Egla-möppurnar eru mikilvægur þáttur í starfsemi Múlalundar, vinnustofu SÍBS, sem veitir árlega um 80 manns með skerta starfsorku vinnu. Hefðbundnar Eglamöppur hafa haldið utan um gögn einstaklinga og fyrirtækja á Íslandi í áratugi við góðan orðstír, og eru líklega vinsælustu bókhaldsmöppur á Íslandi.
Umhverfisvænni án plasts
Nýju Egla-möppurnar eru eingöngu úr pappa og pappír, auk járnsins, og er pappírskápan límd utan á endurunninn pappa. Þær eru því án plasts og henta vel til endurvinnslu í lok notkunar. „Nýju möppurnar eru sérstyrktar, járnin eru þau sömu og áður, og við vonumst til að þær endist jafn vel og hefðbundnar Egla-möppur. Það er þó klárt að þær þola til dæmis bleytu síður en gömlu möppurnar, sem yfirleitt er ekki vandamál. Pappírinn í möppunum er evrópskur, vottaður pappír. Þær eru því enn umhverfisvænni kostur en eldri gerðin,“ segir Sigurður Viktor Úlfarsson, framkvæmdastjóri Múlalundar.
Mikil ending fyrir umhverfið
Hefðbundin Egla-mappa er samsett úr sterkri plastkápu sem er límd utan á endurunnið pappaspjald og hún síðan járnuð. Það þýðir að við lok notkunartíma möppunnar þarf að flokka möppuna sem almennt sorp. Það jákvæða er að Egla-möppur eru mjög sterkar og endingargóðar. „Fjölmörg fyrirtæki og einkaaðilar nýta sömu möppurnar aftur og aftur, ár eftir ár. Við teljum að þessi langa ending geri þær mjög umhverfisvænar þegar allt er talið. Plastið sem notað er í möppurnar er evrópskt plast sem tryggir að öll íblöndunarefni eru skráð og þekkt,“ segir Sigurður.
Tvær stærðir og þrír litir
Hefðbundnar Egla-möppur fást í tveimur stærðum og átta litum, en til að byrja með verður boðið upp á nýju pappamöppurnar í sex útfærslum, svörtum, hvítum og bláum, með 5 cm eða 8 cm breiðum kili. „Svartir, hvítir og bláir litir passa við alla aðra liti á skrifstofunni og hafa lengi verið vinsælustu litirnir á meðal viðskiptavina Egla,“ segir Sigurður. „Á áramótatilboði Múlalundar eru þessar möppur á sérstaklega góðu verði, aðeins 899 kr., sem er sama og tilboðsverðið á öðrum Egla-möppum.“ Límdir eða engir kjölmiðar Til að losna alveg við plast á nýju möppunum er kjölmiðum ekki lengur rennt ofan í plastvasa á kili, heldur eru þeir límdir á möppuna. Hægt er að fá aukamiða sem límdir eru yfir þá gömlu eða þeim eldri skipt út fyrir nýja.

Vilji fyrirtæki framleiða eigin kjölmiða til að líma á sínar möppur getur Múlalundur séð um það fyrir viðskiptavini. Þá er nú í fyrsta skipti hægt að fá Egla-möppur án kjölmiða og þá annað hvort að láta letra upplýsingar eða merki á kjölinn, eða hafa hann alveg auðan. Sumum viðskiptavinum finnst það flottara og nútímalegra, og þá bjóðum við að sjálfsögðu upp á þann möguleika,“ segir Sigurður Viktor. Þess má geta að Múlalundur býður upp á aukakjölmiða á nýju og eldri möppugerðir, til að renna í plastvasana eða líma á nýju möppurnar. Það skapar enn meiri vinnu á Múlalundi.
Áletrun fyrir öryggi gagna
Margt er í boði þegar laga þarf Egla-möppur að sérþörfum viðskiptavina. Staðlaðar möppur eru tveggja gata, en óski viðskiptavinir eftir því eru í boði bæði þriggja og fjögurra gata Egla-möppur. Múlalundur býður einnig upp á að letra fyrirtækjamerki og upplýsingar á Egla-möppur, sem skapar enn meiri vinnu á Múlalundi. „Töluvert margar stofnanir og fyrirtæki nýta sér þetta. Með því auka þær upplýsingaöryggi, því þá er skýrt ef mappa frá þeim er komin þangað sem hún á ekki að vera. Merkingarnar eru fallegar og möppur oft áletraðar útlitsins vegna. Sumir viðskiptavinir láta gera eigin kjölmiða og setja þannig sinn svip á rýmið sem mappan er í,“ bætir Sigurður við.
Box í sama útliti fyrir allt hitt
Hluti af Egla-línunni eru svokölluð tímaritabox sem hægt er að nota undir skýrslur og gögn sem ekki er hægt að gata og setja í möppur. „Kjölurinn á þeim lítur út eins og Egla-mappa og því verða hillur mjög snyrtilegar þegar einungis sést í kilina og engar lausar skýrslur eru á víð og dreif um hillurnar. Hefðbundnar Egla-möppur má einnig fá minni fyrir A5-gögn, bæði standandi og liggjandi, og fleiri stærðir. Þá býður Múlalundur gatapoka sem passa í allar möppurnar svo vel fari um gögnin,“ útskýrir Sigurður en þess má geta að Múlalundur býður einnig upp á geymslukassa og geymsluteina.

