Lind fasteignasala, sími 510 7900, kynnir nýjar íbúðir við Maríugötu 1, Urriðaholti í Garðabæ.

Íbúðirnar eru 2 til 4 herbergja, stærð 66,5 til 130, 3 fermetrar. Verð frá 59.900.000 krónum.

Íbúðirnar eru í fallegu fjölbýli innst í hverfinu við Heiðmörk. Húsið er klætt með álklæðningu. Gólfsíðir gluggar eru í íbúðunum sem skapa bjart og fallegt rými og mikið útsýni.

Aðalhönnuður er Úti og inni arkitektar.

Skilast fullbúnar að innan, með öllum gólfefnum.

Eldhúsið er frá GKS og er bæði dökkt og hvítt.

Í eldhúsi eru þýskar innréttingar, Nobilia frá GKS

Raftæki í eldhúsi eru frá AEG.

Innbyggður kæliskápur með frysti og uppþvottavél.

Hvítir fataskápar frá Parka.

Innbyggð LED-ljós og kubbaljós.

Bílastæðahús fyrir stærri eignir.

Engin þrep í penthouse, gengið beint út á svalir.

Alrými þar sem stofa og eldhús mætast. Mynd/aðsend
Glæsilegt baðherbergi.

Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum.

Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir, löggiltur fasteignasali, sími 621 2020. gudrun@fastlind.is

Tvö falleg fjölbýlishús sem eru að rísa við Maríugötu.
Skannið til að skoða myndband.