Heimili þeirra er fágað og hlýlegt þar sem þessir fagurkerar hafa vandað vel til verka í björtu fallegu húsi hönnuðu af Sigvalda Thordarsyni.
Nú eruð þið bæði arkitektar sem er mjög heillandi, hvernig kom það til og hvar lærðuð þið?
Bæði áttum við okkur þann draum að verða arkitektar þegar við vorum yngri, vorum bæði með fyrirmyndir sem kynntu fagið fyrir okkur. Fórum síðan saman í nám í arkitektúr til Bandaríkjanna í listaháskóla sem heitir Savannah College of Art and Design (SCAD) og lukum mastersnáminu árið 2012.

Hvernig mynduð þið lýsa heimilinu ykkar?
Mikill hraði er á öllu í nútímasamfélagi, við leitumst eftir því að heimilið búi yfir vissri ró ásamt því að vera persónulegt. Við náum því fram með náttúrulegu efnisvali og að ofhlaða ekki hlutum inn á heimilið, hver hlutur hefur sína sögu og fær að njóta sín.
Eigið þið uppáhalds hlut eða húsgagn á heimilinu?
Listaverk eftir vini okkar, keramik eftir fjölskyldumeðlimi og hlutir sem við höfum safnað okkur á ferðalögum koma fyrst upp í hugann.

Nú stofnuðuð þið hönnunarfyrirtækið Former, hafði það blundað lengi í ykkur ?
Að hanna húsgögn var ávallt í okkar plönum. Að stofna fyrirtæki í kringum það var rökrétt skref eftir að við höfðum verið að hanna vörulínuna og vera í vöruþróun í dágóðan tíma.
Allt ferlið í kringum Former hefur því verið frekar lífrænt í okkar huga.
Hvar er hægt að nálgast vörur frá Former?
Vörurnar fást hjá Epal, Nomad og í netverslun okkar, former.is.
Hver er eftirlætis arkitektinn ykkar og af hverju heillar hann ykkur?
Högna Sigurðardóttir, Tadao Ando, Peter Zumthor og Norm arkitektar eru þeir sem koma upp í hugann í fljótu bragði. Þessir arkitektar eiga það sameiginlegt að vinna skemmtilega með náttúrulega lýsingu og efni í verkum sínum. Einnig eru oft á tíðum ekki dregin nein mörk á milli inni- og útirýma, heldur fá þau oft að fljóta saman.
Sir Arnar Gauti


