Í dag kemur í ljós hvort íslenski leikarinn Tómar Lemarquis vinnur silfurbjörninn fyrir besta leik á Kvikmyndahátíðinni í Berlín. Þar var á fimmtudaginn frumsýnd myndin Touch Me Not í aðalkeppni hátíðarinnar þar sem Tómas leikur aðahlutverkið ásamt leikkonunni Lauru Benson. Tómas segir hlutverkið hafa verið krefjandi, við vinnslu myndarinnar hafi hann og aðrir leikarar þurft að kafa djúpt í eigin reynslu og horfast í augu við áföll. Hulda Rós Guðnadóttir kvikmyndagerðarkona er í Berlín og fjallar um myndina.
Myndin er spunaverk sem unnin er milli leikstjóra og 'leikara' þar sem verið er að skoða nánd og ást, bæði líkamlega og andlega, kynferðislega og ókynferðislega. Myndin er í sjálfu sér einskonar meðferð eða sálgreining sem áhorfendur dragast inn í. „Það var ekki neitt handrit heldur einungis lauslegur rammi sem við vorum að vinna með'', segir Tómas. En í upphafi Touch Me Not talar leikstjórinn beint til áhorfenda eða til persónanna fyrir framan myndavélina og spyr sig af hverju hún sé að gera þessa rannsókn. Þannig er áhorfendum gert ljóst strax í upphafi að gerð myndarinnar er rannsóknarferli.
Kvikmyndahátíðin stendur yfir í rúmlega viku og í undanfara að frumsýningunni fékk blaðamaður að hanga nokkrum sinnum með Tómasi og meðleikurum og taka púlsinn á hvernig þeim leið við gerð myndarinnar. ''Það er alveg ótrúlegt hvað Adina náði fram í okkur'', segir Tómas. ''Hún er svo sterk og kraftmikil kona og skapaði mikið traust sem gerði myndgerðina mögulega. Leikararnir voru í raun að hoppa út í hyldýpi. Við vissum ekkert hvað myndi gerast eða hvernig þetta myndi enda. Það var kafað ofan í okkar eigin áföll og skaðleg atvik og unnið með það. Þetta gerir myndina mjög sanna.'', segir Tómas og heldur áfram ''Það er mjög erfitt að fara út í svona mikla hreinskilna sjálfsskoðun og gerð myndarinnar hafði umbreytandi áhrif á mig. Ég fylltist oft efa í ferlinu en það sem hjálpaði mér heilmikið var að skyggn vinkona mín hafði séð þetta allt fyrir. Hún hafði í raun sagt mér frá því að ég væri að fara að gera þessa mynd áður en ég fékk fyrirspurn. Hún sá þetta allt fyrir. Að þetta myndi ganga vel og verða mikilvæg mynd fyrir mig.''
Myndatakan rammi fyrir frelsi
Á blaðamannafundi talar aðalleikonan Laura um að þau hafi ekki verið leikarar heldur eins konar dyr fyrir leikstjórann. einasti rammi myndarinnar er mjög vandlega samansettur.
Ekkert má finna að lýsingu, myndbyggingu, formi, litavali og tónum eða fókuslengdum. Hugsað er fyrir öllu. Myndatakatakan verður þannig rammi fyrir frelsið í myndinni. Hún er gott dæmi um að til þess að skapa nánd þarf myndavélin ekki að vera sífellt á hreyfingu eða ofan í aðalpersónunum. . Kynórar, kynhneigð og samband móður og barns eru fyrirbæri sem öll fá sitt pláss. Nándin kemur með nálgun leikstjórans og með því hversu mikið leikararnir gefa af sér. Nándin kemur líka vegna þess að áhorfandi fær fljótt á tilfinninguna að allt kvikmyndateymið sé í þessu saman og mörkin milli þess hver sé fyrir aftan eða framan myndavélina hverfa.
Það má segja að hægt sé að spegla sig í öllum kvikmyndum og myndlist en þessi mynd gengur enn lengra. Hér er ekki verið að bera á borð sögu með afgerandi niðurstöðu leikstjóra sem oft á tíðum kallar fram óraunsæjar væntingar eða óánægju eða ánægju með sjálfan sig. Hér er tekist á við sjálfan sig af ósérhlífnri hreinskilni. Adina leikur sér að því markvisst að afbyggja goðsöguna um ástina og nándina um leið og hún afbyggir myndavélina sjálfa. Undir lokinn fáum við bókstaflega að fylgjast með þegar myndavélin er tekin í sundur og skjár sem leikstjórinn hefur falið sig bakvið er tekinn niður.
