Hér eru á ferðinni dásamlegar sumarvefjur sem eiga vel við á góðum sumardegi úr smiðju Berglindar Hreiðars matar- og kökubloggara sem heldur úti síðunni Gotterí og gersemar.
„Grillaður BBQ kjúklingur í vefju með ísköldum bjór er sannarlega sumarið uppmálað,“ segir Berglind og segist elska grilla á sumrin og útbúa sumarlega réttir.

Sumarvefjur
Fyrir 4
BBQ kjúklingur
700 g úrbeinuð kjúklingalæri
Bulls Eye BBQ sósa
Kjúklingakrydd
Kryddið kjúklingalærin og grillið á meðalheitu grilli þar til þau eru tilbúin (tekur um 15 mínútur í heildina). Penslið BBQ sósu á kjúklinginn, báðu megin í lokin og leyfið kjötinu síðan aðeins að standa áður en þið skerið það niður.
Grilluð paprika
1 stk. græn paprika
1 stk. appelsínugul paprika
Skerið niður í strimla. Penslið með olíu og kryddið með kjúklingakryddi.
Setjið á álbakka og grillið á meðan þið eldið kjúklinginn, snúið nokkrum sinnum.
Annað hráefni og samsetning
Litlar (street food) vefjur 8-10 stykki
Avókadó eftir smekk
Tómatar niðurskornir
Kóríander
Sýrður rjómi
Meiri Bullseye BBQ sósa eftir smekk
Grillið vefjurnar stutta stund á grillinu á hvorri hlið, rétt til að hita þær. Skerið niður kjúklinginn og raðið öllu saman. Njótið á fallegu sumarkvöldi.