Yfir 100 manns fögnuðu eins árs afmæli Mabrúka með Söfu Jemai á Sumac og þar mátti sjá landsliðskokka, matreiðslumeistara, matgæðinga, ráðamenn landsins og fleiri góða gesti sem hafa kynnst kryddunum hennar Söfu og notið þeirra í matargerð sinni.
Mikið var um dýrðir í veislunni og boðið var upp á létta skemmtidagskrá og einstakan sjö rétta afmælismatseðil sem innihélt rétti frá Túnis sem Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumeistari, eigandi Sumac, og teymið hans töfruðu fram af sinni alkunnu snilld. Tónlistin sem ómaði var frá Miðjarðarhafinu og átti vel við meðan veislugestir nutu þess að snæða þessa dýrindis rétti sem allir buðu upp á bragð og áferð frá Túnis þar sem kryddin frá Mabrúka léku aðalhlutverkið.

Sprottið af ást
Safa sagði í ræðu sinni þegar hún tók á móti gestum að það hefði verið áskorun að koma Mabrúka af stað en þau væru mjög spennt að halda áfram að skapa skemmtilegar minningar og auðga íslenska matarmenningu með því að búa til túnískar og norðurafrískar vörur og flytja inn til landsins.
„Ég er ótrúlega heppin með teymið sem hefur verið með mér í þessu, veitt mér stuðning og hvatningu allan tímann og haft trú á þessu verkefni.

Í teyminu erum við sjö en hér á landi eru það Ívar Guðmundsson, verkefnastjóri Kelechi, Anna Hafstað markaðsstjóri og bróðir minn Yosri sem nú er kominn hingað til lands,“ segir Safa og er í skýjunum með þau viðbrögð sem kryddin þeirra hafa fengið.
„Þetta eru fersk krydd sem mamma mín í Túnis býr til frá grunni eins og í gamla daga og þurrkar í sólinni en ekki í ofni, krydd sem hún gerir sjálf og velur aðeins besta hráefnið sem völ er á beint frá bændum,“ segir Safa og bætir við að í dag sé Mabrúka nýsköpunar-matarfyrirtæki sem býr til handgert og sólþurrkað krydd bæði fyrir veitingastaði og heimili.
„Mabrúka er annað og meira en bara kryddfyrirtæki. Mabrúka stendur fyrir valdeflingu kvenna, samfélagsábyrgð, er kraumandi suðupottur mismunandi menningarheima, þar sem norðurafrísk menning blandast saman við norræna og íslenska.
Mabrúka er fyrirtæki sem er meðvitað um ábyrgð sína, en líka tækifæri til að láta gott af sér leiða. Þetta er verkefni sprottið af ástríðu.“

Harissa ný vara Mabrúka
Safa notaði jafnframt tækifærið og kynnti nýja vöru til leiks: Harissa.
„Harissa er chilli-mauk frá Túnis. Í Harissa er chilli, hvítlaukur, salt, tabel og mikið af ólífuolíu. Þessi uppskrift sem við notum er frá Norður-Túnis, Bizerte, þar sem fjölskyldan mín býr.
Harissa er mjög vinsælt úti og er á lista UNESCO yfir menningarverðmæti í heiminum,“ segir Safa að lokum og ætlar að halda áfram að stækka og blómstra.











