„Jólaóskin mín er gott, nýtt ár fyrir okkur öll. Fyrir jólin í fyrra birtist mér sýn þar sem hvít slikja lagðist yfir heimsbyggðina og allt flug og erill lagðist af. Ég skildi það ekki þá, en ég gerði það fáeinum mánuðum síðar,“ segir Bjarni Viðar Sigurðsson keramíker. Hann fær einatt fyrirboða um það sem koma skal.
„Ég er algjört jólabarn, geri árvisst eigin aðventukransa í eldhúsið og stofuna, og legg mikið upp úr jólakrásunum. Allur aðfangadagur er undirlagður í undirbúning frá því snemma morguns. Í forrétt er hvítur aspas, ef hann fæst, eða perusalat með klettasalati, steiktum perum, geitaosti og ristuðum furuhnetum, og í aðalrétt borðum við danska villiönd með heimalöguðu rauðkáli, brúnuðum kartöflum, waldorfsalati og sósu sem ég læt sjóða upp tvisvar yfir daginn,“ upplýsir Bjarni.

Eftirrétturinn er heimanmundur frá æskujólunum og foreldrum Bjarna.
„Við erum vön að gæða okkur á marsipan-núggat ístertu á meðan við opnum jólapakkana. Ég fór sjálfur að laga tertuna í Danmörku fyrir rúmum tuttugu árum og hef gert hana æ síðan. Hún er algjört lostæti, uppáhaldið mitt og nú er ég orðinn svo vanur að ég geri tvær í einu, eina fyrir okkur og eina fyrir pabba og mömmu.”
Kærleikur, vinsemd og hlýja
Bjarni er einn af okkar dáðustu leirlistamönnum og leggur mikið upp úr fallegum borðbúnaði.
„Ég vil að frá jólaborðinu stafi hlýja, vinsemd og kærleikur. Því skiptir máli hvað er lagt á borð og hvernig það virkar, en ég er hallur undir danska jólasiði þegar kemur að veitingum, borðsiðum og skrauti,“ segir Bjarni og leggur á borð undurfagurt keramíkstell sem hann sjálfur skapaði.

„Ég vinn borðbúnað í miklum tengslum við náttúruna, í jarðbundnum litum, sem og sterkum og miklum glerungum. Mér finnst yndislegt að njóta borðhaldsins með stellinu mínu og náttúrulegu skrauti jólanna. Mér finnst líka gaman að leggja mismunandi diska á borð því ég á aldrei sömu diskana á milli ára þar sem gestirnir mínir enda yfirleitt á að kaupa diskana sem þeir borða af. Ég þarf því sjálfur að velja mér borðbúnað áður en jólamarkaðurinn er haldinn, eða, eins og ég hef líka gert, að gera mína eigin diska fyrir jólin, en diskarnir eru það sem ég held mest upp á.“

Hin eina sanna jólarós
Auður Árnadóttir lagði undurfögur blóm á jólaborðið hans Bjarna. Hún lærði blómaskreytingar í Danmörku og á Auði Blómabúð & blómaverkstæði á Garðatorgi, sem nú er líka komin með blómasjálfsala þar sem hægt er að nálgast fallegar blómaskreytingar allan sólarhringinn.
„Ég valdi afskorna Helleborus-jólarós sem ég setti í litla vasa og einnig sem pottaplöntu þar sem ég vafði mosa utan um rætur hennar. Líka handgerðar kúlur úr mosa og Corokia-silfurtré, sem minnir á Bonsai-tré,“ segir Auður, sem vinnur mikið með náttúrulegan efnivið og á sinn eigin stíl.

Auður segir fallegt að blanda Amaryllis, hýasintum, túlípönum, greinum, könglum og sígrænu efni við hefðbundin jólablóm.
„Það er mikið um að fólk skreyti heimili sín með lifandi blómum og kertum í stíl, enda fátt betra fyrir hug og hjarta á aðventunni,“ segir Auður sem ólst upp við blómahaf á jólum.
„Móðir mín útbjó alltaf hýasintuskreytingu og blómaskreytingu á tréplatta fyrir jólin og ég horfði hugfangin á. Túlípana sá ég líka stundum í vösum.“
Eftirlætis hátíðarblóm Auðar er Helleborus sem er sígræn, fjölær jurt.
„Það er hin eina sanna jólarós. Það er svo mikil dulúð og sjarmi yfir henni.“

Í jólaskapi á jólamarkaði Bjarna
Jólin hjá Bjarna byrja með árlegum jólamarkaði sem hann heldur á nýstækkaðri vinnustofu sinni að Hrauntungu 20 í Hafnarfirði dagana 3. til 6. desember, frá klukkan 10 til 18.
„Fjölmargir sem leggja leið sína á markaðinn eru að safna sér diskum, bollum, glösum og skálum. Fólk notar líka tækifærið til að kaupa stærri verk og svo er þetta frábært tækifæri til að hitta fólk, gefa af sér, njóta og fá tilfinningu fyrir jólunum. Passað verður upp á sóttvarnir og ef einhverjir vilja koma á öðrum tíma má alltaf hafa samband við mig,“ segir Bjarni í jólaskapi.

Marsípan-, núggat- og marengsísterta Bjarna
Marengsbotnar
4 eggjahvítur
150 g sykur
Marsípanís
4 eggjarauður
4 msk. sykur
1 vanillustöng
100 g marsípan
1/2 l rjómi
75 g hakkaðar möndlur
50 g suðusúkkulaði
Núggatís
100 g mjúkt núggat
2 eggjarauður
1 msk. sykur
3 dl rjómi
Aðferðin við ístertugerðina er svona:
Marengsbotnar
Stífþeytið eggjahvíturnar. Þeytið 1/3 af sykrinum með eggjahvítunum en hrærið afganginum saman við með sleif. Teiknið tvo hringi á bökunarpappír með hringformi og skiptið deiginu í tvennt á þá. Bakið í 60 mínútur við 125 °C og látið standa í ofninum á meðan botnarnir kólna.
Marsípanís
Þeytið saman eggjarauður, sykur, vanillukorn og rifið marsípan. Þeytið rjóma. Blandið rjómanum í eggjablönduna. Frystið í einn til tvo tíma og blandið þá hnetum og súkkulaði saman við ísinn til að allt blandist sem best saman.
Núggatís
Bræðið núggat í vatnsbaði. Þeytið eggjarauður og sykur saman. Þeytið rjóma. Kælið núggatið og þeytið saman við eggjablönduna. Hrærið saman við rjómann með sleif og gætið þess að halda lyftingunni í rjómanum. Setjið ísinn í frysti.
Samsetning
Setjið marengsbotn í botn á springformi og helming af marsípanísnum yfir. Frystið í klukkustund. Takið ísinn úr frystinum, setjið lag af núggatís yfir og frystið í klukkustund. Setjið síðasta lagið af ísnum í formið, leggið marengsbotn yfir og frystið í minnst fjóra tíma. Þá er ísinn tilbúinn. Takið úr frysti 20 til 30 mínútum áður en tertan er borin fram.