Alþjóðlega heimildarmyndahátíðin IceDocs var sett í fjórða sinn á Akranesi síðastliðinn miðvikudag. Fjölbreytt dagskrá hefur verið í bænum síðustu daga en hátíðinni lýkur á morgun.
Ingibjörg Halldórsdóttir, einn stofnenda hátíðarinnar, segir stemninguna í bænum góða. Tuttugu erlendir gestir eru á staðnum í tengslum við hátíðina, en hún hefur einnig verið vel sótt af heimafólki og innlendum gestum.

Fyrir þau sem vilja leggja leið sína upp á Skaga um helgina er af nógu að taka. Ingibjörg nefnir sérstaklega sýningu á myndinni Young Plato, sem er heimildarmynd um drengjaskóla á Norður-Írlandi, en aðalsöguhetja myndarinnar, skólastjórinn Kevin McArevey, er gestur á hátíðinni. Kevin mun svara spurningum áhorfenda að sýningu lokinni en Sólveig Jónsdóttir stýrir umræðunum.
„Kevin er norður-írskur skólastjóri í drengjaskóla þar. Hann notar heimspeki mikið í skólastarfinu til að kenna börnunum virðingu gagnvart hvert öðru og annað slíkt. Inn í heimspekina vefjast þessi átök sem hafa verið á svæðinu og hvernig er best fyrir börnin að bregðast við því ástandi. Í lýsingu myndarinnar segir að viska grísku heimspekinganna sé notuð til þess að berjast gegn fátækt, fíkniefnavanda og Írska lýðveldishernum og til þess að endurvekja von í hjarta illa leikins samfélags,“ segir Ingibjörg.
„Í myndinni er fylgst með skólastarfinu. Þetta er mjög skemmtileg mynd en hún hefur verið þessi óvænta mynd á hátíðum í ár. Mynd sem enginn bjóst við miklu af en svo hefur hún verið mjög vinsæl og hlotið fullt af verðlaunum.“

Ókeypis aðgangur
Alla helgina verður hægt að horfa á áhugaverðar heimildarmyndir hvaðanæva að úr heiminum í Bíóhöllinni á Akranesi, en ókeypis er inn á allar myndirnar. Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir heimafólk að skella sér í bíó en líka fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins að skella sér upp á Skaga, horfa á eina til tvær heimildarmyndir og njóta svo þess sem bærinn hefur upp á að bjóða. Kíkja á Langasand, skella sér í Guðlaugu og fá sér að borða á einum af veitingastöðum bæjarins.

Fyrir barnafólk er líka margt skemmtilegt í gangi á hátíðinni, en fyrr í vikunni var haldið námskeið í heimildarmyndagerð fyrir 8-12 ára börn. Á námskeiðinu voru gerðar 10 heimildarmyndir sem verða sýndar klukkan 12.00 á Bókasafni Akraness.
„Við verðum líka með barnakarnival við Bíóhöllina á milli 12.30 og 14.00. Þar verður ratleikur. Bollywood-dansar, phenakistoscope-gerð, sem er gömul aðferð til að búa til hreyfimyndir, og margt fleira skemmtilegt. Þá verða einnig veitingar í boði,“ segir Ingibjörg.
Í kvöld verður haldið ball með Inspector Spacetime, Högna Egils og DJ Ívari Pétri og segist Ingibjörg vonast til að sem flestir mæti og dansi fram á nótt.
„Á morgun verður svo lokaathöfnin og verðlaunaafhending. Dómnefndir veita verðlaun fyrir bestu myndir hátíðarinnar og besti áhorfandinn fær áhorfendaverðlaun,“ segir hún.
Ingibjörg segir að hátíðin sé farin að festa sig í sessi sem fastur viðburður á Akranesi og heimafólkið taki henni fagnandi.
„Við erum mjög ánægð með þátttöku þeirra.“
Allar upplýsingar um dagskrána má finna á icedocs.is