Inga er stjórnendaþjálfi í fyrirtæki sínu Via Optima þar sem hún vinnur með stjórnendum sem koma til hennar í stjórnendamarkþjálfun ásamt því að vera með námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir. Hún er fædd og uppalin á Akureyri en hefur nú búið lengur í Kópavogi en fyrir norðan.

„Ég hef mikla ástríðu fyrir því að vinna með fólki í krefjandi störfum því ég reyndi það sjálf á eigin skinni þegar ég starfaði lengi í fjármálageiranum,“ segir Inga sem er iðin við að stunda golf í frístundum.

„Ég hef lengi glímt við hárlos og prófað ótal hárkúra með misgóðum árangri, en þegar ég rakst á viðtal við Ragnhildi Sigurðardóttur golfkennara, þar sem hún mælti heils hugar með bætiefninu Smoother Skin frá Eylíf, vissi ég að Ragga myndi aldrei gefa sín meðmæli nema hún væri ánægð með vöruna. Ég hugsaði með mér að ef Ragga finnur svona mikinn mun á hári sínu ætla ég að prófa líka,“ segir Inga sem nú hefur tekið inn Smoohter Skin & Hair í að verða þrjá mánuði.

„Ég er núna að klára þriðja skammtinn og fann fljótlega mun, en þegar hárgreiðslukonan fór að tala um gróskuna í hárinu á mér, hugsaði ég með mér: „Getur verið að þetta virki svona vel?“ Eftir klippinguna ákvað ég að láta Ólöfu Rún hjá Eylíf vita hversu ótrúlega ánægð ég er með Smoother Skin & Hair og hvað það virkar vel. Það er eitthvað í þessu bætiefni sem svínvirkar því ég er með ný hár úti um allt á höfðinu. Hárlosið er úr sögunni, fullt af nýjum hárum og hárið er allt annað,“ segir Inga, svo sannarlega ánægð með árangurinn.

Bæði húð og hár Ingu njóta góðs af áhrifum bætiefnisins Smoother Skin & Hair frá Eylíf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

Er alsæl með árangurinn

Inga hefur prófað mjög mörg hárvítamín á markaðnum.

„Þar af hefur sumt verið gott en Smoother Skin & Hair er best. Bætiefnamarkaðurinn er frumskógur og þegar maður stendur fyrir framan hillur verslana með gríðarlegu úrvali vítamína er erfitt að vita hvað virkar í raun. Stundum heldur maður að það dýrasta sé best og reynir að rýna í innihaldsefnin en í Smoohter Skin & Hair fann ég loksins bætiefni sem raunverulega virkar. Þetta er frábær bætiefnablanda fyrir hárið og einhver samsetning í því sem virkar mjög vel. Í því er kollagen, sink, bíótín, magnesíum og kopar, sem allt eru vítamín og steinefni sem eru góð fyrir hárið, en hjá Eylíf eru þau hárrétt blönduð og árangurinn lætur ekki á sér standa,“ segir Inga sem finnur líka mun á húð sinni eftir að hún fór að taka inn Smoother Skin & Hair.

Smoother Skin & Hair frá Eylíf

„Í frosthörkunum í vetur hef ég verið með minna exem en ég fæ vanalega á veturna. Það er gaman að upplifa þennan árangur og mér fannst skemmtilegt þegar hárgreiðslukonan spurði hvort ég sæi hversu mikið væri af nýjum hárum, en til þess þurfti ég hennar gleraugu því ég sé ekki ofan í hársvörðinn. Hún átti ekki einasta orð yfir árangrinum. Mér fannst það mjög sterkt og þá varð ég endanlega sannfærð. Smoother Skin & Hair er raunverulega að gera sitt gagn,“ segir Inga.

Hún mælir með Smoother Skin & Hair fyrir alla sem eru að velta fyrir sér hvaða hárvítamín séu góð.

„Ég gef Smoother Skin & Hair mín bestu meðmæli. Það er virkilega gaman að finna hvað hárið nýtur góðs af því og ég er barnslega glöð yfir því að þetta virki í raun svona fáránlega vel. Ég er alsæl.“

Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Fjarðarkaupum, Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni og Melabúðinni. Ókeypis heimsending ef keypt er fyrir 7.000 krónur eða meira á eylif.is

Skoðið allt um bætiefnalínu Eylíf á eylif.is

Vörulínan Eylíf býður upp á fimm frábærar heilsuvörur sem unnar eru úr hreinum, íslenskum náttúruafurðum.