fleiri lög á leiðinni,“ upplýsir Bjarni þegar hann er spurður um frekari útgáfu. „Maður situr aldrei auðum höndum.“
Bjarni er mikið beðinn um að syngja við útfarir, afmæli og brúðkaup eða önnur tilefni. „Það eru margvísleg verkefni sem koma á borð söngvarans.“