Sumt er satt, sumt er logið
Nokkrum dögum áður höfðu blaðamaður og Tómas farið saman í bíó og horft á mynd um kvikmyndastjörnuna Romy Schneider. Romy hafði á sinni stuttu ævi þurft að berjast við það að sífellt hafði verið varpað á hana ímynd úr hlutverki sem hún leik í þegar hún var 15 ára. Myndin segir frá viðtali þar sem hún gerir tilraun til að koma blaðamanni fyrir sjónir að hún sé ekki þessi 15 ára stelpa heldur 42 ára óhamingjusöm og drukkin kona. Þó svo líf Tómasar hafi ekki verið harmleikur eins og líf Romy þá hefur hann þurft að eiga við svipaða hluti. Hann varð þekktur út um allan heim fyrir hlutverk Nóa Albínóa. ''Í mörg ár var verið að varpa ímynd Nóa á mig. Fólk ruglaði okkur oft saman'', segir Tómas. Síðan þá hefur Tómas leikið mörg hlutverk í mjög vinsælum kvikmyndum og aðallega leikið skúrka.
''Þetta er náttúrulega ofboðslega óskýr mörk þarna. Þegar við byrjuðum að fara í þetta ferli þá var ég karakter sem hét Tutor sem ég var að fara að leika en þegar ég var að koma út úr myndinni þá hét ég Tómas í myndinni. Auðvitað eru þetta aðstæður sem voru búnar til, sem ég er að leika eða ég hélt ég væri að fara að leika. En þegar upp er staðið er mikið af sannleika í þessu. Hlutir sem komu upp úr undirmeðvitundinni. Ég var búin að vera í mikilli sjálfsvinnu fyrir þetta ferli þannig að mér var það ekkert ókunnugt. Mjög mikið var tekið upp og það sem var erfiðast er ekki endilega, þegar upp er staðið, í myndinni. Sumt er satt, sumt er logið. Þetta er svona á óskýru svæði. Það er það sem er svo sterkt við þessa mynd að það er þarna eitthvað sem er satt. Þó hlutir séu ýktir og hvort þetta séu akkúrat málin sem hver og einn er að fást við nákvæmlega skiptir ekki máli.'' Tómas heldur áfram og útskýrir að persónurnar séu svona blanda, þau sjálf en samt ekki þau sjálf. Þetta sé líka spurning hvað sé þau sjálf. Hann sé ekki sami einstaklingurinn í dag og sá sem hann var þegar byrjað var að gera þessa mynd. ''Hvað er það sem við höldum að sé ég?'', heldur Tómas áfram.
Snertu mig ekki
Touch Me Not er fyrsta mynd rúmensku leikstýrunnar og myndlistakonunnar Adina Pintilie í fullri lengd. Adina hefur áður sent frá sér bæði tilraunamyndir og skapandi heimildarmyndir og hefur Touch Me Not verið heil sjö ár í þróun og fjármögnun síðan Adina fékk fyrst handritsstyrk. Þegar horft er á myndina skýrist af hverju. Það er hreinlega afrek að myndin hafi verið fjármögnuð. Hún hefur engan hefðbundinn söguþráð og hún tilheyrir ekki neinni einni tegund kvikmynda. Frá sjónarhóli kvikmyndagerðarmanna skipta flokkaskiptingar að vísu ekki máli. Það er verið að skapa og hið huglæga er hvort sem ekki endilega hægt að grípa á auðsjáanlegan hátt. Það er hinsvegar þegar kemur að fjármögnunar- og dreifingaraðilum og sýningarstöðum og samhengi út á við sem krafan um merkimiða verður að stóru atriði.
Adina Pintilie
Adina varð fyrst þekkt fyrir heimildarmyndina Don´t get me wrong sem kom út árið 2007 og vann Gullnu Dúfuna á elstu og virtustu heimildarmyndahátíð Þýskalands DOK Leipzig. Myndin var einnig tilnefnd til 'Verðlauna hins frjálsa anda' á A-lista kvikmyndahátíðinni í Varsjá. Verðlaunin eru fyrir myndir í fullri lengd sem þykja vera ferskar og uppreisnagjarnar í anda. Í myndinni Oxygen sem frumsýnd var árið 2010 tók Adina skref inn í skáldskapinn en myndin er endurleikur á sögulegum atburðum og á heima á óræðum stað á mörkum skáldskapar, heimildarmynda og myndlistar. Það var svo fyrir stuttmyndina #Diary 2 árið 2013 sem Adina vann Zonta verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Oberhausen. Í myndinni tekur Adina skrefið til fulls að skapa mynd í spunavinnu milli leikstjóra og leikara.