Áramótatilboð til 15. febrúar
Til 15. febrúar eru hin árlegu áramótatilboð Múlalundar, þar sem fjölbreyttar skrifstofuvörur eru á góðum tilboðum og sendar beint til viðskiptavina. Hægt er að skoða tilboðin á vefsíðu Múlalundar, mulalundur.is. Þá býður Múlalundur upp á ljósritunarpappír, dagatöl, dagbækur og fjölbreytt úrval skrifstofuvara. „Múlalundur selur Navigator hágæðaljósritunarpappír sem er rykfrír, flækist síður og fer mjög vel með prentara og ljósritunarvélar. Margir okkar viðskiptavina velja sérstaklega að kaupa Navigator-pappír af okkur, bæði í litlu magni og allt upp í brettavís,“ bætir Sigurður við. „Undanfarin misseri hefur verið unnið að umhverfismálum á Múlalundi. Plastið sem Múlalundur notar í möppur, plastvasa, barmmerki og fleira er evrópskt plast sem er vottað og skráð í evrópska gagnagrunna. Það tryggir að öll íblöndunarefni eru þekkt. Plastið er einnig vottað til notkunar í leikfangaframleiðslu þar sem gert er ráð fyrir að börn stingi því upp í sig. Til að fá slíka vottun í Evrópu þarf hreinleikinn að vera mjög mikill,“ segir Sigurður.
Vefverslunin vinsæl
Á vefsíðunni mulalundur.is er rekin stór vefverslun með skrifstofuvörur, pappír, dagbækur, kassa, límband, gjafavörur, prjóna, göngustafi, íþróttateygjur, sokka og margt fleira. „Þar geta viðskiptavinir valið úr glæsilegu úrvali og bæði verð og úrval kemur flestum á óvart. Það er einfalt að versla á netinu og við sendum vörurnar strax daginn eftir,“ útskýrir Sigurður, en fari pöntun yfir 20 þúsund krónur er frí heimsending um allt land. Fyrir minni pantanir er lágt sendingargjald og einnig er hægt að fá sent í póstbox, á pósthús eða sækja í verslun okkar í Mosfellsbæ.

Virkir á vinnumarkaði
Á Múlalundi er aðstaða til að taka á móti mun fleirum með skerta starfsorku, en forsenda fjölgunar eru aukin viðskipti og verkefni. „Þetta er hörkuduglegt fólk og það þarf að hafa nóg að gera. Vinnudagur og verkefni eru löguð að getu hvers og eins. Á Múlalundi er sífellt leitað nýrra verkefna. Nýjar og enn umhverfisvænni Egla-möppur styðja við starfsemi Múlalundar og tryggja að í fyrirtækjum sé „röð og regla með Egla“, eins og við segjum á Múlalundi, í góðri sátt við umhverfið,“ segir Sigurður ánægður.
Múlalundur, vinnustofa SÍBS, er við Reykjalund í Mosfellsbæ. Sími 562 8500. Netfang: mulalundur@ mulalundur.is. Sjá mulalundur.is

