Þær Tinna og Telma vita fátt skemmtilegra en að stílisera og klæða sig upp fyrir framan linsuna og taka gamaldags jólamyndir. Þær þaulhugsa hvert smáatriði og leggja mikið upp úr allri umgjörð.

Hver er forsagan að því að þið byrjuðuð að gera svona myndaseríu?

„Þetta eiginlega byrjaði í Covid. Allir voru að finna sér skemmtileg áhugamál og við báðar höfðum mikinn áhuga á ljósmyndum og ákváðum bara að henda okkur í þetta. Þetta hefur síðan þróast í gegnum árin. Okkur finnst líka gaman að setja upp skemmtilegt umhverfi með myndunum þannig að í dag er þetta orðið eitt stórt verkefni,“ segir Tinna.

Er þessi myndataka fyrir jólamyndaseríu orðin að hefð?

„Já, svo sannarlega. Við reynum alltaf að gera eitthvað nýtt og pínu öðruvísi. Við vanalega förum í undirbúningsvinnu áður. Þá ákveðum við þemað, búninga, leikmuni og annað sem til þarf. Jólin eru líka svo æðislegur tími og jólabarnið í okkur blómstrar á þessum árstíma. Þetta er orðið partur af jólahefðinni hjá okkur. Verðum örugglega enn að þessu eftir 30 ár,“ segja þær í kór og brosa.

Þemað í ár voru gömlu jólin, tindátinn á myndinni er jólagjöf sem móðir Tinnu fékk árið 1958.

Gömul leikföng frá Hernámssetrinu að Hlöðum

Hvert er jólaþemað í ár?

„Jólaþemað í ár eru gömlu jólin. Við fengum lánuð falleg gömul leikföng frá Hernámssetrinu að Hlöðum og síðan pöntuðum við hnetubrjótshatta á netinu. Þannig að við erum alveg að blanda saman gömlu og nýju. Síðan reynum við að hafa myndirnar skemmtilegar og lifandi.“

Aðspurðar segjast þær fá innblásturinn víða, sjálfar eru þær mikil jólabörn og sjá fegurðina og gleðina í jólunum.

„Við fáum innblásturinn frá mörgum stöðum eins og í bíómyndum, auglýsingum, gömlum ljósmyndum og málverkum. Eins og í fyrra endurgerðum við ljósmyndir og málverk fyrir aðventuþemað okkar. Held við höfum aldrei hlegið jafn mikið eins og við það verkefni. Það sem okkur dettur í hug í þessum myndatökum er óútreiknanlegt,“ segir Tinna og hlær.

Tinna og Telma fengu lánuð þessi fallegu leikföng á Hernámssetrinu að Hlöðum sem minna á gamla tímann. Hér er Telma búin að stilla sér upp með leikföngunum í hlutverki hnetubrjótsins.
Stelpurnar sjá sjálfar um uppsetningu, búninga, förðun og að stilla ljósum og myndabúnaði upp.

„Ef fólk vill skoða þetta listaverk getur það skoðað Instagram-síðurnar okkar en þar birtum við allar myndaseríurnar okkar,“ segir Telma.

„Okkur finnst þetta skemmtilegt áhugamál. En við erum í raun að taka mismunandi þema allt árið um kring. Við vorum meira að segja einu sinni svo heppnar að fá lánaðan fornbíl og í sumar breyttum við matsalnum á Hlöðum í ítalskt veitingahús,“ segir Tinna og veit fátt skemmtilegra en að útbúa eins konar leikmyndir fyrir myndatökur eins og þessar.

Hægt er að fylgjast með þeim Tinnu og Telmu á Instagram-reikningi þeirra @tinnabg og @telmahar.

Hér eru þær báðar í hlutverki hnetubrjótsins.