Pasta og parmesanostur leika gjarnan stórt hlutverk í ítalska eldhúsinu og svo má nefna ólífuolíu eða smjör sem er eitt aðalkryddið. Þessi réttur er bæði einfaldur og ótrúlegur góður og fullkominn til að njóta með fjölskyldu og vinum.
Ítalskar hakkbollur með spagettí og parmesanosti
500 g nautahakk
500 g svínahakk
½ dl brauðrasp
1 laukur, smátt skorinn
1 stk. hvítlaukur, geiralaus (þessi í körfunni)
3 msk. fersk steinselja, smátt söxuð
2 msk. fersk basilíka, smátt söxuð
3 msk. rifinn parmesanostur
1 egg
Svartur pipar eftir smekk
Ólífuolía
Byrjið á að blanda saman öllum hráefnum í skál, annað hvort í hrærivél með króknum eða með höndunum en þá er gott að vera í einnota plasthönskum. Mótið síðan jafn stórar bollur úr deiginu. Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið bollurnar á báðum hliðum þar til þær verða gullinbrúnar. Þær fara síðan í eldfast mót með sósunni yfir í bakarofn í um það bil 20 til 25 mínútur.

Ítalska basilíku- og hvítlaukssósan
1 hvítlaukur, geiralaus, marinn (þessi í körfunni)
½ laukur, smátt skorinn
2 dósir hakkaðir tómatar
2 dl vatn
½ kjúklingateningur
1 msk. fersk basilíka, smátt söxuð
Svartur pipar eftir smekk
Ólífuolía eftir smekk
Byrjið á að hita ólífuolíu við vægan hita í potti, steikið laukana í olíunni í um það bil mínútu eða þar til þeir eru orðnir mjúkir. Bætið öllu hinu í pottinn og leyfið sósunni að malla á meðan þið búið til hakkbollurnar. Þegar bollurnar eru tilbúnar er þeim raðað í eldfast mót og sósunni hellt yfir og gott er að rífa niður smá parmesanost yfir líka. Síðan er fatið með hakkbollunum sett í ofn við 200°C hita í um það bil 20 til 25 mínútur.
Með þessum dásemdar ítölsku hakkbollum er upplagt að bera fram pasta, allra best er að vera með spagettí eða linguini. Sjóðið pasta sem þið viljið nota samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Upplagt er að gera það á meðan hakkbollurnar malla í sósunni góðu í ofninum. Það passar einkar vel að bera fram þennan rétt með pasta og parmesanosti. Það getur líka verið gott að vera með ferskt salat og nýbakað súrdeigsbrauð fyrir þá sem vilja gera þetta enn matarmeira.