Aþena Þöll Gunnarsdóttir stundaði knattspyrnu með unglingalandsliðinu og hafði hugsað sér framtíðina í boltanum þegar hún féll fyrir kokkinum og hóf nám í matreiðslu, sem hún lauk síðasta vor. Nú stefnir hún á bakaranám
Aþena Þöll er aldamótarbarn, fædd árið 2000. Hún byrjaði ung að spila fótbolta með FH og lék með liðinu til sextán ára aldurs þegar hún færði sig yfir til Hauka en síðan lá leiðin á Álftanesið.
Í stað þess að fara alla leið í íslenska kvennalandsliðið helgaði hún kokkalandsliðinu krafta sína sem aðstoðarmaður. Hún hefur aðstoðað landsliðið á nokkrum mótum, nú síðast á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg í desember þar sem liðið hafnaði í sjötta sæti. Hún stefnir á að fylgja landsliðinu alla leið á Ólympíuleikana í Stuttgart sem haldnir verða í febrúar 2024 og er undirbúningur þegar hafinn. Aþena Þöll er yngsti meðlimur landsliðsins.

Ætlaði í arkitektúr
Það var fyrir einskæra tilviljun að Aþena hóf nám í matreiðslu. Hún var nemandi í Tækniskólanum og hugðist stefna á nám í innanhúss-arkitektúr. Meðfram náminu réð hún sig til starfa hjá veitingahúsinu Fiskfélaginu. Þar uppgötvaði hún kokkaheiminn og féll gjörsamlega fyrir honum.
„Það var allt skemmtilegt við þetta starf,“ segir hún. „Mig langaði rosalega mikið að verða einn af kokkunum í eldhúsinu og elda mat. Það hafði ekki verið plan hjá mér áður,“ segir hún.
Aþena komst fljótt á samning hjá Fiskfélaginu og hefur klárað námið með glæsibrag.
„Mig hefur lengi langað til að læra að verða bakari og var alltaf að baka kökur þegar ég var yngri á milli þess sem ég spilaði fótbolta. Þetta tvennt átti hug minn allan. Ég lauk matreiðslunáminu síðastliðið vor en ákvað fyrir stuttu að slá til og láta gamla bakaradrauminn rætast,“ segir hún en Aþena fékk samning hjá Gunnlaugi Arnari Ingasyni bakara sem rekur bakaríið Hjá Gulla í Hafnarfirði. Aþena Þöll er Hafnfirðingur og af mikilli Gaflarafjölskyldu en afi hennar er Þórarinn Jón Magnússon, fyrrverandi ritstjóri og eigandi Samútgáfunnar.

Þurfti að velja á milli
Aþena þurfti að velja á milli fótboltans og kokkastarfsins því það fór ekki vel saman.
„Það er mikil kvöld- og helgarvinna á veitingahúsum sem er sami tími og í boltanum. Mig langar samt mikið að halda áfram í boltanum og vona að ég geti spilað eitthvað með bakaranáminu í sumar. Ég sakna boltans mikið,“ segir hún. „Ég er komin með góðan grunn fyrir bakaranámið og þarf einungis að taka tvö ár í verklegu námi og tvær annir í bóklegu. Það er nokkuð mikill munur að vinna í bakaríi eða á veitingastað. Hvað ég geri síðan er óvíst en hugurinn stefnir til útlanda að læra konditori, til dæmis í Danmörku,“ segir þessi metnaðargjarna stúlka en henni finnst mjög gaman að útbúa eftirrétti. „Mér finnst reyndar öll vinna í eldhúsi vera mjög skemmtileg.“
Starf matreiðslumanns var lengi vel karllægt starf en það hefur breyst mikið undanfarin ár enda hefur konum fjölgað ört í stéttinni. Aþena segir að sér hafi alltaf verið mjög vel tekið á Fiskfélaginu. Staðurinn er þekktastur fyrir sjávarrétti og sushi en býður einnig upp á ýmsa kjötrétti. Aþena segist hafa verið mikið í að gera sushi sem henni þykir virkilega gaman að gera.
Aþena er morgunkona og kvíðir því ekki að vakna nánast um miðja nótt til að fara í vinnu og baka brauð og kökur. „Ég hef unnið á mismunandi vinnutíma og allt venst þetta,“ segir hún en mikið hefur verið að gera hjá Aþenu á undanförnum árum.
„Ég er mikil fjölskyldumanneskja, vil bara hanga heima með fjölskyldunni þegar ég er í fríi enda er samheldnin mikil. Ég fer þó alltaf í ræktina,“ bætir hún við.

Marsípanterta með saltkaramellu
Aþena ætlar að gefa lesendum uppskrift að marsipantertu með saltkaramellu sem hún segir að sé mjög einfalt að gera. „Þetta er kaka sem allir geta gert og hægt að bera fram við hvaða tækifæri sem er, upplögð um páskana eða á fermingarborðið,“ segir hún. „Ég gerði þessa köku þegar ég tók þátt í keppninni Eftirréttur ársins 2018 og hlaut þriðja sætið. Það var fyrsta keppnin sem ég tók þátt í sem kokkanemi. Ég stefni á að taka aftur þátt í þessari keppni á næsta ári og líka Köku ársins,“ segir Aþena sem er alveg með metnaðinn í lagi.
Marsípankaka Aþenu
Hráefni:
200 g smjör
4 egg
200 g marsípan
120 g púðursykur
80 g sykur
20 g hveiti
100 g möndlumjöl
Aðferð:
Best væri að nota matvinnsluvél en hrærivél virkar líka.Stillið ofninn á 180°C.Skerið marsípan í bita og blandið saman við möndlumjölið þar til marsípan er ekki lengur í bitum.Öllu þurrefni er bætt við og blandaða saman við.Bræðið smjörið og bætið við.Loks fara eggin út í, eitt í einu, og hrært á milli.Smyrjið formið sem þið ætlið að nota. Deigið ætti ekki að vera hærra en um 2 cm.Bakið kökuna í 30 mínútur.
Saltkaramella
Hráefni:
200 g sykur
50 g vatn
150 g rjómi
70 g smjör
2 tsk gróft salt
Aðferð:
Sykur og vatn er sett saman í pott, passa að vatnið hylji allan sykurinn. Potturinn fer svo á hæsta hita. Gott er að reyna sleppa því að hræra í sykrinum.Meðan sykur og vatn karamellast er gott að sigta rjóma og smjör í sitthvora skálina.Þegar sykurinn er orðinn að karamellu eða næstum brúnn er rjómanum bætt við og tekið af hitanum. Notið sleikju til að blanda rjómanum saman við.Smjörinu er bætt við ásamt saltinu, byrja á einni teskeið og smakkað, ef þið viljið meira saltbragð þá bætið við teskeið af saltinu.Karamellan fer ofan á marsípankökuna. Toppað með ristuðum möndluflögum og flórsykri.
Marsípankakan getur verið borin fram volg og karamellan líka. Hægt er að bera kökuna fram með rjóma, ís, berjum eða hverju sem ykkur dettur í hug.
