Þegar sólin skín eru fæstir í stuði fyrir þungar rjómasósur og mikið meðlæti. Best er að hafa matinn einfaldan, hollan og góðan. Hér koma nokkrar góðar hugmyndir.
Grillaður aspargus með parmesan-osti
Ferskur aspargus er sérlega góður. Hann getur verið skemmtilegur forréttur, eða sem meðlæti með kjöti.
Það sem þarf:
1 búnt ferskur aspargus
1 sítróna, skorin til helminga
Salt, sykur og sítróna í suðuvatnið
Parmesan-ostur
Ólífuolía
Salt og pipar
Graskersfræ
Skerið 2-3 cm neðst af aspargusinum, þar sem hann er harðastur, Stundum er hægt að brjóta hann auðveldlega frá. Skrælið síðan aðeins neðsta lagið á stilknum með kartöfluskrælara. Sjóðið vatn og setjið út í það smávegis salt, sykur og sítrónusafa. Setjið aspargusinn út í og sjóðið í 2-3 mínútur. Stöðvið suðuna með því að setja hann beint í ísvatn. Þerrið og setjið á heitt grill þar til hann fær fallegar grillrendur, einungis smástund. Grillið hálfa sítrónu með aspargusinum og berið fram með honum.
Ristið graskersfræin á þurri pönnu. Raðið aspargusinum á fat og stráið fræjunum yfir ásamt parmesan-osti. Sneiðið ostinn með ostahníf. Sumir setja hvítlauksolíu yfir aspargusinn, eða balsamsíróp og það má vel gera það, allt eftir smekk hvers og eins.
Grillað „entrecote“
Gott, grillað nautakjöt skapar veislu. Með kjötinu er borið fram salat með grilluðum perum og gorgonzola-osti. Uppskriftin miðast við fjóra.
4 sneiðar gott „entrecote“
Salt og nýmalaður pipar
Kartöflur ef fólk vill, annars er ágætt að hafa bara salat

Salat
Klettasalat eða blandað salat
2 perur
100 g gorgonzola-ostur
Nokkrar valhnetur
Fersk basilíka
Balsam-edik
3 msk. balsamsíróp
6 msk. ólífuolía
Salt og pipar
Ef þú vilt bjóða upp á kartöflur skal velja fallegar, miðlungsstórar og sjóða þær í tíu mínútur. Þá eru þær skornar til helminga og settar á grillspjót og síðan grillaðar þar til þær fá fallegan lit. Saltið yfir þær.
Setjið salatið á disk. Skerið perur í þunnar sneiðar og raðið yfir salatið. Það er gott að grilla sneiðarnar augnablik á grillinu áður. Setjið bita af gorgonzola hér og þar. Ristið hneturnar á þurri pönnu og dreifið yfir ásamt basilblöðum.
Hrærið allt saman sem á að fara í dressinguna og smakkið til með salti og pipar.
Penslið kjötið með olíu og bragðbætið með salti og pipar. Grillið á góðum hita í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Látið kjötið hvíla í tíu mínútur áður en það er borið á borð. Dreifið balsamediki yfir kjötið.

Grillaðar nektarínur
Grillaðar nektarínur eru frábær eftirréttur. Í þessari uppskrift eru þær bornar fram með klettasalati og parmaskinku, sem getur gert réttinn að forrétti líka. Það má alveg breyta, þannig að grillaðar nektarínur séu bornar fram með ís eða rjóma.
3 nektarínur, skornar í fjóra hluta hver
6 sneiðar parmaskinka
12 basilblöð
12 tannstönglar
Dressing
3 msk. jómfrúarolía
1 msk. hindberjaedik
2 tsk. fljótandi hunang
½ tsk. cummin
Salt og pipar
Þeytið allt saman sem á að fara í dressinguna.
Skerið nektarínur og fjarlægið steininn. Grillið á miðlungshita í nokkrar mínútur á hvorri hlið. Það er hægt að rúlla skinkunni yfir nektarínuna þegar hún hefur verið grilluð og festa með tannstöngli og basil. Skinkusneiðinni er deilt í tvo hluta eftir endilöngu. Líka má raða þessu öllu fallega á disk. Berið fram með dressingunni.